Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri áfram í bikarnum eftir sigur á Aftureldingu - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    Afturelding - Akureyri  20-25 (8-13)
Símabikar karla
Varmá
Lau 1. desember 2012 klukkan: 15:00
Dómarar: Svavar Pétursson og Arnar Sigurjónsson
Umfjöllun

Jovan frábær í dag

1. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri áfram í bikarnum eftir sigur á Aftureldingu

Það var boðið upp á sveiflukenndan leik í Mosfellsbænum í dag þegar Akureyri og Afturelding mættust í 16 liða úrslitum Símabikarsins. Framan af fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum en í stöðunni 5 – 4 fyrir Aftureldingu tók Akureyrarliðið góða rispu og skoraði fimm mörk í röð og náðu þægilegri stöðu 5 – 9.
Vörnin var öflug og Jovan Kukobat lokaði markinu. Þennan mun náði Afturelding ekki að saxa niður og Akureyri var með fína stöðu í hálfleik, 8 – 13.

Hafi menn haldið að sigurinn væri í höfn þá var það ekki raunin. Liðið virtist koma værukært í seinni hálfleikinn en heimamenn hins vegar staðránir í að láta ekki valta yfir sig. Akureyri fékk á sig fjölda brottvísana, voru á tímabili fjórir gegn sex Aftureldingarmönnum þannig að Afturelding vann muninn upp smám saman. Þeir náðu að jafna í 18 – 18 og baráttan í algleymingi.

En Akureyri stóðst álagið og var ávallt á undan að skora á næstu mínútum. Eftir að Afturelding hafði jafnað í 20 – 20 gerði Akureyrarliðið út um leikinn með fimm síðustu mörkum leiksins og lokatölur 20 – 25.

RÚV sýndi leikinn beint en því miður féll útsending ú mestallan fyrri hálfleikinn vegna bilunar og því er tölfræði heimasíðunnar ekki eins ítarleg og við hefðum viljað.

Jovan Kukobat hélt uppteknum hætti og varði mjög vel. Guðmundur Hólmar var sterkur í sóknarleiknum og eins var Geir Guðmundsson öflugur á lokasprettinum.

Lítið náðist að opna fyrir hornamennina eða línuna í leiknum og þarf að vinna í því fyrir næstu leiki.


Guðmundur Hólmar var öflugur og skoraði 8 mörk í dag


Geir skoraði 6 mörk í leiknum

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 8, Geir Guðmundsson 6, Bjarni Fritzson 5, Bergvin Þór Gíslason 4, Andri Snær Stefánsson og Friðrik Svavarsson 1 mark hvor.
Í markinu var Jovan Kukobat frábær eins og áður segir. 17 skot varin og tilnefndur maður leiksins.

Mörk Aftureldingar: Jóhann Jóhannsson 6, Örn Ingi Bjarkason 4, Sverrir Hermannsson 3, Hilmar Stefánsson 2, Þrándur Gíslason Roth 2, Benedikt Reynir Karlsson 1, Hrafn Ingvarsson 1, Kristinn Hrannar Bjarkason 1.

Akureyri er þar með komið í 8 liða úrslit Símabikarsins en næsti leikur er heimaleikur gegn Íslandsmeisturum HK og verður hann í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 6. desember. Þar á eftir halda strákarnir aftur í Mosfellsbæinn.

Vídeóviðtöl eftir leik

Þorvaldur Einarsson hjá Handbolti.org ræddi við Guðmund Hólmar og Heimi Örn eftir leikinn og má sjá viðtölin hér á eftir:

Guðmundur Hólmar: Eldingin var þétt fyrir


Heimir Örn: Bikarinn er skemmtilegasta keppnin

Tengdar fréttir

Leikurinn verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu

30. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur í bikarkeppninni á laugardaginn

Það er stutt á milli leikja hjá strákunum þessa dagana. Eftir tap gegn ÍR á fimmtudaginn liggur leiðin í Mosfellsbæinn á laugardag þar sem þeir mæta heimamönnum í Aftureldingu að Varmá. Bikarleikir eru einfaldlega upp á líf eða dauða þannig að ekkert nema sigur kemur til greina í þeim leik.

Afturelding fór illa með Akureyri hér á heimavelli fyrir einum og hálfum mánuði þar sem okkar menn voru hreinlega lélegir þannig að varla gefst betra tækifæri til að kvitta fyrir þann leik.

Afturelding er einfaldlega með hörkulið og fékk greinilega aukið sjálfstraust við sigurinn hér í Höllinni því til viðbótar við stigin úr þeim leik hafa þeir unnið stórsigur gegn Fram á útivelli og gerðu jafntefli við HK og Val í síðustu tveim umferðum N1-deildarinnar.

Burðarásar í liði Aftureldingar eru menn eins og Örn Ingi Bjarkason, Jóhann Jóhannsson, Sverrir Hermannsson, Hilmar Stefánsson að ógleymdum markverðinum Davíð Svanssyni.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV á laugardaginn og hefst klukkan 15:00. Við beinum þeim tilmælum til stuðningsmanna liðsins sem verða staddir á stór-Mosfellssvæðinu að mæta galvaskir til leiksins því eins og áður segir þá er allt undir í þessum leik.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson