Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Fram vann Akureyri stórt í Safamýri. - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Sjá tölfræði leiksins 
    Fram - Akureyri  30-20 (17-8)
DHL deild kvenna
Safamýri
20. mars 2007 klukkan: 19:00
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun

Það gekk ekki gegn Fram

23. mars 2007 - SMS skrifar
Fram vann Akureyri stórt í Safamýri.
Stelpurnar áttu upphaflega að spila leikinn á þriðjuadaginn og lögðu þær af stað frá Akureyri upp úr 11 um morguninn, þær hinsvegar snéru við í Blönduósi vegna slæmrar færðar á leiðinni. Leiknum var þá frestað og fór hann fram á miðvikudagskvöldið í Reykjavík.

Í samtali við heimasíðuna sagði einn leikmaður að frestunin hafi komið sér virkilega illa, þar sem leikmennirnir voru uppgíraðir fyrir leikinn á þriðjudaginn og það hafi verið erfitt að gíra sig aftur upp daginn eftir.

En að leiknum, ekki var sjón að sjá Akureyri frá því í síðasta leik, Fram komst í 5-1 og leiddu svo 17-8 í hálfleik. Liðið var dapurt og það sem var að klikka var vörnin og markvarslan þar af leiðandi, það er eitthvað sem ekki hefur verið að klikka það sem af er liðið vetri.

Í seinni hálfleik héldu Fram þessu góða forskoti og unnu svo stórsigur 30-20. Akureyri fær þó hrós fyrir að berjast allann leikinn þrátt fyrir að vera langt undir. Leiðinlegt er að sjá að liðið náði ekki að gíra sig upp fyrir þennan leik eftir stórglæsilegan sigur á FH um síðustu helgi. Það hefði verið virkilega gaman að sjá önnur tvö stig í hús.

Markahæstar í liði Akureyrvar voru: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir og Ester Óskarsdóttir báðar með 5 mörk. Lilja Sif og Jóhanna Tryggvadóttir voru báðar með 3 mörk hvor og síðan Guðrún og Unnur Ómarsdóttir með 2 mörk báðar.

Næsti leikur Akureyrar er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardaginn næstkomandi.

Tengdar fréttir

Hvað gera Jarmila og stelpurnar á morgun?

19. mars 2007 - SMS skrifar
Kvennaliðið: útileikur á morgun
Stutt er á milli leikja núna hjá stígandi kvennaliði Akureyrar. Þær leggja í'ann suður á morgun til að spila við Fram í Safamýrinni. Þetta verður afar fróðvitnilegur leikur þar sem stelpurnar tóku jú sína fyrstu punkta um helgina hérna á heimavelli og geta vel endurtekið leikinn á morgun.

Stelpurnar mættu Fram í Safamýrinni snemma í vetur þar sem þær töpuðu heldur stórt 29-21 í frekar döprum leik. Þessi lið mættust aftur á Akureyri í afar einkennilegum handboltaleik. Þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Haddur og Einvarður létu liðið af hendi. Liðið var þó ekki undir stjórn nýs þjálfara sem var ekki staddur á landinu þann daginn. Sá leikur einkenndist af mikilli vörn beggja liða og voru aðeins 15 mörk skorðu í fyrri hálfleik. Akureyri leiddi í hálfleik 8-7. Leikurinn endaði svo 18-13 sem er afar lítil markaskorun í handbolta. Sérstaklega hjá Akureyri.

Í þeim leik sýndu stelpurnar að þær gátu vel stoppað Ástu Birnu, stórskyttu Frammara sem og Anitu Köbli. En sóknarleikurinn var óslípaður. Jónatan og Jóhannes hafa verið að slípa sóknarleikinn hægt og bítandi frá því þeir tóku við liðinu og verður gaman að sjá hvernig leikurinn fer á morgun. Ég hef alla trú á því að liðið taki þau tvö stig sem í boði eru og fari að ógna FH sem er sem stendur 3 stigum á undan Akureyri.

Fram stúlkur sitja sem stendur í 5 sæti deildarinnar með 17 stig, þær hafa unnið 7 leiki, tapað 9 og gert 3 jafntefli. Þær eru liðið sem skilur á milli þeirra fjögurra liða sem standa á toppnum, langt á undan öllum öðrum og eru nær tryggð í það sem kallast deildarbikarinn, einhverskonar úrslitakeppni.

En eins og áður sagði, tvö stig í boði á morgun, stelpurnar sýndu á laugardaginn hvað í þeim býr og öll mín trú er á að þær komi aftur norður annaðkvöld með tvö stig á bakinu.

Leikurinn hefst kl 19:00 og er í Safamýrinni í Reykjavík.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson