Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Magnaður útisigur Akureyrar á FH - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    FH - Akureyri  26-28 (12-14)
Olís deild karla
Kaplakriki
Fim 27. mars 2014 klukkan: 18:00
Dómarar: Gunnar Óli Gústafsson og Bjarki Bóasson
Umfjöllun

Þrándur Gíslason var sterkur í leiknum í dag

27. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Magnaður útisigur Akureyrar á FH

Leikir Akureyrar og FH hafa verið magnaðir undanfarin ár og á því varð engin breyting í kvöld. Það var mikið undir hjá báðum liðum, FH í baráttu um að komast í úrslitakeppnina og Akureyri að reyna að komast úr 7. sætinu, umspilssætinu.

Jafnræði var með liðunum í upphafi, FH-ingar þó á undan að skora og náðu tveggja marka forystu 5-3 og 6-4. Þá tók við frábær kafli hjá Akureyrarliðinu sem skoraði átta mörk gegn einu marki FH-inga og staðan orðin 7-12. Sigþór Árni Heimisson fór hamförum í sóknarleiknum ásamt því að vörn og markvarsla var til fyrirmyndar.

FH náði þó að koma til baka, hemja Sigþór og minnkuðu muninn þannig að í hálfleik munaði aðeins tveim mörkum á liðunum, 12-14.
Eins og áður segir var Sigþór í miklum ham markahæstur með 6 mörk, Bjarni með 3, Valþór 2, Gunnar Þórsson, Hreinn Hauksson og Þrándur Gíslason með 1 mark hver. Jovan Kukobat stóð fyrir sínu með 9 varin skot og flest ekki af auðveldara taginu.


Valþór Guðrúnarson átti flottan leik í dag. Mynd: Mbl.is/Golli

Akureyrarliðið hóf seinni hálfleikinn af krafti og jók forskotið í fjögur mörk, 13-17, 14-18 og 15-19. FH-ingar voru ekki af baki dottnir og jöfnuðu í 19-19 og gott betur en það þeir komust yfir, náðu tveggja marka forystu 21-19 þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka.

Útlitið farið að dökkna en með frábærri baráttu náði liðið að jafna leikinn í 23-23 með glæsilegu sirkusmarki þeirra Andra Snæs og Kristjáns Orra þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Þessar lokamínútur voru æsispennandi en það voru Akureyringar sem reyndust sterkari og unnu þær með fimm mörkum gegn þremur þannig að niðurstaðan varð flottur útisigur, 26-28.

Það var frábær varnarleikur sem lagði grunninn að sigrinum og óhætt að hrósa liðinu í heild fyrir frábæra baráttu. Erfitt að taka einhvern einn leikmann út, eins og áður segir var Sigþór Heimisson frábær, sérstaklega í fyrri hálfleik, Bjarni Fritzson átti flottan leik en við ætlum að útnefna Þránd Gíslason mann leiksins fyrir frábæra baráttu á báðum endum vallarins.

Mörk Akureyrar: Sigþór Heimisson 7, Bjarni Fritzson 7 (2 úr vítum), Valþór Guðrúnarson 5, Þrándur Gíslason 5, Kristján Orri Jóhannsson 2, Gunnar Þórsson og Hreinn Hauksson 1 mark hvor.
Jovan Kukobat varði 16 skot en Tomas Olavson reyndi við eitt vítakast.

Mörk FH: Ragnar Jóhannsson 8, Ásbjörn Friðriksson 5 (öll úr vítum), Magnús Óli Magnússon 4, Ísak Rafnsson 3, Valdimar Fannar Þórsson 3, Einar Rafn Eiðsson 2 og Benedikt Reynir Kristinsson 1.
Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 skot og Sigurður Örn Arnarsson 1 skot.

Eftir þessa umferð er Akureyri aðeins einu stigi á eftir ÍR og tveimur á eftir FH þannig að þessar tvær umferðir sem eftir eru verða afar athyglisverðar. Akureyri á eftir útileik gegn Haukum og heimaleik gegn HK. ÍR á eftir útileik gegn Fram og heimaleik gegn FH. FH á eftir heimaleik gegn HK og síðan útileikinn gegn ÍR.

Tengdar fréttir

Valþór og Heimir sáttir eftir leikinn



28. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik FH og Akureyrar

Það er óhætt að segja að spennustigið hafi verið hátt í Kaplakrikanum í gær þegar Akureyri vann afar mikilvægan sigur á FH. Blaðamenn visir.is og Morgunblaðsins tóku nokkur viðtöl eftir leikinn sem fara hér á eftir. Byrjum á viðtölum Guðmundar Marinós Ingvarssonar hjá visir.is sem ræddi við Heimi Örn Árnason og Magnús Óla Magnússon leikmann FH:

Heimir Örn: Bjóst enginn við okkar sigri

„Við ákváðum að hugsa ekki um stöðuna en eftir á er þetta rosalega flott stig. Komnir með innbyrðis á FH,“ sagði Heimir Örn Árnason þjálfari Akureyrar eftir sigurinn í kvöld.
„Þetta Valsstig sem við héldum að yrði ekkert mikilvægt er allt í einu miklu mikilvægara en við héldum.

„Við eigum Hauka úti næst og förum þangað með enga pressu og menn búast ekki við miklu. Það bjóst enginn við því að við myndum vinna í kvöld, nema við sjálfir. Allt í kringum liðið og örugglega FH líka hafði enga trú á að þeir myndu tapa fyrir okkur í kvöld.
Varnarlega í seinni hálfleik erum við frábærir. Við erum með hörku varnarmenn. Það sem hefur aftrað okkur eru þessi seinni tempó mörk sem mörg lið eru góð í. Við skipulögðum það betur í kvöld enda gekk það miklu betur.

Ég er stoltur af strákunum. Það er mikið búið að ganga á en samt er ég þokkalega stoltur eftir áramót. Við erum búnir að spila þokkalega,“ sagði Heimir sem vill forðast umspilið þó það líti allt út fyrir að það skipti aðeins HK máli fyrir liðin í Olís deildinni hvernig það spilast.

„Við þurfum tvö til fjögur stig í viðbót til að forðast umspilið. Maður veit ekkert í íslenskum handbolta. Kannski draga þrjú lið sig út og þá er þessi umspilskeppni mjög mikilvæg. Síðan er þetta stoltið að koma sér upp í fimmta, sjötta sætið.“


Óræður svipur á Heimi í fyrri leik liðanna

Magnús Óli: Dýr stig að tapa

„Þetta eru dýr tvö stig sem við misstum þarna. Þetta tvö stigin sem við þurftum til að komast í úrslitakeppnina,“ sagði Magnús Óli Magnússon sem óttast þó ekki að lenda í umspilinu.
„Ég held að við klárum þessa síðustu tvo leiki og sleppum við það. Við getum enn komist inn í úrslitakeppnina. Við verðum klára okkar leiki og vona það besta.“

Ásbjörn Friðriksson gat ekkert beitt sér fyrir FH í dag fyrir utan að hann kom inn á til að taka vítin. FH saknaði hans sárlega í leiknum í kvöld.
„Ásbjörn er heilinn í liðinu. Hann stjórnar sókninni. Við söknuðum leikstjórnar hans mikið.
Við náðum að leysa vörnina þeirra þegar við fórum að rúlla boltanum, sækja á þá, fengum júgga og fengum smá færslur. Þá breyttu þeir um og fóru að taka Ragga (Ragnar Jóhannsson) út. Raggi var flottur í þessum leik. Þá opnaðist fyrir mig og fleiri,“ sagði Magnús Óli.

FH komst yfir í seinni hálfleik en fyrir utan að sóknin hikstaði þá hætti liðið að brjóta í vörninni og fyrir vikið gat Akureyri skorað auðveld mörk og komist aftur yfir.
„Við hættum að brjóta og fá fríköst. Ef við brjótum og fáum tvö, þrjú fríköst á þá í sókn þá taka þeir ótímabær skot. Þeir eru bestir þegar þeir fá að rúlla boltanum endalaust í sókn, taka klippingar og tékka. Þá eru þeir flottir.“


Magnús Óli Magnússon í leik með FH í Höllinni

Guðmundur Hilmarsson blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Valþór Guðrúnarson og Ásbjörn Friðriksson eftir leikinn. Lengri útgáfur viðtalanna eru í myndböndunum sem fylgja með:

Valþór: Ótrúlegt að við eigum ennþá möguleika

Leikmenn Akureyrar fögnuðu vel og innilega eftir sigurinn gegn FH í Kaplakrika í kvöld en með sigrinum eygja nú norðanmenn möguleika á að komast úr 7. sætinu og sleppa þannig við að fara í umspil.
„Við erum mjög ánægðir með þennan sigur og það var gott að klára þetta. Við eigum möguleika á að sleppa við að fara í umspilið sem í raun ótrúlegt miðað við hvernig við höfum spilað í síðustu leikjum,“ sagði Valþór Guðrúnarson skytta í liði Akureyrar við mbl.is eftir sigurinn gegn FH-ingum.

Ásbjörn: Langt frá því að vera í okkar höndum

Ásbjörn Friðriksson og félagar hans í FH-liðinu vorum að vonum súrir eftir tapið gegn Akureyri á heimavelli í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld. Tapið þýðir að FH á afar litla möguleika á að komast í úrslitakeppnina og barátta liðsins það sem eftir er snýr meira af því að forðast að fara í umspil um að halda sæti sínu í deildinni.
„Það er svolítið langt frá því að vera í okkar höndum að komast í úrslitakeppnina og það er aldrei góð staða. Þetta var vont tap og tapið á móti ÍBV fyrir tveimur umferðum var ömurlegt,“ sagði Ásbjörn við mbl.is eftir leikinn.



Það má búast við fjörugum leik gegn FH ingum

25. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri fer í Kaplakrika á fimmtudaginn




Akureyri mætir í Hafnarfjörðinn og leikur gegn FH á fimmtudaginn. Rimma þessara liða hefur verið hrikalega hörð síðustu ár og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessi leikur fer. Síðustu tveir leikir liðanna voru hér í Íþróttahöllinni með nokkurra daga millibili. Fyrst í bikarnum en sá leikur fór í framlengingu þar sem FH knúði fram sigur.

Þrem dögum síðar mættust liðin í Olís-deildinni og þar var það Akureyri sem skoraði sigurmarkið þegar sjö sekúndur voru til leiksloka.

Bæði lið hafa fulla þörf fyrir stigin sem eru í boði í Krikanum og þarf ekki að efast um að þar verður allt lagt í sölurnar. Það er því ástæða fyrir alla stuðningsmenn að fjölmenna í Kaplakrikann og styðja okkar lið!

Eins og gefur að skila þá þekkja liðin vel inn á hvort annað, þær breytingar hafa þó orðið á FH liðinu frá því að þeir komu hér í Höllina að Kristján Arason er aftur kominn inn í þjálfarahópinn. Það virtist gefast vel í síðustu umferð þegar FH-ingar unnu langþráðan sigur í Fram heimilinu 25-28. Í þeim leik var hægri skyttan Ragnar Jóhannsson atkvæðamestur með 7 mörk og hornamaðurinn Benedikt Reynir og Magnús Óli með fimm mörk hvor.
Magnús Óli Magnússon hefur verið einn albesti maður liðsins í vetur og þeirra markahæstur með 81 mark í deildinni. Ásbjörn Friðriksson er líka alltaf erfiður viðureignar en hann er með 75 mörk og hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson með 72 mörk.

Akureyrarliðið hefur verið á góðu róli undanfarið á heimavelli en átt erfitt uppdráttar á útivöllum, nú fer hver að verða síðastur að snúa því við þar sem einungis eru tveir útileikir eftir í deildinni, næsti slíkur verður einnig í Hafnarfirði gegn Haukum.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson