Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Ströggl gegn Gróttu en dýrmæt stig í hús - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Grótta - Akureyri  25-29 (10-14)
N1 deild karla
Seltjarnarnes
Fim 16. febrúar 2012 klukkan: 18:30
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson
Umfjöllun

Oddur fór á kostum og skoraði 11 mörk í kvöld

16. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ströggl gegn Gróttu en dýrmæt stig í hús

Það hafa trúlega margir átt von á auðveldum stigum Akureyringa í kvöld gegn botnliði Gróttu. Það virtist reyndar stefna í góðan sigur í fyrri hálfleik en Gróttumenn sýndu svo sannarlega klærnar og jöfnuðu leikinn. Akureyri tók þá leikinn í sínar hendur og landaði fjögurra marka sigri.
Hér fer á eftir umfjöllun Guðmundar Egils Gunnarssonar, fréttaritara sport.is um leikinn.

Það var töluvert mikill hraði í leik beggja liða strax frá upphafi og virtist sem hvorugt liðið réði almennilega við þann hraða. Bæði lið gerðu þónokkur tæknimistök og fátt um fína drætti í leiknum. Akureyringar byrjuðu skrefinu á undan en heimamenn létu þá aldrei úr augsýn. Oddur Gretarsson fór illa með vörn Gróttu á köflum og var Lárus Helgi Ólafsson, markvörður Gróttu, allt annað en sáttur við varnarvinnu sinna manna. Akureyringar náðu mest tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Gróttu tókst að jafna leikinn 9-9 eftir að Lárus Helgi hafði varið vítakast Bjarna Fritzsonar. Atli Hilmarsson tók þá leikhlé, þegar sex mínútur voru til hálfleiks, enda allt annað en sáttur með leik Akureyringa. Leikhléið virtist skila tilætluðum árangri því gestirnir skoruðu fimm mörk gegn einu marki heimamanna það sem eftir lifði hálfleiksins. Staðan 10-14 í hálfleik í tilþrifalitlum leik.

Þorgrímur Smári Ólafsson var markahæstur heimamanna í fyrri hálfleik með þrjú mörk en Oddur Gretarsson gerði fimm fyrir Akureyringa. Lárus Helgi Ólafsson varði níu skot í marki Gróttu en Sveinbjörn Pétursson tíu á hinum endanum.

Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks og virtist allt stefna í svipaðan leik og þegar liðin mættust fyrir viku síðan. Hörður Fannar Sigþórsson, línumaður Akureyringa, fékk hins vegar að líta beint rautt spjald fyrir að hrinda leikmanni Gróttu inn í vítateiginn þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Þetta virtist gefa heimamönnum byr undir báða vængi og tókst þeim að minnka muninn niður í tvö mörk, 19-21, þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. Með ótrúlegum herkjum og dugnaði tókst heimamönnum að jafna leikinn 22-22 og skyndilega komin fín stemning í húsið þar sem áhorfendur létu vel í sér heyra. Þá vöknuðu gestirnir aftur til lífsins eftir að hafa tapað niður sex marka forskoti og skoruðu næstu fjögur mörk leiksins og drápu talsvert niður stemninguna. Grótta hafði þó ekki gefist upp og tókst að minnka muninn í tvö mörk á nýjan leik áður en Jóhann Gísli Jóhannesson gerði sig sekan um barnaleg mistök og fékk tvisvar sinnum tvær mínútur og þar með rautt spjald þegar hann sparkaði vatnsbrúsa inn á völlinn. Hann lét það ekki duga og kastaði öðrum vatnsbrúsa inn á völlinn úr stúkunni í næstu sókn og var þar með vísað út úr húsi. Akureyringar sigldu því torsóttum 25-29 sigri í hús.

Mörk Gróttu: Þorgrímur Smári Ólafsson 6, Vilhjálmur Geir Hauksson 4, Benedikt Reynir Kristinsson 3, Þórir Jökull Finnbogason 3/3, Jóhann Gísli Jóhannesson 3, Ágúst Birgisson 2, Aron Valur Jóhannsson 2, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 14/1, Kristján Ingi Kristjánsson 1.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 11, Bjarni Fritszon 5/1, Daníel Einarsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Geir Guðmundsson 3, Heimir Örn Árnason 1, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1, Bergvin Gíslason 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 15.


Oddur skorar í leiknum í kvöld. Mynd: Eyjólfur Garðarsson sport.is


Tengdar fréttir

Oddur var kátur með stigin í leiknum

20. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik Gróttu og Akureyrar og myndir frá leiknum

Akureyri þurfti að hafa fyrir sigrinum á Gróttu síðastliðinn fimmtudag. Oddur Gretarsson átti stórleik og skoraði 11 mörk fyrir Akureyri. Blaðamenn sport.is og mbl.is ræddu við kappann eftir leikinn. Byrjum á viðtali Stefáns Hirst Friðrikssonar hjá sport.is:

Oddur: Er að komast í gang aftur

„Þetta var erfiður leikur hérna í kvöld. Við vorum lengi af stað og náðum okkur í rauninni aldrei almennilega á strik. Það var einhver deyfð yfir þessu hjá okkur, engin stemmning í húsinu og við þurftum að rífa okkur sjálfir í gang. Við náðum þessum tveimur til þremur ágætu köflum í leiknum en þeir gerðu útslagið fyrir okkur,“ sagði Oddur.
Oddur spilaði virkilega vel eftir tiltölulega dapurt gengi að undanförnu og var hann ánægður með sína frammistöðu í leiknum „Þetta gekk vel í dag. Ég er búinn að vera í smá lægð, náttúrulega búinn að vera að spila nýja stöðu og svona en ég er allur að koma til. Ég er að finna mig bara nokkuð vel á miðjunni.
Þetta voru tvö gríðarlega mikilvæg stig fyrir okkur erum við bara ánægðir með sigurinn. Við stefnum að sjálfsögðu á úrslitakeppnina og eru þessi sigur því bara ánægjulegur,“ sagði Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyri að lokum.


Oddur skorar eitt af 11 mörkum sínum í leiknum

Ólafur Már Þórisson blaðamaður mbl.is ræddi einnig við Odd

Oddur: Vorum á rassinum í byrjun

„Við vorum á rassinum til að byrja með og í raun var einhver deyfð yfir þessum leik. Það voru svona 26 manns í húsinu þannig að maður þurfti sjálfur að rífa sig í gang. Við vorum lengi að því og náðum því í raun eiginlega aldrei fyrir utan tvo til þrjá kafla sem gerðu eiginlega gæfumuninn,“ sagði Oddur og sagðist vara hafa upplifað eins lélega stemningu frá því hann var í 2. flokki.

„Mér finnst það skrítið þar sem Grótta er með ungt og efnilegt lið ásamt því að þetta er stórt félag og með góða yngri flokka.“

Hann sagði stigin tvö mikilvæg þótt margt þyrfti að laga. Spurður hvort það hafi haft einhver áhrif að liðin voru að mætast í annað skiptið á einni viku sagði Oddur: „Það á ekki að skipta máli. Það gæti þó vel verið en þeir eru að sjálfsögðu líka að spila aftur við okkur. Þannig að það ætti ekki að hafa áhrif.“

Hér er hægt að skoða syrpu af myndum Eyjólfs Garðarssonar (sport.is) frá leiknum.


Oddur og félagar verða á Seltjarnarnesi í kvöld

16. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Útileikur gegn Gróttu - í beinni textalýsingu

Í kvöld hefst þriðji hluti N1 deildarinnar sem er þá 15. umferðin. Akureyri á útileik gegn Gróttu á Seltjarnarnesi og hefst hann klukkan 18:30. Við höfum því miður ekki tök á að vera með okkar eigin beinu lýsingu frá leiknum en vísum hér á textalýsingu Vísir.is.

Smelltu hér til að opna beinu lýsinguna frá Vísi.

Aðrir leikir kvöldsins eru: FH – Afturelding, Fram – Haukar og HK - Valur en sá leikur verður í beinni á SportTV.is. Allir þessir leikir hefjast klukkan 19:30.


Heldur betur áskorun á liðið framundan

14. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Spennandi hlutir framundan – útileikur við Gróttu

Á fimmtudaginn hefst þriðji og síðasti hluti N1-deildarinnar hjá körlum. Það eru sem sé eftir sjö umferðir þar sem öll liðin leika innbyrðis. Akureyri situr nú í 5. sæti deildarinnar og á framundan fjóra útileiki og þrjá heimaleiki. Næstu tveir leikir eru á útivelli, gegn Gróttu nú á fimmtudaginn og síðan gegn Aftureldingu þann 1. mars.

Það er sem sé býsna langt í næsta heimaleik en hann er ekki á dagskrá fyrr en fimmtudaginn 8. mars þegar við fáum HK í heimsókn.
Þar á eftir kemur útileikur gegn Haukum, heimaleikur gegn FH sunnudaginn 18. mars, síðan er útileikur gegn Fram 22. mars og að endingu heimaleikur gegn Val fimmtudaginn 29. mars.

Deildin er í raun galopin, aðeins munar fjórum stigum á Akureyri í 5. sætinu og Haukum sem eru í 1. sætinu þannig að mikilvægt er að allir, jafnt leikmenn og stuðningsmenn leggist á eitt og haldi fullri einbeitingu í þeim leikjum sem eftir eru.

Við lentum í erfiðleikum í fyrsta hluta mótsins en liðið steig heldur betur upp í framhaldinu og náði besta árangri allra liða í öðrum hlutanum, þ.e.a.s. í umferðum 8 - 14. Stigasöfnun liðanna í þeim hluta var sem hér segir:
Akureyri 11 stig, FH 10 stig, HK 10 stig, Haukar 8 stig, Fram 7 stig, Valur 7 stig, Afturelding 3 stig og Grótta 0 stig.

Nú þarf bara að halda dampinum áfram allt til enda og sjá svo hvar við stöndum eftir næstu sjö umferðir.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson