Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Rúnar var ánægður með æfingaferðina um helgina

18. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Vel heppnuð æfingaferð meistaraflokks

Eins og við höfum greint frá fór meistaraflokkur Akureyrar Handboltafélags í æfingaferð til Hafnarfjarðar um helgina. Á föstudaginn spiluðu strákarnir við Hauka og áttu þar frábæran leik og fóru með sjö marka sigur eins og við greindum frá í gær. Seinni leikur ferðarinnar var gegn FH og lauk þeim leik með sigri FH, 31-26 sem höfðu betur á lokamínútum leiksins en skömmu áður munaði einungis einu marki, 25-24. Við höfum ekki upplýsingar um hvernig mörkin dreyfðust á mannskapinn í leiknum.

Þrátt fyrir tapið var margt mjög jákvætt í leik liðsins og í heildina var þessi ferð ákaflega vel heppnuð og nauðsynleg til að slípa liðið saman eftir langt hlé enda byrjar alvaran með fyrsta deildarleiknum næstkomandi fimmtudagskvöld.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson