Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Dramatík í Safamýrinni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfrćđi  -  Höllin  -  Lagiđ  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilabođ - Vefur KA - Vefur Ţór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabiliđ 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfrćđi leiksins 
    Fram - Akureyri  23-22 (13-10)
Olís deild karla
Framhús
Fim 14. nóvember 2013 klukkan: 18:00
Dómarar: Matthías Leifsson og Örn Arnarson. Eftirlit Guđjón L. Sigurđsson
Umfjöllun

Ţađ munađi um Heimi í sóknarleiknum

15. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Dramatík í Safamýrinni

Ţađ var ćsispennandi leikur ţegar Akureyri sótti Fram heim í Safamýrina. Akureyri byrjađi međ látum og skorađi ţrjú fyrstu mörk leiksins, ţar af skorađi Kristján Orri tvö glćsimörk úr ţröngum fćrum úr hćgra horninu.

Framarar vöknuđu ţá til lífsins og jöfnuđu í 3-3, áfram var jafnt á flestum tölum og síđast í stöđunni 10-10 en Fram klárađi fyrri hálfleik međ ţrem síđustu mörkunum og leiddu ţví 13-10 í hálfleik. Heimir Örn Árnason brá sér í sóknina af og til og skilađi ţrem góđum mörkum í hálfleiknum.

Akureyrarliđiđ virtist ekki alveg vera mćtt til leiks í upphafi seinni hálfleiks og Framarar náđu fimm marka forskoti 16-11 og 17-12 og virtust vera ađ gera út um leikinn. Heimir fékk mjög vafasaman tveggja mínútna brottrekstur sem var aukinn í fjórar af eftirlitsdómara fyrir ađ láta hug sinn í ljós.

Viđ ţetta mótlćti efldist ţó liđiđ og međ flottum leik unnu strákarnir sig inni í leikinn á ný og minnkuđu muninn jafnt og ţétt. Ţegar tvćr og hálf mínúta var eftir var munurinn kominn niđur í eitt mark, 21-20 og allt á suđupunkti. Áfram hélst eins til tveggja marka munur en Akureyri fékk tćkifćri til ađ jafna í síđustu sókn leiksins. Hún var dramatísk, Heimir komst í gegnum Fram vörnina í opiđ fćri en brotiđ var á honum. Framarinn brotlegi var rekinn af velli en af einhverjum undarlegum ástćđum dćmdu dómararnir einungis aukakast. Bjarni Fritzson tók ţađ og gerđi vel í ađ koma skotinu í gegnum varnarmúrinn en Stephan markvörđur Fram náđi ađ verja.

Eftir flotta endurkomu í seinni hluta leiksins var verulega svekkjandi ađ fá ekki stig úr leiknum en svo virđist sem flestir viđstaddir, sama hvoru liđinu ţeir tilheyra telji jafntefli hafa veriđ sanngjörn úrslit og sérstaklega hafi veriđ ţessi aukakastsdómur í blálokin veriđ rangur.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 5 mörk (2 úr vítum), Heimir Örn og Kristján Orri međ 4 hvor, Valţór og Ţrándur međ 3 mörk, Andri Snćr 2 og Sigţór Árni međ 1 mark.
Í markinu átti Jovan Kukobat flottan leik međ 15 skot varin, ţar af 2 vítaköst.
Mörk Fram: Stefán Baldvin Stefánsson 5, Sigfús Páll Sigfússon 4, Garđar B. Sigurjónsson 4 (2 úr vítum), Arnar Freyr Ársćlsson 3, Stefán Darri Ţórsson, Elías Bóasson og Sveinn Ţorgeirsson međ 2 mörk hver og Sigurđur Örn Ţorsteinsson 1 mark.


Stephen Nielssen varđi 10 skot í marki Fram.

Ţađ var margt jákvćtt í leik liđsins og vonandi gefur baráttan vísbendingu um ţađ sem koma skal í nćstu leikjum sem eru bikarleikur gegn Ţrótti á sunnudaginn og síđan heimaleikur gegn ÍR á fimmtudaginn eftir viku.


Heimir og Halldór Logi kljást viđ Svein Ţorgeirsson í vörninni. Mynd Valli/visir.is


Tengdar fréttir

Guđlaugur Arnarsson hefur náđ flottum árangri međ Fram liđiđ



14. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri sćkir Fram heim í Safamýrina




Annar ţriđjungur Olís-deildarinnar hefst í dag, fimmtudag međ leik Fram og Akureyrar í Safamýrinni. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og enginn vafi á ađ ţar verđur hörkuleikur. Ţegar liđin mćttust hér í Höllinni í fyrstu umferđinni vann Akureyri góđan sigur eftir magnađan seinni hálfleik.

Síđan hefur gengi liđanna veriđ býsna ólíkt. Fram sem var ekki spáđ vel fyrir tímabiliđ hefur heldur betur blásiđ á spádómana og hafa sýnt ađ međ stemmingu og frábćrri baráttu ađ ţá komast menn býsna langt.

Hlutirnir hafa ekki veriđ ađ falla međ Akureyrarliđinu ađ undanförnu og mikilvćgt ađ strákarnir horfi nú fram á veginn og nái ađ skapa baráttuanda og trú á sjálfa sig til ađ klára leikina međ stćl. Liđiđ sýndi til dćmis fína leiki á móti ÍR og Val en vantađi herslumuninn í lokin til ađ fá eitthvađ út úr ţeim leikjum.

Viđ sendum strákunum baráttukveđju í leikinn og treystum ţeim til ađ mćta brjálađir til leiks!


Halldór Logi stöđvar Framarann Sigfús Pál


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson