Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jarmila stóð fyrir sínu í markinu









7. febrúar 2007 - SMS skrifar 

Stórt tap gegn Stjörnunni

Í kvöld tók kvennalið Akureyrar á móti toppliði Stjörnunnar. Þetta var fyrsti heimaleikur nýráðins þjálfara, Jónatans Þórs Magnússonar, og gaman að sjá hvernig stelpunum hans myndi ganga í frumraun hans sem þjálfari m.fl kvk í KA heimilinu. Fyrirfram voru Stjörnustelpur klárlega sigurstranglegri þar sem þær voru á toppi deildarinnar og Akureyri í neðsta sæti með aðeins 1 stig.

En það var Akureyri sem skoraði fyrsta markið og var þar að verki Ester Óskarsdóttir. Þar sem Akureyri hefur verið þekkt fyrir að eiga mjög góða fyrri hálfleiki í vetur bjóst fólk við að stelpurnar myndu halda áfram og þetta væri aðeins byrjunin. En eftir að Ester skorar, skora Stjörnustúlkur 5 mörk í röð og breyta stöðunni úr 1-0 í 1-5 . Sóknarleikur Akureyrar var frekar slakur og áttu þær fá svör við góðri 3-2-1 vörn Stjörnunnar. Allt var reynt, allskonar kerfi en ekkert gekk almennilega upp. Stjarnan stal boltanum trekk í trekk og skoraði mörg af mörkum sínum úr hraðaupphlaupum. Akureyri spilaði fína 6-0 vörn á köflum en þrátt fyrir það lak boltinn inn og átti Sibba ekki sinn besta dag í markinu. Jarmila kom inn eftir 13 mín leik og byrjaði á því að verja 2 bolta.

Eftir 16 mín var staðan orðin 4-9 fyrir Stjörnuna og virtist sem Akureyri ætlaði að hanga í þeim. Sóknarleikurinn var hinsvegar ekki mikið að ganga þar sem mikið var um hnoð á línuna og virtist sem þær væru hræddar við að fara sjálfar alla leið í gegn. Í hvert skipti sem Akureyri skoraði þá tók Stjarnan hraða miðju og um leið voru Akureyrarstelpurnar oft á köflum lengi að skila sér til baka. Staðan í hálfleik var 10-17 Stjörnunni í vil.

Seinni hálfleikur byrjaði eins og svo oft áður alls ekki vel. Þegar 12 mín voru liðnar af seinni hálfleik mátti halda að Akureyrar liðið hefði bara sent 2 leikmenn til leiks, Lilja Þórisdóttir skoraði 4 fyrstu mörkin fyrir AK og var sú eina sem einhver ógn var af, og svo var Jarmila að verja fínt í markinu. Aðrir leikmenn virtust bara ekki með lífsmarki. Jarmila gerði hvað best þegar hún stöðvaði tvö hraðaupphlaup Stjörnunnar þegar hún kom út og náði að slá boltann útaf eftir að þær reyndu langa sendingu. Fátt markvert gerðist í seinni hálfleik annað en það að Stjarnan jók muninn smátt og smátt en þó sýndi AK stelpur góðar sóknir inn á milli. Lokatölur í leiknum voru 19-36 fyrir Stjörnuna.

Það sem mátti helst sjá í leik Akureyri var það að þær voru með alls 25 glataða bolta í leiknum sem er algjörlega hræðilegt. Flestar voru með ágætis skotnýtingu en voru með svona 17 glötuðum boltum of mikið.

Hvað dómara leiksins varðar, þá virtust þeir hafa ákveðið fyrir leik að þeir vildu sleppa við öll leiðindi, rökræður og hafa bara þægilegt og gott flug heim enda féllu flestir dómar Stjörnu megin frekar en hjá Akureyri.

Batamerki mátti þó sjá á liði Akureyrar því að liðið hætti ekki að spila í hálfleik og var gaman að sjá það. En segja má að þarna hafi þær mætt ofjörlum sínum.

Maður leiksins verður að þessu sinni að heita menn leiksins þar sem ég vil útnefna Jarmilu markmann og Lilju Þórisdóttur menn leiksins fyrir að halda haus, Lilja að taka af skarið og skora góð mörk en Jarmila, sem varði 13 bolta, að reyna allt sem hún gat til að munurinn yrði sem minnstur. Taka má fram að flestir boltanna sem hún varði voru dauðafæri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson