Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Frábær sigur á FH í kvöld - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    FH - Akureyri  23-26 (12-16)
N1 deild karla
Kaplakriki
Fim 15. nóvember 2012 klukkan: 18:00
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Hlynur Leifsson
Umfjöllun

Bergvin átti frábæran leik í kvöld

15. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Frábær sigur á FH í kvöld

Akureyrarliðið sýndi það í kvöld að það er sko ekki aldeilis dautt úr öllum æðum þrátt fyrir brösugt gengi í síðustu leikjum. Bergvin Gíslason gaf tóninn með fyrsta marki leiksins en Bergvin átti frábæran leik í kvöld. Jafnt var á svo til öllum tölum upp í stöðuna 7-7 en komu þrjú norðanmörk í röð 7-10 og stemmingin í liðinu algjörlega frábær. Áfram var haldið og í hálfleik var munurinn orðinn fjögur mörk, 12-16.

Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik var til fyrirmyndar, Bergvin blómstraði í skyttunni og Guðmundur Hólmar leysti miðjustöðuna frábærlega. Vörnin var sterk og Jovan Kukobat hreint magnaður í markinu.


Bergvin í baráttu við Ásbjörn Friðriksson. Mynd: mbl.is/Ómar Óskarsson

Seinni hálfleikurinn byrjaði hins vegar ekki eins vel. FH-ingar tóku völdin á vellinum og sneru leiknum sér í vil. Á fyrstu tólf mínútum hálfleiksins skoruðu FH-ingar sjö mörk gegn einu og breyttu stöðunni í 19-17. með fimm mörkum í röð
Mest náðu FH-ingar þriggja marka forystu 22-19 þegar níu mínútur voru til leiksloka og ákveðið vonleysi komið í stuðningsmenn Akureyrar. En þá hófst endurkoman og þvílíkur snilldarleikur. Vörnin skellti gjörsamlega í lás og þar fyrir aftan fór Jovan hamförum í markinu.

Í sóknarleiknum minnti Guðmundur Hólmar heldur betur á sig, skoraði þrjú mörk í röð með sannkölluðum sleggjum en á þessum kafla skoraði Akureyri sex mörk í röð og gerði út um leikinn, staðan orðin 22-25 og hálf mínúta eftir af leiknum.

Ólafur Gústafsson minnkaði muninn í tvö mörk en Andri Snær kom muninum aftur í þrjú mörk með síðasta marki leiksins. Frábær frammistaða hjá liðinu sem blés á allar hrakspár undanfarna daga með hreint út sagt mögnuðum leik.

Bergvin Gíslason og Guðmundur Hólmar voru frábærir í sóknarleiknum og varnarleikurinn mestan hluta leiksins stórbrotinn. Einnig sýndi Jovan mönnum hvað hann getur í markinu og munar heldur betur um það.

Ef liðið heldur þessari baráttu og liðsheild í komandi leikjum verður ekki leiðinlegt að fylgjast með næstu leikjum.

Það er reyndar athyglisvert að Akureyri fékk ekkert vítakast í öllum leiknum.

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 7, Bergvin Gíslason 6, Bjarni Fritzson 5, Andri Snær Stefánsson 4, Friðrik Svavarsson 2, Geir Guðmundsson 1 mark og Heimir Árnason 1.

Jovan Kukobat stóð í markinu allan tímann og varði 17 skot, þar af 1 vítakast.

Hjá FH var Ólafur Gústavsson markahæstur með 6 mörk, Ragnar Jóhannsson með 5 og Ásbjörn Friðriksson 4.

Næsti leikur liðsins er svo heimaleikur gegn Fram fimmtudaginn 22. nóvember.

Tengdar fréttir

Heimir var sáttur með sína menn

16. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir FH leikinn?

Eins og við er að búast þá voru Akureyringar og FH-ingar misglaðir eftir leikinn í gær þar sem Akureyringar réttu heldur betur úr kútnum eftir mótbyr síðustu deildarleikja. FH-ingar hins vegar með tap í tveim síðustu heimaleikjum sínum sem er að sjálfsögðu áhyggjuefni hjá þeim.

Eins og vanalega fylgir hér samantekt á textaviðtölum og síðan vídeóviðtöl úr ýmsum áttum:

Byrjum á Morgungblaðinu þar sem Guðmundur Hilmarsson ræðir við Andra Snæ, Heimi Árnason og Einar Andra Einarsson.

Andri Snær: Leikskipulagið gekk upp í fyrri hálfleik

„Það gekk allt leikskipulag upp hjá okkur í fyrri hálfleik en við mættum værukærir til leiks í seinni hálfleik og það gekk hreinlega ekkert hjá okkur í sókninni. Mér leist ekki á blikuna þegar við vorum komnir þremur mörkum undir en við tókum leikhlé og þar var ákveðið að menn gæfu allt sem þeir áttu og það var sætt að koma til baka og vinna,“ sagði hornamaðurinn Andri Snær Stefánsson við Morgunblaðið eftir leikinn.

Heimir Örn: Taka þetta á jákvæðninni

Heimir Örn Árnason, annar af þjálfurum Akureyrar og leikmaður liðsins, var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn FH-ingum í Kaplakrika í kvöld en fyrir leikinn höfðu Akureyringar tapað þremur leikjum í röð í deildinni.
„Við ákváðum að taka þetta á jákvæðninni í stað þess að einblína á meiðsli leikmanna. Markvarslan var fábær og það skiptir miklu máli fyrir okkur að fá varnartröllið Guðlaug Arnarsson aftur inn í liðið,“ sagði Heimir við mbl.is


Einar Andri: Gríðarlega svekktur

Einar Andri Einarsson, þjálfari FH-inga, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir tap sinna manna gegn Akureyringum í N1-deildinni í handknattleik en Akureyringar fögnuðu sigri, 26:23, í Kaplakrika.
„Ég er gríðarlega svekktur. Við fengum á baukinn um síðustu helgi og við ætluðum að standa okkur vel í þessum leik. Því miður tókst það ekki og ég hef ekki skýringu á því hvað gerðist hjá okkur í lokin. Við vorum komnir þremur mörkum yfir eftir að við misstum niður unninn leik,“ sagði Einar Andri við mbl.is.



Eiríkur Stefán Ásgeirsson blaðamaður Vísis ræddi við Bergvin Gíslason, Bjarna Fritzson og Ásbjörn Friðriksson eftir leikinn.

Bergvin: Þetta var okkar dagur

Bergvin Þór Gíslason átti frábæran leik fyrir Akureyri í kvöld. Hann nýtti skotin sín vel, skoraði sex mörk og lagði upp mörg önnur fyrir félaga sína. Akureyri var með fjögurra marka forystu í hálfleik, 16-12, en skoraði aðeins þrjú mörk á fyrstu 20 mínútum í seinni hálfleik.

„Við töluðum um það í hálfleik að halda rónni og halda okkar striki. En það gekk alls ekki upp og þeir settu grimmt á okkur.

Við náðum svo að koma til baka þegar við náðum að stilla upp vörninni okkar. Þá vorum við nokkuð góðir og þeir áttu erfitt með að skora á okkur.

Það má vera að við vorum þreyttir eftir bikarleikinn gegn Víkingum þar sem var tvíframlengt en þetta hafðist að lokum,“ sagði Bergvin.

„Heilt yfir var þetta okkar dagur, þrátt fyrir að við duttum niður í seinni hálfleik. Við vorum að fá mörg fráköst og skot láku inn sem voru ekkert mjög góð. Það breytti miklu fyrir okkur.'


Bergvin í baráttu við Ásbjörn Friðriksson. Mynd: mbl.is/Ómar Óskarsson

Bjarni Fritzson: Sigur liðsheildarinnar

Bjarni Fritzson, hornamaður og annar þjálfari Akureyringa, var ánægður með sína menn eftir sigurinn á FH í kvöld.

„Þetta var mjög erfiður leikur,“ sagði hann. „Liðsheildin var frábær hjá okkur og hún skóp sigurinn hjá okkur. Sóknarleikurinn var mjög agaður og vörnin öflug á köflum.“

Akureyringar voru þó lengi í gang í seinni hálfleik og hleyptu FH-ingum fram úr sér eftir að hafa verið með fjögurra marka forystu í hálfleik.

„Við vorum að fara illa með mörg færi og varamarkvörðurinn þeirra, hann Siggi, átti mjög flotta innkomu og breytti leiknum fyrir þá. Menn þurftu að átta sig á því að þetta væri enginn byrjandi í markinu og byrja að skjóta almennilega á hann. Þegar það gerðist þá datt þetta okkar megin.“

Guðlaugur Arnarsson er kominn í vörn Akureyringa á ný eftir að hafa lagt skóna á hilluna síðastliðið vor.

„Við höfum misst nokkuð marga menn undanfarið og hann kom því inn til að redda málunum fyrir okkur. Hann var flottur og varnarleikurinn góður, heilt á litið. Markvarslan var góð eftir því.“

Guðmundur Hólmar Helgason steig upp í lokin og skoraði nokkur mikilvæg mörk fyrir Akureyri. Þá átti Bergvin Þór Gíslason góðan leik.

„Við vitum nákvæmlega hvað Guðmundur getur. Hann hefur æft eins og skepna og spilaði mjög vel gegn Víkingi í bikarnum. Hann er að finna sig mjög vel á miðjunni og Bergvin er að koma mjög öflugur inn í skyttustöðuna. Þeir eru flottir.“

Ásbjörn: Sóknarleikurinn klikkaði í lokin

FH-ingurinn Ásbjörn Friðriksson er sífellt að komast betur inn í leik liðsins eftir að hafa komið til aftur til félagsins frá Svíþjóð fyrir stuttu.
Það dugði þó ekki til í kvöld en Ásbjörn sýndi þó ágæt tilþrif inn á milli.

„Við stressuðumst upp á lokakaflanum og fórum illa með þau færi sem við fengum,“ sagði Ásbjörn um síðustu mínútur leiksins þegar að Akureyringar sigu fram úr.

„Þeir ganga á lagið með því að skora úr seinni bylgjum og í uppstilltum sóknum. Við náðum ekki að vinna okkur út úr því.
Það er skrýtið því við töldum okkur hafa fundið lausnina við þeirra varnarleik.“

Ásbjörn var ekki ánægður með varnarleik sinna manna í fyrri hálfleik. „Sextán mörk í einum hálfleik er allt of mikið. Við löguðum það þó í seinni hálfleik en þá klikkaði sóknarleikurinn þegar mest á reyndi.“

FH hefur nú tapað tveimur deildarleikjum í röð en Ásbjörn telur að liðið eigi meira inni. „Nú dugir ekkert annað en að vera duglegir að æfa og spila okkur betur saman. Við þurfum að ná floti í okkar sóknarleik og meiri grimmd í vörnina.
Það er klárt mál að við munum bæta okkar leik eftir því sem líður á tímabilið.“

Á Sport.is eru vídeóviðtöl Siguróla Sigurðssonar við þjálfarana Heimi Örn og Einar Andra.

Heimir



Einar Andri



Við endum þetta með viðtölum Árna Freys Helgasonar sem birtust á Handbolti.org

Bjarni Fritz: Ekki grín að sigra þetta stjörnuprýdda lið

Einar Andri: Erfitt þegar maður fær á baukinn




Liðin skildu jöfn í upphafsleik deildarinnar í haust

15. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Útileikur gegn FH í beinni textalýsingu

Í dag hefst annar þriðjungur N1 deildarinnar þegar 8. umferðin fer af stað. Liðin sem mættust í 1. umferðinni mætast nú öðru sinni en heimavöllurinn víxlast. Þetta þýðir að Akureyri og FH mætast í Hafnarfirði. Staðan í deildinni fyrir þessa umferð er einkar athyglisverð, Haukar langefstir með sex stiga forskot en þar á eftir koma Akureyri, Fram, FH og ÍR öll með 7 stig.

Bæði lið munu án efa leggja allt í sölurnar til að komast á sigurbraut í deildinni, Akureyri eftir þrjá tapleiki í röð en FH eftir tap gegn erkifjendum sínum í Haukum.

Akureyrarliðið hefur glímt við ítrekuð og erfið meiðsli lykilmanna, nú síðast heltist varnarjaxlinn Hreinn Hauksson úr leik vegna meiðsla. Stöðu hans tók reynsluboltinn Guðlaugur Arnarsson sem stóð vaktina í bikarleiknum gegn Víkingum. Gulli stóð vel fyrir sínu og verður væntanlega í hóp í kvöld.

FH ingar hafa heldur betur bætt í leikmannahópinn hjá sér. Leikstjórnandinn Ásbjörn Friðriksson sneri heim úr atvinnumennsku í Svíþjóð og fór fyrir FH-ingum í tapleiknum gegn Haukum um síðustu helgi. Þá er silfurdrengurinn, Logi Geirsson mættur til leiks á ný og morgunljóst að þeir eiga eftir að setja mark sitt á FH liðið í vetur.

Nú hefur komið á daginn að ekkert verður úr beinni útsendingu hjá SportTV.is frá leiknum en þess í stað hefur heimasíðan gert ráðstafanir til að verða með beina textalýsingu frá leiknum. Leikurinn hefst klukkan 18:00 eins og flestir útileikir Akureyrar gera og verður auðvelt að fylgjast með lýsingunni hér á síðunni.

Smelltu hér til að fylgjast með lýsingunni.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson