Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Naumt tap gegn Stjörnunni - mikil batamerki á leik liðsins - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Sjá tölfræði leiksins 
    Akureyri - Stjarnan  18-21 (13-12)
N1 deild kvenna
Höllin Akureyri
12. janúar 2008 klukkan: 15.00
Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Sigurjón Þórðarson
Umfjöllun

Með þessari spilamennsku styttist í sigurleikinn







15. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Naumt tap gegn Stjörnunni - mikil batamerki á leik liðsins
Á laugardaginn spiluðu stelpurnar í Akureyri Handboltafélag sinn fyrsta leik á nýju ári og voru það Stjörnustelpur sem komu í heimsókn til Akureyrar. Leikurinn var spilaður í Íþróttahöllinni vegna 80 ára afmælishátíðar KA í KA-heimilinu um kvöldið.

Fyrirfram var ljóst að leikurinn myndi verða erfiður fyrir okkar stúlkur enda Stjörnuliðið í þriðja sæti deildarinnar og með geysiöflugt lið, á meðan okkar stúlkur eru stigalausar í botnsætinu. Leikurinn byrjaði afar rólega hjá báðum liðum og var sóknarleikur beggja liði ekki mjög merkilegur fyrstu mínúturnar. Það var þó alveg ljóst frá byrjun að talsvert slen var á leikmönnum Stjörnunnar sem töldu greinilega að hlutirnir myndu koma af sjálfu sér gegn botnliði Akureyrar. En þrátt fyrir vandræðalegar fyrstu sóknir okkar stúlkna var varnarleikurinn til mikillar fyrirmyndar allan fyrri hálfleikinn og sóknarleikurinn varð alltaf betri og betri. Okkar stúlkur leiddu allan fyrri hálfleikinn og náðu mest þriggja marka forustu 13-10 þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Agaleysi í sókninni og klaufalegir glataðir boltar urðu hins vegar til þess að Stjörnustúlkur náðu að minnka muninn í eitt mark í hálfleik, 13-12.
Inga Dís Sigurðardóttir fór mikinn í hálfleiknum og var öryggið uppmálað á vítapunktinum auk þess sem Emelía varði nokkuð vel í markinu.

Það bar á góma áhorfenda í hálfleik að vonandi næðu stelpurnar loksins að halda dampi í seinni hálfleik og klára leikinn af sama krafti og fyrri hálfleikur hefði þróast.

Fyrsta korterið í seinni hálfleik var hélt lið Akureyrar sjó og forustan var áfram þeirra, 17-16. En þá skipti Ragnar Hermannsson, sem stjórnaði liði Stjörnunnar þar sem Aðalsteinn Eyjólfsson er sem kunnugt er í löngu banni, Florentinu Grecu inná í mark Stjörnunnar. Skemmst er frá því að segja að Florentina lokaði markinu svo um munaði og var maðurinn á bak við að Stjarnan seig fram úr á lokasprettinum og sigraði að lokum 18-21.

Það verður að hrósa stelpunum fyrir góða frammistöðu í 45 mínútur í leiknum á laugardaginn gegn stjörnum prýddu Stjörnuliði en reynsluleysið varð þeim að falli sem og að stelpurnar virtust hræddar við Florentinu Grecu sem varði hvert dauðafærið á fætur öðru. Ljóst er að allt annað er að sjá til liðsins frá því í fyrstu leikjunum í haust og vonandi að þær fari nú að fá stig í deildinni. Þó er ljóst að sóknarleikurinn mætti vera betri hjá liðinu. Erfitt er að minnast á einhvern einn leikmann liðsins, en baráttan, vörnin og markvarslan var í góðu lagi lengst af og ekkert að því að halda liði Stjörnunnar í 21 marki.

Tengdar fréttir

Það verður nóg að gera hjá Örnu og félögum um helgina

11. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikir um helgina hjá kvennaliðunum
Fyrsti meistaraflokksleikur Akureyrar á þessu ári verður á laugardaginn þegar kvennaliðið tekur á móti sterku liði Stjörnunnar. Vegna afmælishátíðar KA fer leikurinn fram í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 15:00. Strax að loknum leik meistaraflokksins mætast sömu lið í unglingaflokki kvenna og fer sá leikur einnig fram í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 16:30.

Það er því ljóst að það verður mikið álag á margar stelpnanna sem leika með báðum flokkum. Unglingaflokksliðin mætast svo öðru sinni á sunnudaginn klukkan 14:30 og verður sá leikur í KA Heimilinu.

Eins og menn muna þá átti unglingaflokkurinn frábæra leiki um síðustu helgi og komust þá í 8 liða úrslit bikarkeppninnar. Það er því full ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn til að mæta í Höllina á laugardaginn og svo aftur í KA heimilið á sunnudaginn.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson