Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Öruggur sigur á Aftureldingu - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Tölfræði leiksins 
    Afturelding - Akureyri  23-29 (12-15)
N1 deild karla
Varmá
15. september 2007 klukkan: 16:00
Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Sigurjón Þórðarson
Umfjöllun

Goran átti fínan leik í dag

15. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

Öruggur sigur á Aftureldingu

Akureyri sigraði nýliða Aftureldingar örugglega, 29:23, í Mosfellsbæ í dag í fyrsta leik liðsins á Íslandsmótinu í vetur. "Það er mjög gott að byrja á sigri og við þurfum að fylgja þessu eftir í næsta leik á móti Fram fyrir norðan. Við þurfum að fá fólk til þess að fjölmenna á leikinn um næstu helgi vegna þess að með góðum stuðningi er allt hægt," sagði Rúnar Sigtryggsson annar þjálfara Akureyrarliðsins í samtali við Heimasíðuna.

Leikurinn í dag byrjaði mjög rólega, að sögn Rúnars. Afturelding ætlaði sér greinilega að spila hægt og beita löngum sóknum. Okkar menn féllu í þá gryfju að leika eins framan af leiknum, en síðari hluta fyrri hálfleiksins náði liðið að keyra upp hraðann, sýna sitt rétta andlit og hafði þriggja marka forskot í hálfleik, 15:12.

Afturelding byrjaði mun betur í seinni hálfleik og náði að jafna 17:17, en þá settu Akureyringar aftur í annan gír og náðu góðu forskoti sem þeir héldu allt til leiksloka.

"Liðið spilaði mjög vel á köflum, sóknarleikurinn gekk vel og við fengum góð færi; þó þau hafi ekki öll nýst þá gekk spilið vel. Vörnin var líka góð og markvarslan," sagði Rúnar. Hann nefndi sérstaklega Goran Gusic, en hann var markahæstur og stóð sig vel. Þá var Einar Logi mjög sterkur í fyrri hálfleiknum og Magnús Stefánsson í þeim seinni. Sveinbjörn Pétursson markvörður, Bubbi, stóð sig einnig mjög vel og varði 20 skot. "Það var sem sagt margt jákvætt í leik liðsins. Þessi leikur var skref í rétta átt," sagði Rúnar.

Mörk Akureyrar skiptust þannig: Goran 8/2, Andri Snær 5, Einar Logi 5 og Magnús Stefánsson 5, Jónatan Magnússon 3 og Rúnar gerði sjálfur 3 mörk.

Það er ánægjulegt að byrja á öruggum sigri og ekki síður að heyra hvað liðsheildin var góð. Frábærar fréttir líka að Jónatan skuli hafa getað beitt sér að fullu og skorað þrjú mörk. Hann er liðinu mikill styrkur og hans mikla keppnisskap á örugglega eftir að reynast liðinu dýrmætt. Þá er gott að sjá hvað Bubbi fer vel af stað, allir vita hvað í honum býr. Og Rúnar er greinilega ekki dauður úr öllum æðum; mörkin þrjú í dag voru hvert öðru glæsilegra að sögn!

Fyrsti heimaleikur vetrarins verður næsta laugardag, þegar Framarar koma í heimsókn. Þeir áttu að spila við ÍBV í Eyjum í dag en leiknum var frestað þar sem ekki var flogið. Leikurinn hefur verið settur aftur á á morgun.

Tengdar fréttir

Sendum góða strauma til strákanna

15. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

Baráttan hefst í Mosfellsbæ

Þá byrjar ballið! Fyrsti leikur Akureyrarliðsins í karlaflokki er í dag í Mosfellsbæ þar sem við mætum Aftureldingu. Okkar menn mæta galvaskir til leiks. Liðið varð í öðru sæti á opna Reykjavíkurmótinu um daginn en segja má að liðið hafi fengið skell með frammistöðunni á Kaffi Akureyrarmótinu um síðustu helgi. Liðið sigraði að vísu ÍR en gerði jafntefli við FH og frammistaðan var alls ekki nógu góð. ÍR og FH eru bæði í 2. deild Íslandsmótsins.

Mosfellingar eru nýliðar í deildinni, komu upp ásamt ÍBV í vor og fróðlegt verður að sjá hvernig þeim vegnar í vetur.

Því miður eru allar horfur á að okkur takist ekki að halda úti beinni lýsingu frá leiknum í dag.

Fyrstu leikir N1 deildar fóru fram í gærkvöldi og voru úrslitin athyglisverð. Íslandsmeistaraefni Stjörnunnar, sem hafa styrkt lið sitt mikið í sumar, unnu nauman sigur á HK 26:25 í Kópavogi og í Íslandsmeistarar Vals urðu að sætta sig við tap í fyrsta leiknum í Vodafone höllinni. Haukar mættu í heimsókn undir stjórn nýs þjálfara, Arons Kristjánssonar, og sigruðu með þriggja marka mun, 23:20.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson