Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Jafntefli hjá Akureyri og Fram í æsispennandi leik - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2008-09

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Fram  21-21 (11-12)
N1 deild karla
Íþróttahöllin
5. febrúar 2009 klukkan: 19:30
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson
Umfjöllun

Hafþór var frábær í markinu í kvöld

5. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jafntefli hjá Akureyri og Fram í æsispennandi leik

Það var ekki laust við að menn væru að fara á límingunum á lokamínútum leiks Akureyrar og Fram í kvöld. Taugarnar voru þandar til hins ítrasta hjá leikmönnum, þjálfurum og dómurum en eftir mikla dramatík lauk leiknum með jafntefli 21-21 þar sem Fram skoraði síðasta mark leiksins úr vítakasti.

Í upphafi leit reyndar ekki út fyrir að yrði mikið skorað í leiknum, markverðir beggja liða skelltu í lás þannig að fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en eftir átta mínútna leik. Markverðirnir áttu eftir að vera á aðalhlutverkum það sem eftir var, Hafþór Einarsson var í einu orði sagt frábær í marki Akureyrar og sýndi alla sína bestu takta og varði um 25 skot og þar af þrjú vítaköst.

Fram hélt frumkvæðinu í leiknum og náðu mest þriggja marka forystu 3-6 eftir fimmtán mínútna leik en með glæsilegum kafla náði Akureyri að jafna í 7-7 en eftir það var jafnt á öllum tölum fram að hálfleik en Fram leiddi 11-12 í hálfleik. Eins og áður segir var Hafþór frábær í vörninni en í sókninni var Andri Snær funheitur og skoraði 6 mörk í hálfleiknum. Aðrir markaskorarar voru Hreinn 2 og Goran, Jónatan og Oddur 1 mark hver.

Fram hóf seinni hálfleik með marki en Akureyri svaraði með þrem mörkum og komst í fyrsta sinn yfir í leiknum í stöðunni 14-13. Baráttan hélt áfram og jafnt á öllum tölum upp í 17-17 þar sem markverðirnir Hafþór og Davíð fóru hamförum og lítið skorað. Goran Gusic sem lék í hægra horninu skoraði því næst tvö glæsimörk úr hægra horninu og Akureyri komið með tveggja marka forystu 19-17 í fyrsta sinn í leiknum og aðeins sjö mínútur eftir af leiknum.

Fram jafnar úr hröðum sóknum og allt á suðupunkti í Höllinni. Á næstu andartökum hélt Akureyri frumkvæðinu en Fram jafnaði jafnharðan, síðast í 21-21 úr vítakasti og einungis tæp mínúta til leiksloka og Akureyri manni færri. Ekki tókst þó að koma tuðrunni í netið en segja má að daprir dómarar leiksins hafi farið á kostum á síðustu sekúndunum en þá varð mikil rekistefna um hvort liðið ætti boltann þegar einungis 4 sekúndur voru eftir af leiktímanum. Eftir miklar vangaveltu dæmdu þeir að Akureyri ætti aukakast, við lítinn fögnuð Viggós þjálfara Fram en þeirri rimmu lauk með því að nýliðinn Ásgeir Jóhann Kristinsson braust inn í Fram vörnina og fékk aukakast um leið og leiktíminn rann út. Úr aukakastinu varð ekkert og jafntefli því niðurstaðan.

Það var allt annað að sjá til Akureyrarliðsins nú heldur en í síðustu leikjum, vörnin var frábær og markvarsla Hafþórs hreint mögnuð. Liðið er greinilega búið að finna taktinn á ný og stefnan einungis uppávið.

Hafþór var tvímælalaust besti maður liðsins í dag og virkilega gaman að sjá hann stíga upp. Andri Snær var yfirburðamaður í sókninni í fyrri hálfleik en hefði mátt fá fleiri leikmínútur í seinni hálfleik.

Mörk Akureyrar: Andri Snær 7, Goran 4 (1 víti), Hreinn og Oddur 3 mörk hvor, Hörður Fannar 2 og Anton og Jónatan sitt markið hvor.

Dómarar leiksins þeir Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson áttu ekki sinn besta dag og vægast sagt orkuðu margir dómar þeirra tvímælis og heimamenn langt frá því að vera sáttir við störf þeirra.

Leikurinn var að sjálfsögðu í beinni lýsingu á síðuni og hér er hægt að skoða gang leiksins í smáatriðum.

Eftir leiki dagsins hækkar Akureyri um eitt sæti á kostnað HK en bæði liðin hafa 13 stig en Akureyri hefur betra markahlutfall í leikjunum við HK og því situr Akureyri í 5. sæti deildarinnar en HK í 6. sætinu.

Annars er staðan í deildinni sem hér segir:
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Haukar141004408 : 3525620:8
2. Valur14833390 : 3345619:9
3. Fram14734383 : 382117:11
4. FH14725417 : 413416:12
5. Akureyri14617355 : 379-2413:15
6. HK14536369 : 382-1313:15
7. Stjarnan14338344 : 376-329:19
8. Víkingur142111355 : 403-485:23

Tengdar fréttir

Tryggir áhorfendur sem aldrei bregðast

11. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Áhorfendur og dómarar í leik Akureyrar og Fram - myndir

Þórir Tryggvason sendi okkur heilmikið af myndum frá leik Akureyrar og Fram á fimmtudaginn þar sem áhorfendur eru í meginhlutverkum auk fánabera og dómara. Það er ekki að spyrja að stuðningsmönnum Akureyrar sem halda uppi stemmingu á öllum leikjum.

Smelltu hér til að skoða allar myndirnar.


Skyrdrykkurinn vakti lukku hjá áhorfendum

8. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

MS kynnti KEA skyrdrykk á leik Akureyrar og Fram

Það verður stöðugt meira ævintýri að koma á handboltaleik á Akureyri. Í tengslum við tvíleikinn síðastliðinn fimmtudag voru ekki bara tónleikar með Hvanndalsbræðrum heldur var áhorfendum boðið upp á að gæða sér á skyrdrykk frá Mjólkursamsölunni. Um er að ræða KEA skyrdrykk sem framleiddur er af MS á Akureyri og fæst að sjálfsögðu í verslunum um land allt.

Áhorfendur létu ekki ganga á eftir sér og þáðu KEA skyrdrykkinn með þökkum. og færum við Mjólkursamsölunni bestu þakkir fyrir framtakið.


Voru sumir kannski að smakka KEA skyrdrykkinn í fyrsta sinn?


Áhorfendur alsælir með skyrdrykkinn í hönd á tónleikum með Hvanndalsbræðrum



Bræðurnir stóðu svo sannarlega fyrir sínu

6. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvanndalsbræður fóru á kostum í Höllinni í gær

Það voru snillingarnir í Hvanndalsbræðrum sem gáfu tóninn fyrir leik Akureyrar og Fram í gær. Áhorfendur kunnu svo sannarlega að meta framlag þessara hressu bræðra og er þeim hér með færðar bestu þakkir fyrir framlag þeirra til skemmtunarinnar.

Þórir Tryggvason sendi okkur slatta af myndum frá spilamennsku Hvanndalsbræðra og er hægt að skoða myndirnar hér.

Einnig er rétt að vekja athygli á skemmtilegri heimasíðu Hvanndalsbræðra þar sem hægt er að fylgjast með því sem er efst á baugi hjá þeim.


Hafþór er klár í slaginn í dag

5. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Fram í beinni textalýsingu

Þá er komið að leikdegi hjá Akureyri Handboltafélagi. Að þessu sinni taka strákarnir á móti Safamýrarpiltunum í Fram og er að vanda leikið í Íþróttahöllinni.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu ætlum við að bjóða stuðningsmönnum sem ekki eiga heimangegnt á leikinn upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún rétt fyrir leik.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Handboltinn tekur á móti liðsmönnum Viggós

3. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stórleikir í handboltanum og körfunni á fimmtudaginn

Á fimmtudaginn verður einn stærsti dagurinn í íþróttalífi Akureyringa. Þá hittist þannig á að það er heimaleikur bæði í handboltanum og í körfuboltanum. Það hefur orðið að samkomulagi á milli Akureyrar Handboltafélags og körfuknattleiksdeildar Þórs að gera úr þessu sameiginlega íþróttahátíð sem við köllum Tvíleikur í Höllinni og stendur frá klukkan 17:30 til 21:00.

Körfuknattleikurinn byrjar klukkan 17:30 en þar tekur Þór á móti Grindvíkingum sem eru í öðru sæti Íslandsmótsins. Þetta verður fyrsti heimaleikur hjá nýjum leikmanni Þórs, Daniel Bandy en liðið hefur glímt við mikil meiðsli lykilleikmanna og veitir ekki af öllum hugsanlegum stuðningi í erfiðri stöðu í Iceland Express deildinni.

Klukkan 19:30 hefst svo leikur Akureyrar Handboltafélags gegn Fram í N1-deildinni. Þetta er síðasti leikurinn í annarri umferð mótsins en staða liðanna að honum loknum ræður hvernig heimaleikir og útileikir raðast í þriðju umferð deildarinnar.

Á milli leikjanna verða tónleikar með hinum óviðjafnanlegu Hvanndalsbræðrum og má gera ráð fyrir að þeir spili frá ca. klukkan 18:45 til 19:20.

Áhorfendur fá sem sagt tvo leiki á verði eins og frábæra tónleika í kaupbæti þar sem sami miði gildir á báða leikina. Ársmiðahafar og meðlimir stuðningsmannaklúbba fá að sjálfsögðu frítt á báða leikina. Sömuleiðis fá allir handboltaiðkendur hjá KA og Þór svo og iðkendur körfuboltans hjá Þór boðsmiða sem gildir á báða leikina. Boðsmiðunum verður dreift til krakkanna á æfingum í vikunni og jafnframt verða fríar rútuferðir frá Síðuskóla í Höllina. Þjálfarar krakkanna munu kynna fyrirkomulag ferðanna á æfingum.

Að öðru leiti verður allt með hefðbundnu sniði, stuðningsmannaklúbbur körfuboltans (6. maðurinn) verður með sitt hefðbundna kaffi í hálfleik körfuboltans og stuðningsmannaklúbbur Akureyrar Handboltafélags verður með mat fyrir sína meðlimi fyrir handboltaleikinn og kaffiveitingar í hálfleik.

Það er trú okkar að þetta verði hin besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Bæði lið eru staðráðin í að leggja allt í sölurnar til að komast á sigurbraut á ný.

Akureyri og Fram mættust á útivelli þann 6. nóvember og þar sýndi Akureyrarliðið allar sínar bestu hliðar og vann góðan sigur á heimamönnum.

Í Fram-liðinu leika tveir Akureyringar en það eru leikstjórnendurnir Halldór Jóhann Sigfússon sem lengst af lék með KA og Guðmundur Freyr Hermannsson sem lék með Akureyrarliðinu fyrsta tímabilið. Þriðji Akureyringurinn í Framliðinu, Magnús Stefánsson frá Fagraskógi varð fyrir því óláni að fingurbrotna í síðasta leik en hann var einmitt nýkominn til leiks á ný eftir brot á sama fingri. Þá er rétt að gefa landsliðsmanninn Rúnari Kárasyni gætur en hann leikur með Fram liðinu en er á leið í þýska boltann eftir tímabilið hér.

Bæði Akureyri og Fram fengu slæma útreið í síðustu umferð og munu því örugglega berjast af fullum krafti á fimmtudaginn því slagurinn um að verða í einu af fjórum efstu sætum deildarinn og þar með að komast í úrslitakeppnina er allsráðandi þessa dagana.


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson