Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Rassskelling að Ásvöllum, 10 marka tap - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2015-16

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Haukar - Akureyri  29-19 (16-9)
Olís deild karla
Schenkerhöllin
Mán. 16. nóv. 2015 klukkan: 19:00
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Þorleifur Árni Björnsson
Umfjöllun

Andri Snær og Tomas voru manna bestir í dag



16. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Rassskelling að Ásvöllum, 10 marka tap

Akureyri sótti Íslandsmeistara Hauka heim í kvöld í 13. umferð Olís deildar karla. Búist var við hörkuleik enda bæði lið verið að leika vel að undanförnu. Svo fór þó alls ekki og unnu heimamenn að lokum 10 marka sigur en það forskot varð til strax í upphafi leiks og aldrei nein spenna í leiknum því miður.

Akureyri hefur leikið vel að undanförnu en bæði mætti liðið hrikalega illa til leiks í dag og þá eru Haukar einfaldlega það sterkir að þeir rúlluðu yfir okkar menn. Eftir rétt rúmar fimm mínútur var staðan 5-0 fyrir Haukum og átta mínútum síðar var staðan orðin 12-3 og leiknum í raun lokið. Engu skipti hvort Haukar væru jafn margir eða manni færri, alltaf voru þeir með svör við leik okkar manna.

Leikurinn var eins og við sögðum í raun búinn eftir þessa byrjun en okkar menn mega eiga það að þeir héldu áfram að reyna og bættu leik sinn mikið er leið á leikinn. Munurinn í hálfleik var sjö mörk og smá vonarglæta að menn gætu komið til baka í síðari hálfleik. Tvisvar náðist að minnka muninn niður í 6 mörk en þá gáfu heimamenn aftur í og gerðu gjörsamlega útum litlar vonir okkar manna um stig. Að lokum fór leikurinn 29-19 og sigur Hauka ansi verðskuldaður.

Giedrius Morkunas átti stórleik í marki Hauka og varði hann ófá dauðafærin, í sóknarleik Haukanna fór Adam Haukur Baumruk á kostum og skoraði 11 mörk og áttu okkar menn engar lausnir á stórleik hans.

Hreiðar Levý Guðmundsson sem hefur verið sjóðheitur í markinu náði ekki að verja bolta en honum til varnaðar var vörnin algjört gatasigti á meðan hann stóð í rammanum. Tomas Olason kom svo í rammann eftir um 10 mínútur og varði fínt, endaði með 13 bolta varða, langflesta í síðari hálfleik.

Fyrirliðinn hann Andri Snær Stefánsson lék allan leikinn í dag og nýtti tækifærið ágætlega, skoraði 8 mörk þar af 3 úr vítaköstum og var maður leiksins að þessu sinni. Bergvin átti ágætis leik þá sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hann hélt Akureyri á floti sóknarlega og gerði 4 mörk.

Aðrir leikmenn liðsins voru ekki nægilega góðir í dag og Akureyri er einfaldlega þannig lið að það hefur ekki efni á að svo margir finni sig ekki í heilum leik.

Vonandi læra menn af þessari útreið og passa upp á að þessi byrjun endurtaki sig ekki en stutt er í næsta leik sem er heimaleikur gegn FH nú á fimmtudaginn.

Mörk Akureyrar:
Andri Snær Stefánsson 8 (3 úr vítum), Bergvin Þór Gíslason 4, Friðrik Svavarsson 2, Kristján Orri Jóhannsson 2, Hörður Másson 1, Sigþór Árni Heimisson 1 og Halldór Logi Árnason 1.

Varin skot:
Tomas Olason 13 skot (21 mark á sig, 38% varsla), Hreiðar Levý Guðmundsson 0 skot (8 mörk á sig, 0% varsla)

Tengdar fréttir

Andri Snær átti fá svör á slökum leik Akureyrar

17. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik Hauka og Akureyrar

Ekki voru fjölmiðlar beint að slást um sætin í blaðamannastúkunni á leik Hauka og Akureyrar í gærkveldi en einungis Morgunblaðið átti fulltrúa á leiknum fyrir utan félögin sjálf. Það voru því ekki mörg viðtöl sem voru tekin eftir leikin en Sindri Sverrisson tók þá Andra Snæ Stefánsson og Adam Hauk Baumruk tali að leik loknum

Andri Snær: Þetta var stórskrýtið

„Þeir keyrðu bara yfir okk­ur og við átt­um ekk­ert skilið,“ sagði Andri Snær Stef­áns­son, fyr­irliði Ak­ur­eyr­ar, sem skoraði 8 mörk í tap­inu stóra gegn Hauk­um í Olís­deild­inni í kvöld, 29:19.

Ak­ur­eyri lenti 9:2 und­ir í leikn­um og eft­ir það var aldrei spurn­ing hvernig færi:

„Við vor­um bara ekki mætt­ir til leiks, sem er ekki bjóðandi gegn svona góðu liði. Vörn­in var svaka­lega döp­ur og þeir fengu að skjóta óáreitt­ir trekk í trekk. Þetta fór með leik­inn. Það er svo erfitt að lenda sjö mörk­um und­ir strax gegn liði eins og Hauk­um,“ sagði Andri.

„Þetta var alls ekki í samræmi við það sem við höf­um verið að gera und­an­farið. Þetta var stór­skrýtið. Und­ir­bún­ing­ur­inn var bú­inn að vera mjög góður en við þurf­um að taka okk­ur sam­an í and­lit­inu eft­ir þetta, og vera til­bún­ir í 60 mín­út­ur í hverj­um ein­asta leik ef við ætl­um okk­ur eitt­hvað. Við þurf­um að gíra okk­ur upp í 60 mín­útna stríð við FH strax á fimmtu­dag­inn,“ sagði Andri.

Adam Hauk­ur Baumruk virt­ist nán­ast geta skorað að vild í kvöld en hann setti 11 mörk fyr­ir Hauka:

„Adam Hauk­ur var reynd­ar frá­bær í dag, en við bara snert­um hann varla. Við réðum ekk­ert við hann. Ef við ætl­um okk­ur eitt­hvað þurf­um við að spila mun betri vörn og fá markvörslu. Þetta var ekki bjóðandi,“ sagði Andri.

Adam Haukur: Þetta er bara gjöf fyr­ir mig

„Þegar ég kemst að punktalínu negli ég bolt­an­um oft­ast inn,“ sagði Adam Hauk­ur Baumruk sem átti stórleik fyr­ir Hauka í kvöld og skoraði 11 mörk í stór­sigr­in­um á Ak­ur­eyri, 29:19, í Olís­deild­inni í hand­knatt­leik.

„Við erum oft upp og niður í upp­hafi svona leikja, en í kvöld vor­um við 100% frá byrj­un. Þá náðum við þessu for­skoti sem var erfitt að tapa niður,“ sagði Adam, en Hauk­ar skoruðu fimm fyrstu mörk leiks­ins og komust svo í 9:2. Adam virt­ist geta skorað að vild, alla vega um tíma:

„Mér leið mjög vel í kvöld. Þeir byrjuðu mjög var­færn­ir, leyfðu mér að koma inn að punktalínu og það er bara gjöf fyr­ir mig. Þeir fóru svo aðeins að stíga mig út, en duttu aft­ur niður,“ sagði Adam. Blaðamaður sá hann fá skýr skila­boð frá markverðinum Giedrius Mork­unas fyr­ir leik, en hver voru þau?

„Við töl­um alltaf sam­an fyr­ir leik, og það skil­ar sínu. Hann var bara að segja mér að berja á mönn­um í vörn­inni og skjóta vel,“ sagði Adam. Þessi unga skytta sýndi takta í kvöld sem gefa til kynna að hann muni berj­ast um sæti í A-landsliðinu í framtíðinni, og eft­ir að hafa séð aðra leik­menn úr Olís­deild­inni fá tæki­færi á Gull­mót­inu í Nor­egi fyr­ir skömmu hlýt­ur það að vera eitt­hvað sem Adam hugs­ar um, eða hvað?

„Auðvitað lang­ar manni að spila með landsliðinu en maður þarf fyrst að sýna sig hér bet­ur, og ná betri takti í sín­um leik því ég er stund­um svo­lítið upp og niður. Þegar ég verð orðinn nógu góður þá kem­ur kallið,“ sagði Adam yf­ir­vegaður.

Hann átti sviðsljósið í kvöld, en í síðasta leik var það Jan­us Daði Smára­son sem var allt í öllu í sókn­ar­leik Hauka og skoraði 13 mörk. Jan­us var hins veg­ar á bekkn­um stærst­an hluta leiks­ins í kvöld, meðal ann­ars vegna eymsla í ökkla. En hafa þeir fé­lag­ar bara ákveðið að skipta sviðsljós­inu á milli sín á milli leikja?

„Við köst­um bara ten­ing upp á það inni í klefa hvor á að sjá um að skora mörk­in. Ég var í banni í síðasta leik og þá tók Jan­us þetta á sig, og svo ég í dag,“ sagði Adam lauflétt­ur.


Íslandsmeistarar Hauka eru erfiðir heim að sækja



15. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri sækir Haukana heim á mánudaginn

Akureyri sækir Íslandsmeistara Hauka heim á mánudaginn klukkan 19:00. Bæði lið hafa verið á hörku siglingu að undanförnu en Haukarnir unnu meðal annars topplið Vals á föstudaginn og geta með sigri tyllt sér á toppinn. Akureyri hefur hinsvegar unnið 5 af síðustu 7 leikjum sínum eftir erfiða byrjun og er að klífa upp deildina, það má því búast við hörkuleik.



Haukar fóru illa með Akureyri þegar liðin mættust í KA-Heimilinu í 4. umferð Olís deildarinnar í september en Akureyri vann hinsvegar góðan 5 marka sigur þegar liðin mættust síðast að Ásvöllum. Myndband frá leik liðanna að Ásvöllum undir lok síðasta tímabils má sjá hér að neðan:



Janus Daði Smárason fór mikinn þegar Haukar unnu Val á föstudaginn en hann gerði 13 mörk á sama tíma og Giedrius Morkunas varði eins og berserkur í markinu en hann lék einmitt lykilhlutverk þegar Haukar urðu Íslandsmeistarar. Elíasi Má Halldórssyni má svo ekki gleyma en þessi fyrrum leikmaður Akureyrar hefur verið gríðarlega stór hluti af upprisu Haukanna og ljóst að strákarnir þurfa að hafa góðar gætur á fyrrum liðsfélaga sínum til að eiga möguleika á sigri á morgun.

Við hvetjum alla Akureyringa fyrir sunnan til að mæta á leikinn og styðja liðið til sigurs, áfram Akureyri!

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson