Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyrarsigur gegn HK í mögnuðum leik - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - HK  26-25 (13-11)
N1 deild karla
KA heimilið
13. apríl 2008 klukkan: 16:00
Dómarar: Jónas Elíasson og Sigurjón Þórðarson
Umfjöllun

Sveinbjörn sýndi markvörslu í landsliðsklassa gegn HK





14. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyrarsigur gegn HK í mögnuðum leik

Það var svo sannarlega líf og fjör í KA heimilinu þegar Akureyri og HK mættust í fjórða sinn í N1 deildinni. Lið Akureyrar kom gríðarlega vel stemmt í leikinn og greinilegt að leikmenn ætluðu að hafa gaman að hlutunum sem sást strax í leikmannakynningunni þar sem þeir fögnuðu vel hverjum öðrum. Baráttan skein líka af liðinu, vörnin byrjaði með miklum látum og Sveinbjörn í sínum albesta ham fyrir aftan hana. Akureyri náði 3-1 forystu í byrjun en HK nær að jafna og komst reyndar einu sinni yfir í leiknum 5-6. Þá tók Akureyri góðan kipp, Jónatan og Goran setja upp glæsilegt sirkusmark sem kveikti heldur betur í mannskapnum og í kjölfarið breyttist staðan í 9-6 Akureyri í vil. Mestur varð munurinn fjögur mörk í fyrri hálfleik 11-7 og 12-8 en HK mönnum tókst að klóra í bakkann þannig að í hálfleik var munurinn aðeins tvö mörk 13-11.

Eins og áður segir var stemmingin og baráttan í liðinu aldeilis frábær, Sveinbjörn átti stórbrotinn leik og var búinn að taka 17 skot, mörg þeirra úr algjörum dauðafærum. Eitt víti hirti hann og virtist búinn að taka HK menn á taugum því að næstu tvö víti þeirra fóru víðsfjarri markinu. Þá átti Einar Logi frábæran fyrri hálfleik, skoraði fimm mörk og vantaði ekkert upp á kynþokkann þar.

Akureyri virtist hafa örugg tök á leiknum í síðari hálfleik og hélt yfirleitt fjögurra marka forystu, þó var munurinn mestur fimm mörk 22-17. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka tóku HK menn þó við sér og náðu að minnka forskotið niður í tvö mörk 22-20, þeir geta helst þakkað markverði sínum, Birni Ingi Friðþjófssyni, að vera enn inni í leiknum því hann reyndist Akureyringum býsna erfiður og tók mikinn fjölda dauðafæra bæði af línunni og hraðaupphlaup.

Þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af leiknum fékk HK vítakast og tókst Ragnari Hjaltested að rugla Arnar markvörð gjörsamlega þannig að hann var lagstur í gólfið en Ragnar skaut svo í kjölfarið vel yfir autt markið. Á einhvern óskiljanlegan hátt virtist innri dómarinn hafa misst jafnvægið líka því að hann dæmdi að vítið skyldi endurtekið og þá skoraði Ragnar og munurinn aðeins orðinn eitt mark 23-22.

Lokamínúturnar urðu svo æsispennandi en Jónatan Magnússon leiddi sína menn af öryggi til sigurs en hann skoraði síðustu fjögur mörk liðsins sem uppskar sanngjarnan sigur 26-25.

Liðið allt á hrós skilið fyrir fínan leik og er á fínu róli, eiginlega synd að ekki skuli vera meira eftir af N1-deildinni því að eins og liðið er að leika þessa dagana þá ætti það tvímælalaust að vera að berjast meðal efstu liðanna.

Sveinbjörn átti eins og áður segir frábæran leik og er að öðrum ólöstuðum tvímælalaust maður leiksins með 25 til 27 skot varin, spurning hvort Guðmundur landsliðsþjálfari þurfi ekki að fara að gefa honum gaum. Þá átti Jónatan magnaðan leik, öryggið uppmálað í vítaköstunum og mataði sína menn með snilldarsendingum.

Hægt er að horfa á upptöku RÚV af leiknum hér á síðunni næstu tvær vikurnar ( reyndar vantar hjá þeim síðustu fjórar mínúturnar).

Tengdar fréttir

Ný ásýnd markvarða Akureyrar Handboltafélags



14. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Smá samsláttur hjá Fréttablaðinu

Fréttablaðið fjallar að sjálfsögðu um leik Akureyrar og HK frá því í gær. Eins og gefur að skilja er fjallað um framgöngu Sveinbjarnar í markinu og fylgir með ljósmynd af honum. Sveinbjörn hefur reyndar stundum ruglað okkur í ríminu með því að breyta um hárgreiðslu þegar minnsts varir og satt að segja birtist algjörlega ný útgáfa af honum í Fréttablaðinu. Reyndar hefur einhver samsláttur orðið í myndabanka Fréttablaðsins því glaðbeitti markvörðurinn á myndinni er nefnilega ekki Sveinbjörn heldur Siguróli sem einnig klæðist markvarðartreyju Akureyrar við og við.

Hér sjáum við nýtt útlit Sveinbjarnar eins og það birtist í Fréttablaðinu



Leikurinn er í beinni útsendingu

13. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - HK - bein útsending frá leiknum

Í dag klukkan 15:00 er stórleikur í N1 deildinni þegar Akureyri Handboltafélag og HK mætast í KA heimilinu. Tveir leikmenn Akureyrar, Ásbjörn Friðriksson og Nikolaj Jankovic verða fjarri góðu gamni þar sem þeir taka út leikbann.

Að þessu sinni verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu og þannig að í stað okkar hefðbundu textalýsinga verður opinn sjónvarpsgluggi hér á meðan leikurinn stendur yfir og einfaldlega hægt að fylgjast með útsendingunni hér. Athugið að útsendingin hefst klukkan 14:50.



Ef glugginn virkar ekki þá er hægt að smella hér til að fara beint á vef RUV.


Sjónvarpsleikur sendur út frá Akureyri

8. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

KEA býður öllum á leik Akureyrar og HK á sunnudag

Það verður sannkallaður stórleikur í N1-deild karla á sunnudaginnn þegar Akureyri fær HK í heimsókn. KEA hefur ákveðið að bjóða öllum á leikinn og því ástæða til að hvetja alla til að mæta á leikinn sem hefst klukkan 15:00 í KA heimilinu. Það ber jafnframt til tíðinda að sjónvarpið verður með beina útsendingu frá leiknum og því mikilvægt að Akureyringar sýni þjóðinni raunverulega heimaleikjastemmingu eins og hún getur best verið.

Liðin mættust síðast í Kópavogi og sá leikur endaði með jafntefli eftir mikinn darraðardans á lokasekúndunum. Ekki var spennan minni þegar liðin mættust hér á Akureyri í nóvember en þá fór HK með eins marks sigur eftir að Akureyri átti skot í stöng og út á lokasekúndu leiksins.

KEA hefur ákveðið að bjóða öllum sem vilja á leikinn þannig að ekkert ætti að vera að vanbúnaði að drífa sig á staðinn og sjá alvöru handbolta.

Svo sakar ekki að nefna að kynþokkafyllsta hægri skytta handboltans verður að sjálfsögðu á staðnum og leikur allar sínar bestu listir.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson