Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Ekki sótti Akureyri stig gegn Haukum í dag - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Haukar - Akureyri  24-20 (14-8)
N1 deild karla
Schenkerhöllin
Fim 21. febrúar 2013 klukkan: 18:00
Dómarar: Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson, eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Hreinn sýndi að hann kann sitthvað fyrir sér í hægra horninu

21. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ekki sótti Akureyri stig gegn Haukum í dag

Akureyri byrjaði af krafti gegn Haukum í dag og höfðu frumkvæðið í upphafi leiksins. Haukarnir fylgdu þó alltaf eftir og komust fyrst yfir í stöðunni 4 -3. Leikurinn var í fínu jafnvægi áfram en eftir rúmlega 20 mínútna leik var staðan 9 – 7 fyrir Hauka.
Í kjölfarið komu fjögur Haukamörk í röð og þessar síðustu tíu mínútur hálfleiksins unnu Haukar 5 – 1 og leiddu því í hálfleik með sex mörkum, 14 – 8.

Haukarnir byrjuðu seinni hálfleikinn með tveim mörkum og útlitið orðið svart fyrir okkar menn. Strákarnir gáfust þó ekki upp og skoruðu næstu þrjú mörk og munurinn kominn í fimm mörk. Haukar endurheimtu þó fljótlega átta marka forskotið 21 – 13 þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður.

Akureyrarliðið kom þó til baka og vann síðasta korterið 7 – 3 þannig að lokatölur leiksins urðu fjögurra marka sigur Hauka 24 – 20.


Bergvin var besti maður liðsins í dag. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is

Bergvin Þór Gíslason var góður í sóknarleiknum og skoraði sjö mörk. Skotnýtingin hjá Guðmundi og Geir var ekki góð, Geir náði sér þó á strik undir lok leiksins og skoraði þá þrjú góð mörk. Guðmundur spilaði reyndar fárveikur og sást vel að hann var ekki að leika á fullum styrk.

Lítið kom út úr hornunum í leiknum þó kom Hreinn Þór Hauksson með tvö góð mörk úr hægra horninu í seinni hálfleiknum. Heimir Örn Árnason lék töluvert í vörninni og kom það eiginlega á óvart þar sem hann meiddist á ökkla í Fram leiknum á sunnudaginn.
Menn geta þó tekið það jákvætt út úr leiknum að enginn leikmanna meiddist að þessu sinni en hinir tveir leikirnir gegn Haukum reyndust liðinu heldur betur dýrkeyptir hvað það varðar.

Mörk Akureyrar: Bergvin Þór Gíslason 7 (1 úr víti), Geir Guðmundsson 4, Guðmundur Hólmar Helgason 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Hreinn Þór Hauksson 2, Andri Snær Stefánsson 1, Halldór Örn Tryggvason 1 og Valþór Guðrúnarson 1.

Í markinu varði Jovan Kukobat 8 skot en Stefán Guðnason átti fína innkomu undir lokin og varði 3 af síðustu fjórum skotum Haukamanna.

Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 6 (3 úr vítum), Gylfi Gylfason 6, Árni Steinn Steinþórsson 4, Þórður Rafn Guðmundsson 3, Matthías Árni Ingimarsson 2, Tjörvi Þorgeirsson 2 og , Freyr Brynjarsson 1.

Aron Rafn Eðvarðsson stóð í markinu allan tímann og átti stórleik með 21 varið skot.

Tengdar fréttir

Oddur og Höddi vilja örugglega að strákarnir landi sigri í dag



21. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Haukar – Akureyri í beinni textalýsingu og á HaukarTV

Það er nóg að gera hjá handboltaáhugamönnum þessa dagana enda er stutt á milli leikja. Í dag halda leikmenn Akureyrar suður í Hafnarfjörð þar sem þeir mæta toppliði deildarinnar, Haukum. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og í báðum leikjunum urðu Akureyringar fyrir miklum skakkaföllum. Í upphafi fyrri leiksins varð Oddur Gretarsson fyrir því óláni að slíta krossband í hné og þar með var hann úr leik þetta tímabilið.

Seinni leikurinn var rétt nýhafinn þegar Hörður Fannar Sigþórsson varð sömuleiðis fyrir því að slíta krossband í hné og bíður Hörður þess að fara í aðgerð. Við skulum vona að leikmenn sleppi við öll slík skakkaföll í dag, bæði lið munu berjast af fullum krafti enda mikið í húfi og dýrmæt stig í boði.

Okkar maður verður á staðnum með beina textalýsingu sem opnast hér á síðunni þegar líður á daginn. Leikurinn byrjar klukkan 18:00 og beina lýsingin þar rétt á undan.

Smelltu hér til að opna beinu lýsinguna!

Þá hyggjast Haukar sýna frá leiknum í vefsjónvarpi sínu:
Smelltu hér til að fara inn á vefsjónvarp Hauka


Haukar eru ávallt erfiðir heim að sækja

20. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Haukar - Akureyri í dag fimmtudag

Akureyri mætir toppliði Hauka í Hafnarfirði á fimmtudaginn klukkan 18:00. Það má reikna með hörkuleik, Akureyri þarf sárlega á stigum að halda og Haukar ætla klárlega að snúa við blaðinu eftir tvo tapleiki í N1-deildinni í röð.

Við hvetjum alla til að drífa sig á völlinn!

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson