Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Vængbrotið lið Akureyrar tapaði fyrir Haukum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Haukar - Akureyri  30-22 (16-11)
N1 deild karla
Schenkerhöllin
Lau 27. október 2012 klukkan: 15:45
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson.
Umfjöllun

Heimir og Bjarni eiga verkefni fyrir höndum að koma liðinu á sigurbraut á ný

30. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Vængbrotið lið Akureyrar tapaði fyrir Haukum

Það var fyrirfram ljóst að róðurinn yrði erfiður fyrir Akureyri gegn sterku liði Hauka síðastliðinn laugardag. Bjarni Fritzson er ekki orðinn góður af sínum meiðslum, Andri Snær Stefánsson tognaði í síðasta leik og línumaðurinn Ásgeir Jónsson glímir við bakmeiðsli, enginn þessara var því í leikmannahópnum að þessu sinni.
Liðin skiptust á mörkum í upphafi en Haukar náðu þriggja marka forskoti, 5 – 2 Oddur Gretarsson brunaði í hraðaupphlaup og skoraði af harðfylgi 5 - 3 en meiddist alvarlega á hné. Meiðslin voru greinilega mjög slæm og var Oddur fluttur sárkvalinn, rakleiðis á sjúkrahús.


Oddur borinn út í sjúkrabíl. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is

Heiðar Þór Aðalsteinsson tók stöðu Odds í vinstra horninu en Heiðar er nýbyrjaður að æfa aftur með liðinu.

Þrátt fyrir þetta áfall náði Akureyri að minnka forskot Haukanna í 7-6 og var það ekki síst fyrir frækilega frammistöðu Heimis Árnasonar sem fór fyrir sínum mönnum. Það var þó ljóst að Akureyrarliðið mátti ekki við þessum skakkaföllum og smám saman sigu Haukarnir frammúr og náðu fimm marka forskoti 12 – 7 sem þeir héldu til leikhlés en hálfleiksstaðan var 16 – 11.


Sigþór Heimisson brýst í gegn og skorar í fyrri hálfleiknum. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is

Mikill hasar varð undir lok hálfleiksins, Hreinn Hauksson stöðvaði Frey Brynjarsson með tilþrifum og eftir töluverðar vangaveltur ákváðu dómarar leiksins að vísa Hreini af leikvelli fyrir brotið. Freyr blóðgaðist á augabrún, missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu og grýtti gómhlífinni í áttina að Hreini og uppskar réttilega rautt spjald fyrir vikið.

Stóri munurinn á liðunum í fyrri hálfleik lá þó í markvörslunni. Jovan og Stefán náðu sér engan veginn á strik á meðan Giedrius Morkunas, markvörður Hauka átti fínan leik.

Haukarnir gerðu síðan út um leikinn á upphafsmínútum seinni hálfleiks með fjórum fyrstu mörkunum og staðan orðin 20 -11. Áfram var það markvarslan sem skildi liðin af, nánast öll skot Haukanna rötuðu í markið á meðan lítið gekk hjá Akureyringum. Það voru einungis Heimir Örn, Bergvin og Geir sem komu boltanum í Haukamarkið.

Akureyrarliðið náði smá kipp um miðbik hálfleiksins og skoraði þrjú mörk í röð og minnkaði muninn í sex mörk, 22 – 16 en þá gáfu Haukarnir í á nýjan leik og forystan varð mest tíu mörk, 27-17.
Það var síðan Hreinn Hauksson sem skoraði síðasta mark leiksins sem lauk með átta marka tapi, 30 – 22.

Það var greinilegt að meiðsli Odds drógu kraftinn úr liðinu og einhvernveginn virtust menn ekki hafa trú á að þeir ættu möguleika í leiknum. Markvarslan var eins og áður segir stóri munurinn á liðunum, markverðir Akureyrar vörðu til saman 8 skot á meðan markvörður Hauka varði 18 skot, mörg hver úr opnum færum.

Heimir Örn Árnason var yfirburðamaður í liðinu, skoraði 9 mörk, þar af þrjú úr vítaköstum og var síðasta vítið einstaklega magnað, vippa á fyrsta tempói sem heppnaðist fullkomnlega.


Heimir Örn stóð fyrir sínu í leiknum. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is

Mörk Akureyrar: Heimir Örn Árnason 9 (3 víti), Geir Guðmundsson 5, Bergvin Þór Gíslason 4, Guðmundur Hólmar Helgason, Hreinn Hauksson, Oddur Gretarsson og Sigþór Heimisson 1 mark hver.
Í markinu varði Stefán Guðnason 6 skot og Jovan Kukobat 2.

Hjá Haukum voru Elías Már Halldórsson og Tjörvi Þorgeirsson með 6 mörk hvor og Stefán Rafn Sigurmannsson með 5.

Á sport.is er hægt að skoða fleiri myndir Hilmars Þórs frá leiknum.Nú tekur við smáhlé í N1 deildinni vegna verkefna landsliðsins, næsti leikur er heimaleikur gegn Val þann 8. nóvember og vonandi verður liðið búið að endurheimta einhverja lykilmenn úr meiðslum fyrir þann leik.

Tengdar fréttir

Þeir sem ekki komast á leikinn fylgjast að sjálfsögðu með í sjónvarpinu

25. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur á laugardaginn, Haukar – Akureyri

Að þessu sinni á Akureyri erfiðan útileik fyrir höndum þegar liðið fer í Hafnarfjörðinn og mætir þar Haukum sem eru á toppi N1 deildarinnar sem stendur. Leikurinn var færður yfir á laugardag og verður þar með í beinni útsendingu hjá RÚV en leikurinn hefst klukkan 15:45.

Haukum var spáð mikilli velgengni fyrir mótið af forráðamönnum liðanna og því má segja að það komi ekki á óvart að þeir vermi toppsætið. Það sem af er mótinu hefur Stefán Sigurmannsson verið þeirra langatkvæðamestur í markaskorun, er kominn með 36 mörk í deildinni. Þar á eftir kemur Árni Steinn Steinþórsson með 20 mörk og skammt á eftir eru Tjörvi Þorgeirsson með 16, Gylfi Gylfason með 13 og línumaðurinn Jón Þorbjörn Jóhannsson með 12.
Þá skyldu menn ekki gleyma að markvörður Hauka er Aron Rafn Eðvarðsson sem hefur verið viðloðandi landsliðið upp á síðkastið og var einmitt valinn í landsliðshópinn í gær.


Stefán Rafn, Árni Steinn og Tjörvi


Gylfi, Jón Þorbjörn og Aron Rafn

Haukar styrktu mjög lið sitt fyrir tímabilið og endurheimtu nokkra fyrri liðsmenn erlendis frá (þar með talið Vestmannaeyjum) eins og Elías Má Halldórsson, Gísla Þór Þórisson og Gísla Kristjánsson. Þá fengu þeir stóran og öflugan línumann, Jón Þorbjörn Jóhannsson auk þess sem markvörðurinn Giedrius Morkunas kom í stað Birkis Ívars Guðmundssonar sem lagði skóna á hilluna.

Auk þessara endurheimtu Haukar stórskyttuna Sigurberg Sveinsson sem hefur reyndar verið frá vegna meiðsla en er væntanlegur í slaginn fljótlega.

Þjálfari Haukanna er síðan landsliðsþjálfarinn, Aron Kristjánsson þannig að það er ekki laust við að róðurinn verði þungur fyrir Akureyrarliðið á laugardaginn.

Haukar unnu sannfærandi sigur á Val í síðustu umferð og hafa einungis tapað einu stigi það sem af er en það var einmitt á heimavelli sínum gegn HK.

Við hvetjum alla stuðningsmenn sem eiga þess kost að fjölmenna á leikinn, ekki veitir af að allir leggist á eitt.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson