Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sigþór Árni átti stórleik gegn Stjörnunni 2014

4. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Allt undir í Garðabænum í kvöld

Það ætti ekki að þurfa að minna á leikinn mikilvæga í kvöld og þá staðreynd að það er frítt í hópferð á leikinn sem fer frá Íþróttahöllinni klukkan 14:00. Þeir sem fara með rútunni fá þar að auki frítt inn á leikinn í Garðabænum.

Smelltu hér til að skrá þig í hópferðina!

Akureyri og Stjarnan hafa oft tekist vel á í leikjum sínum og oft gengið á ýmsu. Hér á eftir er sýnishorn frá leik liðanna þann 25. september árið 2014 í þriðju umferð Olís deildar karla. Akureyri var þá enn án sigurs og útlitið var ekki bjart þegar langt var liðið á seinni hálfleikinn og gestirnir leiddu með sex mörkum. En Akureyrarliðið sýndi gríðarlegan karakter, kom sér aftur inn í leikinn og vann að lokum fjögurra marka sigur.



Sigþór Árni Heimisson fór á kostum í þessum leik og skoraði 11 mörk. Aðrir af núverandi leikmönnum sem tóku þátt í þessum leik voru Kristján Orri Jóhannsson, Friðrik Svavarsson, Andri Snær Stefánsson, Sverre Andreas Jakobsson og Tomas Olason. Auk þeirra var Ingimundur Ingimundarson í leikmannahópnum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson