Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Glæsilegur sigur í fyrsta leik Ungmennaliðsins - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Sjá tölfræði leiksins 
    Akureyri U - Valur U  29-23 (17-9)
1. deild karla
Höllin Akureyri
Lau. 17. sep. 2016 klukkan: 14:00
Dómarar: Arnór Jón Sigurðsson og Patrick Maximilian Rittmüller
Umfjöllun

Frábær byrjun hjá Ungmennaliðinu

17. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Glæsilegur sigur í fyrsta leik Ungmennaliðsins
Ungmennalið Akureyrar hóf þátttöku sína í 1. deild meistaraflokks karla í dag með heimaleik gegn Ungmennaliði Vals. Skiljanlega vissu menn ekki alveg hvaða væntingar væru til liðanna en strax í upphafi leiks sýndi Akureyrarliðið að þeir væru mættir til leiks af fullri alvöru.

Eftir tíu mínútna leik var staðan 4-1 fyrir heimamenn og tíu mínútum síðar var staðan orðin 11-6 og ljóst að yfirburðir Akureyrarliðsins voru miklir. Arnar Fylkisson fór hamförum í markinu og í sóknarleiknum lék Arnór Þorri Þorsteinsson lausum hala og skoraði að vild.

Forystan jókst stöðugt og Valsmenn virtust ráðalausir þannig að átta mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 17-9 fyrir Akureyri. Arnar Fylkisson var þá kominn með 11 varin skot, þar af eitt vítakast auk þess að skora mark. Arnór Þorri skoraði 6 mörk og Birkir Guðlaugsson 5.

Þessi munur hélst framan af seinni hálfleik, reyndar slökuðu heimamenn nokkuð á klónni og Valsmönnum tókst að minnka muninn niður í fjögur mörk í stöðunni 23-19 en þá gáfu strákarnir vel í aftur og lokatölur öruggur sex marka sigur, 29-23.

Glæsileg frammistaða hjá strákunum sem sýndu að þeir eru til alls líklegir í 1. deildinni í vetur. Allir tóku þátt í leiknum og allflestir komust á blað í markaskoruninni.

Mörk Akureyrar: Arnór Þorri Þorsteinsson 6, Birkir Guðlaugsson 6 (3 úr vítum), Patrekur Stefánsson 6, Arnþór Finnsson 4, Vignir Jóhannsson 2, Arnar Fylkisson, Daði Jónsson, Hafþór Vignisson, Heimir Pálsson og Jóhann Einarsson 1 mark hver.
Arnar Fylkisson stóð í markinu allan tímann og varði 17 skot, þar af 1 vítakast.

Í liði Vals var línumaðurinn Sveinn Jose Rivera langatkvæðamestur með 8 mörk. Sigurvin Jarl Ármannsson 4, Markús Björnsson 3, Jökull Sigurðsson, Rökkvi Finnsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson 2 mörk hver, Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Egill Magnússon 1 mark hvor.


Hópurinn í dag: Aftari röð: Andri Snær Stefánsson þjálfari, Arnþór Finnsson, Hafþór Vignisson, Aron Tjörvi Gunnlaugsson, Benedikt Línberg, Jóhann Einarsson, Sigþór Jónsson, Arnór Þorri Þorsteinsson, Patrekur Stefánsson
Fremri röð: Birkir Guðlaugsson, Heimir Pálsson, Arnar Fylkisson, Vignir Jóhannsson, Kristján Garðarsson, Almar Jónsson, Daði Jónsson

Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.


Tengdar fréttir

Ungmennaliðið hefur leik á laugardaginn



16. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fyrsti leikur Ungmennaliðs Akureyrar

Það er svo sannarlega í mörg horn að líta hjá handboltaáhugamönnum á Akureyri þessa dagana. Fjörið byrjaði í gær með hörkuleik Akureyrar og Gróttu í Olís deild karla. Á laugardaginn er komið að fyrsta deildarleik Ungmennaliðs Akureyrar en liðið tekur þátt í 1. deild meistaraflokks karla. Á komandi tímabili reynir á nýlega samþykkt HSÍ um að liðum er heimilt að halda úti sérstökum ungmennaliðum í 1. deild. Almenna reglan segir að leikmenn mega ekki vera eldri en 23 ára en þó er heimilt að hafa tvo eldri.

Andri Snær Stefánsson er þjálfari Ungmennaliðs Akureyrar og þjálfar jafnframt 2. flokk. Ungmennaliðið tekur á móti Ungmennliði Vals og hefst leikurinn klukkan 14:00 á laugardaginn í Íþróttahöllinni.

Í dag, föstudag, fer fram annar leikur í 1. deildinni en þar mætast heimamenn í Hömrunum og HK. Það er ríkir mikil forvitni á að sjá leikmannahóp Hamranna en ýmsar sögur hafa gengið um liðskipan þeirra og jafnvel ýjað að þátttöku goðsagnakenndra leikmanna. En það kemur allt í ljós í kvöld klukkan 20:30 en leikurinn verður í KA heimilinu.

Á sunnudaginn á síðan meistaraflokkur Akureyrar útileik gegn ÍBV í Olís-deildinni og hefst hann klukkan 15:00 í Eyjum.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson