Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Dapurt tap gegn Val á laugardaginn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Tölfræði leiksins 
    Valur - Akureyri  37-29 (20-13)
N1 deild karla
Vodafone höllin
8. mars 2008 klukkan: 18:15
Dómarar:
Umfjöllun

Markverðirnir hafa sjaldan hlaupið eins og í þessum leik



10. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Dapurt tap gegn Val á laugardaginn

Það var algjört andleysi sem einkenndi okkar menn í leiknum gegn Val á laugardaginn og ljóst að þetta var leikur sem við viljum gleyma hið fyrsta. Valsmenn komu vel stemmdir til leiksins og náðu strax forystu 3-0 áður en okkar mönnum tókst að svara fyrir sig og náðu að jafna leikinn í 6-6 eftir rúmlega 11 mínútna leik. Þar með virtist allur vindur úr strákunum og Valsmenn tóku öll völd á vellinum og leiddu með sjö mörkum, 20-13 í hálfleik.

Vissulega vantaði mikilvæga pósta í liðið, Einar Logi og Nikolaj tóku út leikbönn, Heiðar Þór handarbrotinn og þótt Andri Snær kæmi inná eftir tæplega 20 mínútna leik er ljóst að hann gat ekki beitt sér af fullum krafti. Það er samt engin afsökun fyrir því að mæta ekki í leikinn til þess að berjast og hafa trú á að menn eigi erindi í leikinn.

Yfirburðir Valsmanna héldu áfram í síðari hálfleik sem verður helst minnst fyrir þá tilraunastarfsemi þjálfara AKureyrar að leika mestallan hálfleikinn með sjö manns í sókn, þ.e.a.s. taka markmanninn útaf og setja þess í stað aukamann í sóknina. Þetta býður reyndar þeirri hættu heim að ef boltinn tapast þá er enginn til varnar í markinu og fengu Valsmenn þónokkur ódýr mörk með því að grýta boltanum í tómt markið.

Valsmenn náðu mest tíu marka forystu 36-26 þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en strákunum tókst að rétta sinn hlut lítillega í lokin þannig að tapið varð aðeins átta mörk í lokin 37-29.

Eins og áður segir þá var þetta einhver daprasti leikur liðisins í vetur og vonandi að menn komi þess í stað dýrvitlausir í heimaleikinn gegn Stjörnunni á þriðjudagskvöldið og sýni stuðningsmönnum liðisins hvernig á að spila handbolta.

Tengdar fréttir

Vörnin verður vonandi í góðu lagi í leik dagsins

8. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Meistarafl. karla - Valur Akueyri - Bein lýsing

Í dag klukkan 18:15 mæta strákarnir í meistaraflokki Íslandsmeisturum Vals í N1 deildinni og fer leikurinn fram í Vodafonehöllinni. Það er skarð fyrir skildi hjá okkar mönnum þar sem Einar Logi Friðjónsson og Nikolaj Jankovic taka báðir út leikbann og verða því fjarri góðu gamni. Sömuleiðis eru ákveðin vandræði með vinstra hornið þar sem Heiðar Þór Aðalsteinsson er ekki leikhæfur vegna handarbrots og Andri Snær er ekki orðinn heill eftir rifbeinsbrot. Það kemur í ljós í dag hvernig úr því rætist.

Okkar maður verður á staðnum og því munum við geta boðið upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni. Að sjálfsögðu hvetjum við alla velunnara liðsins stadda á höfuðborgarsvæðinum til að mæta og hvetja strákana en við sem heima sitjum getum fylgst með lýsingunni hér á síðunni.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 18:15 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson