Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri-U vann karaktersigur á ÍBV-U - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Sjá tölfræði leiksins 
    Akureyri U - ÍBV U  26-25 (12-10)
1. deild karla
Víkin
fös. 13. jan. 2017 klukkan: 20:30
Dómarar: Bjarni Viggósson og Svavar Ólafur Pétursson
Umfjöllun

Arnór Þorri var funheitur í kvöld

13. janúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri-U vann karaktersigur á ÍBV-U
Ungmennalið Akureyrar mætti Ungmennaliði ÍBV í Víkinni í kvöld og vann góðan 26-25 sigur. Ákveðið var að báðir leikir liðanna yrðu spilaðir fyrir sunnan um helgina en liðin mætast aftur á morgun í Mosfellsbæ klukkan 12:00.

Strákarnir byrjuðu leikinn af krafti og náðu fljótt yfirhöndinni. Mikið af mörkum liðsins komu úr seinni bylgju og var varnarleikur liðsins góður. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 12-10 og útlitið gott.

En peyjarnir úr Eyjum komust betur í takt við leikinn er leið á síðari hálfleikinn og var leikurinn í járnum. Þeir brugðu á það ráð að taka Arnór Þorra Þorsteinsson úr umferð en Arnór hafði verið mjög skeinuhættur í sóknarleik Akureyrarliðsins.

Það tók smá tíma fyrir liðið að finna lausnir á varnarleik ÍBV liðsins með Arnór tekinn úr umferð en flottur karakter hélt leiknum í járnum.

Þegar ein mínúta lifði leiks leiddi Akureyri 25-24 og var með boltann. Eftir erfiða sókn þar sem höndin var komin upp brá Arnþór Gylfi Finnsson línumaður á það ráð að þruma að marki fyrir utan og boltinn fór rakleiðis í netið. Eyjamenn minnkuðu muninn en tíminn var ekki nægur og sætur 26-25 sigur staðreynd og liðið stekkur því upp í 8. sæti deildarinnar.


Glaðbeittur hópur eftir sigurinn á ÍBV-U.
Aftari röð frá vinstri: Arnþór Gylfi Finnsson, Daði Jónsson, Birkir Guðlaugsson, Jóhann Einarsson, Aron Tjörvi Gunnlaugsson, Benedikt Línberg Kristjánsson, Arnór Þorri Þorsteinsson, Andri Snær Stefánsson.
Fremri röð frá vinstri: Kristján Helgi Garðarsson, Garðar Már Jónsson, Páll Snævar Jónsson, Arnar Þór Fylkisson, Heimir Pálsson.

Mörk Akureyrar: Arnór Þorri Þorsteinsson 8, Garðar Már Jónsson 5, Jóhann Einarsson 4, Heimir Pálsson 3, Arnþór Gylfi Finnsson 2, Daði Jónsson 2, Benedikt Línberg Kristjánsson 1 og Birkir Guðlaugsson 1.
Arnar Þór Fylkisson stóð í markinu allan tímann og varði 16. skot.


Tengdar fréttir

Það er komið að uppgjöri þessara liða um helgina



13. janúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri-U og ÍBV-U mæta í Víkina
Ungmennalið Akureyrar heldur til Reykjavíkur í dag og leikur þar gegn Ungmennaliði ÍBV í 1. deild karla. Það varð að samkomulagi milli félaganna að liðin myndu mætast á hlutlausum velli og leika þar báða innbyrðisleiki sína í deildinni.

Leikurinn í dag fer fram í Víkinni og hefst klukkan 20:30 og telst vera heimaleikur Akureyrar. Á morgun, laugardag mætast liðin klukkan 12:00 að Varmá í Mosfellsbæ en sá leikur er heimaleikur ÍBV.

Við hvetjum þá stuðningsmenn Akureyrar sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu að kíkja á leikina og styðja okkar menn í baráttunni.

Staða liðanna í deildinni fyrir þessa leiki er þannig að Akureyri U er í 9. sæti með 9 stig eftir tólf leiki en ÍBV U er í 12. sæti með 2 stig eftir ellefu leiki.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson