Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Tap í hörkuleik í Eyjum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    ÍBV - Akureyri  30-27 (16-14)
Olís deild karla
Vestmannaeyjar
Sun 16. febrúar 2014 klukkan: 13:30
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson
Umfjöllun

Kristján Orri var magnaður með átta mörk í dag

16. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap í hörkuleik í Eyjum

Í dag fór loksins fram margfrestaður leikur ÍBV og Akureyrar úr 10. umferð Olís-deildarinnar. Leikmenn ÍBV buðu frítt á leikinn til að bæta fyrir skellinn sem þeir fengu gegn Val í síðustu umferð, það var því ljóst að þeir ætluðu að sanna sig fyrir sínum stuðningsmönnum.
Leikurinn fór fjörlega af stað, liðin skiptust á að skora og var jafnt á öllum tölum upp í 8-8 og enn var jafnt 10-10. Á lokahluta fyrri hálfleiks komst ÍBV 2 til 3 mörkum yfir en Kristján Orri Jóhannsson skoraði lokamark hálfleiksins og var forysta Eyjamanna tvö mörk, 16-14 í hálfleik.

Akureyrarliðið hóf seinni hálfleikinn af krafti og jafnaði í 16-16 og skömmu síðar var aftur jafnt 18-18. Þá tók við sjö mínútna kafli án marks frá okkar mönnum á meðan ÍBV skoraði fimm mörk og komnir með vænlega stöðu 23-18.

Akureyrarliðið gafst ekki upp og saxaði forskotið niður í tvö mörk 25-23 þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Sá munur hélst næstu mínúturnar, allt upp í 27-25 en þrátt fyrir þó nokkur tækifæri komust menn ekki nær og Eyjamenn lönduðu þriggja marka sigri 30-27

Í stöðunni 26-24 fékk Þrándur Gíslason rautt spjald fyrir brot á Róbert Aron Hostert sem þótti nokkuð harkalegur dómur, en gæti þýtt að hann yrði í leikbanni í næsta leik.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 8, Bjarni Fritzson 5 (3 úr vítum), Gunnar Þórsson 4, Heimir Örn Árnason 3, Valþór Guðrúnarson 3, Þrándur Gíslason 3 og Sigþór Árni Heimisson1 mark.
Í markinu var Jovan Kukobat með 16 varða bolta og Tomas Olason sem kom í markið í lokin varði 1 skot.

Hjá Eyjamönnum skoraði Grétar Þór Eyþórsson 9, Róbert Aron Hostert 7, Agnar Smári Jónsson 4, Theodór Sigurbjörnsson 4 (2 úr vítum), Magnús Stefánsson 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Guðni Ingvarsson 1 og Sindri Haraldsson 1.
Markverðirnir, Henrik Vikan Eidsvag og Kolbeinn Aron Ingibjargarson vörðu hvor um sig 7 bolta.

Þessi úrslit þýða að ÍBV er í öðru sæti deildarinnar eftir 14 umferðir og Akureyri í 7. sætinu. Þar með mætast liðin aftur í Eyjum í næstu umferð, sá leikur verður laugardaginn 22. febrúar klukkan 13:30.

Tengdar fréttir

Þrándur Gíslason Roth fékk að sjá rautt spjald



17. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir leik ÍBV og Akureyrar?

Að venju höfum við fundið nokkur viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna. Hér á eftir eru nokkur vídeóviðtöl en við byrjum á viðtölum Guðmundar Tómasar Vigfússonar tíðindamanns visir.is sem hann tók við þjálfarana Heimi Örn Árnason og Arnar Pétursson.

Heimir: Hefðum léttilega getað náð jafntefli

„Það er smá þreyta í okkur og smá þyngsli í rassinum. Ég er ánægður með strákana en ungu strákarnir fóru aðeins fram úr sér í lokin,“ sagði Heimir Örn Árnason, þjálfari Akureyrar, eftir þriggja marka tap sinna manna í Vestmannaeyjum í dag.

„Við hefðum léttilega getað náð jafntefli í lokin, þeir voru í stökustu vandræðum með að skora seinustu sjö mínúturnar,“ bætti Heimir við.

„Þessir leikir sem sitja í manni eru til dæmis leikurinn gegn Eyjamönnum heima og seinni hálfleikurinn gegn Val sem var afhroð,“ sagði Heimir en hann bætti við að það þyrfti einungis nokkra sigra til þess að blanda sér í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.

Arnar: Batamerki á liðinu

„Þetta var hörkuleikur, Akureyringarnir eru á góðu róli og hafa verið að spila vel. Það er gott að landa góðum sigri eins og hér í dag,“ sagði Arnar Pétursson, annar þjálfara Eyjamanna, eftir sigur sinna manna gegn leikmönnum Akureyrar í dag.

„Við vorum að spila mjög vel í dag og við erum gríðarlega ánægðir með strákana, það eru batamerki í okkar leik sérstaklega eftir mjög erfiða tvo síðustu leiki. Það er mikilvægt og skemmtilegt að vera í þessu öðru sæti þó svo að allir vilji vera í því fyrsta,“ sagði Arnar en hann segir mætinguna í seinustu tvo leiki hafa verið frábæra.

„Mér fannst við helst vera að bæta okkur í sóknarleiknum, það var meiri hreyfing á okkur og margir hlutir sem gengu frábærlega upp, við leystum þetta allt ágætlega,“ sagði Arnar en hann segir að seinustu sjö leikirnir verði skemmtilegir og vonar að liðið haldi áfram að bæta sig eins og þeir hafa gert undanfarið.

Þá skiptum við yfir á viðtöl sem Júlíus G. Ingason blaðamaður mbl.is tók við leikmennina Þránd Gíslason og Grétar Þór Eyþórsson.

Þrándur: Þeir voru í því að kasta sér í gólfið

Þrándur Gíslason Roth, leikmaður Akureyrar, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks ÍBV og Akureyrar í Olísdeild karla í handknattleik í dag og var ósáttur við það.

„Þetta var fastur leikur frá byrjun til enda og langt frá því að vera grófasta brotið í leiknum. Þeir voru í því allan leikinn að kasta sér í gólfið og grípa um andlitið, sama hvort það var slegið í andlitið, bringuna eða hvað. Robbi gerði það og dómararnir létu plata sig. Vel leikið og vissulega sló ég fast í bringuna á honum en mér fannst þetta óverðskuldað rautt,“ segir Þrándur en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði.

Grétar Þór: Betri sóknarleikur

Grétar Þór Eyþórsson fór fyrir sínu liði í markaskorun en hann lék mjög vel í dag, líklega sinn besta leik fyrir ÍBV þegar liðið vann Akureyri í Olísdeild karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag.

Hann var sáttur við sóknarleik ÍBV. „Það var margt sem við gerðum vel en margt sem við getum bætt. Við erum að fara að mæta þessu liði aftur og ágætt að þetta var ekki allt of auðvelt, eins og maður segir.“

Sóknarleikurinn gekk betur nú en áður?
„Já, betur. Það voru tvö, þrjú kerfi sem virkuðu vel á þá. Við hefðum mátt spila þau meira yfirvegað. En það sem hélt þeim inni í leiknum samt sem áður voru daprar ákvarðanir sóknarlega sem færðu þeim auðveld mörk.“
Nánar er rætt við Grétar Þór á meðfylgjandi myndskeiði.



Loks fylgja hér videóviðtöl við Heimi Örn Árnason og Arnar Pétursson sem eru fengin af sport.is:

Heimir Örn: Misstum þetta niður á lokakaflanum

Arnar Pétursson: Batamerki í okkar leik



Það má búast við fjöri í Eyjum á sunnudaginn

15. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Titringur í Eyjum fyrir sunnudagsleikinn

Leikmenn Akureyrar og ÍBV hafa nóg að gera þessa dagana en þegar liðin mætast á sunnudaginn verður það fimmti leikur leikmanna á sextán dögum. Leikurinn á sunnudaginn er margfrestaður en hann tilheyrir 10. umferð Olís-deildarinnar og hann hefur töluvert að segja um framhald deildarinnar fyrir öll liðin. Það verður sem sé ekki ljóst fyrr en eftir hann í hvaða röð liðin í Olís-deildinni mætast í síðasta þriðjundi deildarinnar og jafnframt hvaða leikir verða á heimavelli og hverjir á útivelli.


Frá leik liðanna fyrr í vetur

Akureyri lék tvo hörkuleiki gegn FH í vikunni, framlengdan bikarleik á mánudag og unnu síðan sætan sigur á lokasekúndum á fimmtudaginn. Eyjamenn lentu sömuleiðis í framlengdum bikarleik gegn Aftureldingu og töpuðu illa fyrir Val á heimavelli á fimmtudaginn.

Leikmenn ÍBV vilja biðja stuðningsmenn sína afsökunar á frammistöðunni í Valsleiknum sem þeir töpuðu með 10 marka mun 21-31 og hafa ákveðið að bjóða öllum Eyjamönnum á leikinn gegn Akureyri.

Leikmenn meistarflokks ÍBV sendu frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu sem birtist í Eyjafréttum:

Kæru stuðningsmenn og velunnarar.
Við í meistaraflokki karla í handbolta viljum þakka kærlega fyrir frábæran stuðning sem við fengum frá ykkur áhorfendum á síðasta leik gegn Val.
Leikmenn eru sársvekktir yfir sinni frammistöðu fyrir framan fullt hús af góðu fólki en verst þykir mönnum að hafa ekki náð að sýna betri gæði en raunin var.
Við leikmenn höfum því ákveðið að bjóða frítt inn á næsta leik okkar sem er núna um komandi helgi eða á sunnudag nánar tiltekið. Það er enn mikið í húfi og getum við með sigri endurheimt annað sætið í deildinni. Við vonumst því eftir öðru tækifæri til að sýna stuðningsmönnum okkar betri leik.
Með bestu kveðju, leikmenn meistaraflokks karla.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson