Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Stórsigur Akureyrar á ÍBV í dag - uppfært - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Tölfræði leiksins 
    ÍBV - Akureyri  28-43 (15-22)
N1 deild karla
Vestmannaeyjar
15. mars 2008 klukkan: 15:00
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun

Öruggur sigur hjá Einari Loga og félögum





15. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stórsigur Akureyrar á ÍBV í dag - uppfært

Akureyri gerði góða ferð til Vestmannaeyja í dag og vann stóran útisigur 43-28. Þetta er þar með stærsti sigur liðsins á tímabilinu. Fyrsta stundarfjórðunginn var yfirleitt jafnt á öllum tölum alveg upp í stöðuna 8-8. Sveinbjörn byrjaði í markinu en komst ekki í takt við leikinn þannig að Arnar Sveinbjörnsson kom í markið og átti fínan leik. Þegar hér var komið sögu setti Akureyri í gírinn og náði fimm marka forystu, 9-14 og þar með varð mótstaða Eyjamanna lítil. Í hálfleik leiddi Akureyri með sjö mörkum 15-22.

Yfirburðir Akureyrar héldu áfram og munurinn jókst jafnt og þétt, allir leikmenn í hópnum fengu að spreyta sig og í raun skipti engu hverjir voru inná allir skiluðu sínu frábærlega þannig að í leikslok var munurinn fimmtán mörk, 28-43.

Þorvaldur Þorvaldsson skoraði mark sem trúlega er eitt það magnaðasta á löngum ferli hans. Sú sókn var búin að vera löng, höndin komin upp og endalaus aukaköst þar til boltinn barst til Valda sem var langt utan við punktalínu en lét vaða á markið og boltinn þandi netmöskvana án þess að markvörðurinn sæi boltann nokkurntíma. Valdi fagnaði að sjálfsögðu með því að taka flugvélafagnið sitt til baka og segja sjónarvottar að krafturinn í fluginu hafi verið engu minni en í skotinu sjálfu.

Mörk Akureyrar skoruðu:
Einar Logi Friðjónsson 6, Jónatan Þór Magnússon 6, Magnús Stefánsson 5, Ásbjörn Friðriksson 5, Oddur Grétarsson 5, Goran Gusic 4, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Andri Snær Stefánsson 3, Þorvaldur Þorvaldsson 2, Arnar Már Bjarnason 2 og Björn Óli Guðmundsson 1.

Eftir leikinn birti VefTíví viðtöl við þá Jónatan Magnússon og Rúnar Sigtryggsson, hægt er að skoða viðtölin með því að smella á nöfn þeirra hér að framan.

Nú þegar þriðja umferð N1 deildarinnar er búin ætti deildarsætið að vera nokkuð tryggt, þó ekkert sé öruggt ennþá. Það er búinn að vera góður stígandi í liðinu eftir áramótin og nú þarf bara að fylgja þessu eftir í síðustu umferðinni. Næsti leikur er heimaleikur gegn Aftureldingu þann 30. mars og með sigri í þeim leik ætti deildarsætið að vera nokkurnveginn gulltryggt.

Tengdar fréttir

Óskum Jónatan góðs gengis í Eyjum í dag

15. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: ÍBV - Akureyri

Í dag klukkan 15:00 leikur meistaraflokkur karla gegn ÍBV í eyjum. Strákarnir fljúga í hádeginu til Eyja og væntanlega aftur heim srax eftir leik. Liðin hafa mæst tvívegis í vetur, fyrst í Eyjum þann 31. október. Þá var jafnræði með liðunum í annan fyrri hálfleikinn en í síðari hálfleik tóku strákarnir öll völd í leiknum og unnu níu marka sigur 26-35.

Jónatan Magnússon mun trúlega seint gleyma þeim leik en í upphafi leiksins hné Jónatan niður og var fluttur á sjúkrahúsið í Eyjum og var þar til rannsóknar fram á næsta dag. Sjá umjöllun um leikinn í Eyjum.

Liðin mættust svo aftur hér á Akureyri 15. desember og þá vann Akureyri stórsigur 40-26. Sjá umjöllun um leikinn á Akureyri.

Þrátt fyrir þessa leiki verða menn að vera á tánum því Eyjamenn eru til alls líklegir og eru svo sannarlega sýnd veiði en ekki gefin.

Við reiknum ekki með því að geta boðið upp á okkar hefðbundnu lýsingu frá leiknum í dag og vitum ekki hvað Eyjamenn gera en þeir hafa oft boðið upp á útvarpslýsingu frá leikjum í Eyjum. Því miður eru engar upplýsingar á vef ÍBV um það hvort þeir lýsa leiknum í dag en bendum á eftirfarandi link svona upp á von og óvon.

Það er nauðsynlegt að hafa hátalara tengda tölvunni til að fylgjast með.

Til að fylgjast með lýsingunni skaltu fyrst smella hér http://www.ibvfan.is og vinstra megin á síðunni er myndin sem væntanlega opnar lýsinguna. Ef af lýsingunni verður þá hefst hún væntanlega korter fyrir leik eða klukkan 14:45.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson