Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Aftur var Brynjar Hólm markahæstur Akureyringa

19. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stórt tap gegn Íslandsmeisturum Hauka

Ekki er hægt að segja að Akureyri hafi hitt á óskastundina þegar liðið heimsótti topplið Hauka í Hafnarfjörðinn. Fyrstu tuttugu mínúturnar var leikurinn reyndar í þokkalegu jafnvægi leiksins og að þeim loknum var staðan 11-9 heimamönnum í vil. En síðustu tíu mínútur hálfleiksins urðu hrein martröð þar sem Haukar skoruðu sjö mörk án þess að Akureyri næði að svara fyrir sig og staðan í hálfleik því ógnvænleg 18-9.

Eins og tölurnar bera með sér þá fór hreinlega allt úrskeiðis, Giedreus sem kom þarna í mark Hauka hreinlega varði allt sem á markið kom, vítakast og önnur dauðafæri. Á móti fékk Akureyri fékk litla sem enga markvörslu í fyrri hálfleik eða samtals þrjú varin skot.

Úrslitin í raun ráðin og munurinn á liðunum hélst að mestu óbreyttur til leiksloka. Adam Haukur Baumruk fór fyrir Haukum í seinni hálfleiknum með sjö mörk og sá einkum um að auka forskot þeirra undir lokin upp í fjórtán mörk 34-20 sem urðu lokatölur leiksins.

Mörk Akureyrar: Brynjar Hólm Grétarsson 6, Kristján Orri Jóhannsson 5, Andri Snær Stefánsson 2 (1 úr víti), Igor Kopyshynskyi 2, Mindaugas Dumcius 2, Friðrik Svavarsson 1, Patrekur Stefánsson 1 og Róbert Sigurðarson 1.
Tomas Olason var með 8 varin skot og Arnar Þór Fylkisson 1 skot.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 7, Guðmundur Árni Ólafsson 4, Jón Þorbjörn Jóhannsson 4, Daníel Þór Ingason 3, Heimir Óli Heimisson 3, Tjörvi Þorgeirsson 3, Þórður Rafn Guðmundsson 3, Elías Már Halldórsson 2, Ivan Ivkovic 2, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 1, Giedrius Morkunas 1 og Hákon Daði Styrmisson 1.
Giedrius Morkunas reyndist erfiður í Haukamarkinu 14 varin skot, þar af 1 vítakast. Grétar Ari Guðjónsson stóð í Haukamarkinu fyrstu tuttugu mínúturnar og varði 2 skot.

Þetta er leikur sem leikmenn vilja örugglega gleyma sem fyrst en hann verður þá í leiðinni að verða mönnum víti til varnaðar því nú eru aðeins þrír leikir eftir í deildinni og það er einfaldlega lífsnauðsyn að ná nánast öllum stigunum út úr þeim.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson