Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Fram-Akureyri mfl. karla: slæmt tap - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Tölfræði leiksins 
    Fram - Akureyri  30-22 (12-8)
N1 deild karla
Framhús
18. nóvember 2007 klukkan: 16:00
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun

Sævar og Rúnar þurfa að rífa sína menn upp



19. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fram-Akureyri mfl. karla: slæmt tap

Okkar piltar fóru tómhentir úr Framhúsinu í Safamýrinni í gær. Reyndar skoruðu þeir fyrsta markið í leiknum en það var líka í eina skiptið sem þeir höfðu forystu í leiknum. Fram svaraði með næstu fjórum mörkum og leiddu allan fyrri hálfleikinn, náðu mest sex marka forystu 11-5 undir lok hálfleiksins en þá spýttu okkar menn í lófana, skoruðu næstu þrjú mörk og breyttu stöðunni í 11-8 en staðan í hálfleik var 12-8 Fram í vil.

Hörður Flóki stóð í markinu og átti prýðisgóðan leik með tólf skot varin.

Framan af seinni hálfleik hélst munurinn þrjú mörk var t.d. 16-13 en um miðjan síðari hálfleikinn kom skelfilegur kafli þar sem Fram gerði gjörsamlega út um leikinn, breyttu stöðunni úr 20-16 í 25-16 og lokatölurnar urðu síðan átta marka tap, 30-22.

Sævar Árnason, þjálfari var að vonum ósáttur með frammistöðuna og í Fréttablaðinu í dag er haft eftir honum: "Vörnin okkar og markvarsla voru fín í fyrri hálfleik, en sóknarlega vorum við sjálfum okkur verstir og ég ætla vona að mínir menn rífi sig upp. Við fengum fín færi til að koma okkur inn í leikinn þegar munurinn var aðeins þrjú mörk í seinni hálfleik, en eins og ég segi þá fórum við illa af ráði okkar og það er ekki hægt að tala um óheppni. Maður skapar sér sína heppni og við verðum að rífa okkur upp eftir þessa rassskellingu," sagði Sævar.

Mörkin skoruðu:
Magnús og Goran 7 hvor, Einar Logi 3, Þorvaldur 2, Andri, Ási og Heiðar 1 mark hver.

Hörður Flóki varði 17 bolta í leiknum.

Tengdar fréttir

Sævar hefur væntanlega ekki verið sáttur með leikinn í dag

18. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap í Safamýrinni gegn Fram

Leik Fram og Akureyrar í meistaraflokki karla er lokið með átta marka sigri Fram. Lokatölur í leiknum voru 30-22 Fram í vil eftir að þeir höfðu yfir í hálfleik 12-8. Magnús Stefánsson og Goran Gusic voru markhæstir okkar manna með sjö mörk hvor.


Frændurnir Ási og Dóri mætast í dag





18. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Fram í dag - ekki útsending

Í dag mætir karlalið Akureyrar Handboltafélags sterku liði Fram og fer leikurinn fram í Safamýrinni. Mótherjarnir sitja sem stendur í þriðja sæti deildarinnar, hafa unnið fimm leiki, gert eitt jafntefli og tapað tveim leikjum. Liðin mættust á Akureyri þann 22. september og lauk þeim leik með fjögurra marka sigri Fram þannig að okkar menn eiga harma að hefna í dag.

Eins og menn muna þá bættist Fram liðsauki um síðustu mánaðarmót þegar Halldór Jóhann Sigfússon gekk til liðs við þá eftir að hafa fengið sig lausan frá þýska liðinu Tusem Essen. Halldór er okkur að sjálfsögðu að góðu kunnur, uppalinn KA maður og lék síðast hér vorið 2005.

Það verður fróðlegt að fylgjast með viðureign frændanna og leikstjórnendanna í dag en þeir Halldór Jóhann og Ásbjörn Friðriksson eru náskyldir, nánar tiltekið er Halldór föðurbróðir Ása.

Við sendum okkar strákum baráttukveðjur og vonandi sýna þeir allar sýnar bestu hliðar í dag.

Því miður er ekki hægt að hafa beina útsendingu frá leiknum í dag!

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson