Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri U með sigur á Mílunni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Sjá tölfræði leiksins 
    Akureyri U - Mílan  22-19 (12-8)
1. deild karla
Höllin Akureyri
Lau. 18. feb. 2017 klukkan: 13:30
Dómarar: Jóhann Gunnar Jóhannsson og Sævar Árnason
Umfjöllun

Ásgeir og Páll vörðu vel í dag



18. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri U með sigur á Mílunni
Ungmennalið Akureyrar tók á móti Mílunni í leik dagsins í 1. deild karla. Leikurinn fór rólega af stað, Akureyri komst í 2-0 en Mílan jafnaði í 2-2. Ásgeir Kristjánsson fór hreinlega hamförum í Akureyrarmarkinu, varði fyrstu sex skotin sem hann fékk á sig, þar á meðal eitt vítakast.
Sóknarmenn Akureyrar hefðu átt að geta nýtt sér þessa markvörslu betur en eftir að Mílan jafnaði bættu sóknarmenn Akureyrar heldur betur í og breyttu stöðunni í 11-3 og virtust Mílumenn ekki eiga möguleika í leiknum. Þeir gáfust þó ekki upp og náðu að minnka muninn í fjögur mörk 12-8 fyrir leikhlé.
Af þessum átta mörkum Mílunnar skoraði Atli Kristinsson fimm og óhætt að segja að hann beri uppi lið Mílunnar.
Ásgeir Kristjánsson hélt áfram stórleik sínum í Akureyrarmarkinu og varði alls 14 skot í fyrri hálfleik.

Nánast nýtt lið kom inná hjá Akureyri U í seinni hálfleik. Mílumenn leggja ekki beinlínis upp úr hröðum leik en seiglast ótrúlega og kunna sitt hvað fyrir sér í varnarleiknum. Einhvernvegin má segja að þeir hafi náð Akureyrarliðinu niður á sinn hægagang í sókninni sem varð fremur bitlaus.

Mílan náði að minka forskot Akureyrar niður í tvö mörk, 15-13 um miðjan seinni hálfleikinn. Í kjölfarið tók Akureyri leikhlé og Andri Snær þjálfari messaði yfir sínum mönnum og óhætt að segja að ekki hafi veitt af.

En það bar jú árangur, fjögur mörk í röð komu Akureyri aftur í þægilega stöðu, 19-13. Mílumenn náðu þó smáskorpu í lokin og lauk leiknum með þriggja marka sigri Akureyri U, 22-19.

Akureyrarliðið hefur oft spilað betur en í dag en góð tvö stig í húsi og markaskorunin dreifðist mikið. Strákarnir hafa trúlega verið með hugann við næsta verkefni 2. flokks sem er undanúrslitaleikur gegn Val í bikarkeppni 2. flokks á þriðjudaginn. Menn hugsanlega eitthvað að spara sig í dag, það var því ekki gott að Jóhann Einarsson þurfti að yfirgefa völlinn með hnémeiðsli. Vonandi verður hann þó orðinn leikfær á þriðjudaginn.

Mörk Akureyri U: Heimir Pálsson 4 (2 úr vítum), Arnþór Gylfi Finnsson 3, Birkir Guðlaugsson 3 (2 úr vítum), Vignir Jóhannsson 3, Garðar Már Jónsson 2, Jóhann Einarsson 2, Kristján Helgi Garðarsson 2, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1, Hafþór Már Vignisson 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark.
Ásgeir Kristjánsson stóð í markinu í fyrri hálfleik og varði 14 skot, þar af 1 vítakast. Páll Snævar Jónsson sá um markvörsluna í seinni hálfleik og átti sömuleiðis fínan leik, 9 varin skot og þar af 3 vítaköst. Þeir félagar virtust algjörlega með vítaskyttur Mílunnar sem fengu alls 9 vítaköst sem skiluðu þeim þó aðeins þrem mörkum.

Mörk Mílunnar: Atli Kristinsson 10, Einar Sindri Ólafsson 2, Hermann Guðmundsson 2, Hlynur Steinn Bogason 2, Eyþór Jónsson 1, Ómar Vignir Helgason 1 og Trausti Elvar Magnússon 1 mark.
Markverðir Mílunnar stóðu fyrir sínu, Hermann Guðmundsson varði sex skot í fyrri hálfleiknum og Bogi Pétur Thorarensen sömuleiðis sex í þeim seinni.

Í heildina skrýtinn handboltaleikur sem Mílumenn náðu að stjórna með sínum hæga og rólyndislega leik en þeir eiga hrós skilið fyrir léttan og skemmtilegan húmor fyrir leiknum.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson