Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2010-11

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Íþróttahöllin 7. október 2010 kl. 19:00
Akureyri
 
Afturelding
0
-
0
00:00
Velkomin til leiks verið er að kynna liðin


Tími   Staða   Skýring
Velkomin til leiks verið er að kynna liðin
Verið er að kynna stuðningsátak Landsbankans og Akureyrar Handboltafélags sem rennur til Hetjanna. Landsbankinn greiðir Hetjunum ákveðna upphæð og síðan viðbótarupphæð fyrir hvern sigur Akureyrar
Guðlaugur Arnarsson á afmæli í dag
Hörður Fannar fær viðurkenningu fyrir 100. leikinn með Akureyri Handboltafélagi
0:04 Akureyri byrjar leikinn
0:30 Geir Guðmundsson fær aukakast
0:59  Jóhann Jóhannsson leikmaður Aftureldingar fær gult spjald
1:20 Afturelding vinnur boltann
1:47 Guðmundur Hólmar vinnur boltann fyrir Akureyri
1:59 1-0 Heimir Örn Árnason skorar fyrsta mark leiksins
2:24 1-1 Afturelding jafnar snarlega
2:47  Bjarni Fritzson fær gult spjald
3:08 Bjarni Fritzson með skot í varnarvegginn og Afturelding í sókn
3:48 Bjarni Fritzson í hraðaupphlaupi en Hafþór Einarsson ver og Afturelding í sókn
4:45 Afturelding fær hornkast
4:55 1-2 Afturelding skorar
5:30 1-3 Afturelding skorar eftir mistök í sókn Akureyrar
5:44  Heimir Örn Árnason fær gula spjaldið
6:02 2-3 Hörður Fannar skorar af línu
6:14 2-4 Arnar Theódórsson skorar fyrir Aftureldingu
6:45 Brotið illa á Heimi Erni Árnasyni sem fær vítakast
7:01  Ásgeir Jónsson, Aftureldingu fær að líta gula spjaldið fyrir brotið
7:13 3-4 Bjarni Fritzson skorar úr vítakastinu
7:29  Hörður Fannar fær að líta gula spjaldið
7:59 Afturelding fær vítakast
8:11 Sveinbjörn Pétursson ver vítið og Akureyri í sókn
9:06 4-4 Bjarni Fritzson skorar úr hægra horninu og jafnar leikinn
9:18 Afturelding missir boltann
9:37 Oddur Gretarsson fær vítakast
9:37  Aron Gylfason fær gult spjald fyrir brotið á Oddi
9:41 5-4 Bjarni Fritzson öruggur og skorar úr vítinu
10:15 Dæmd lína á Aftureldingu
10:47 Guðmundur Hólmar með skot sem vörnin ver í hornkast
11:05 Hörður Fannar sækir vítakast
11:14 6-4 Bjarni Fritzson skorar af öryggi úr vítinu
11:44 Vörn Akureyrar vinnur boltann
12:07  Ásgeir leikmaður Aftureldingar fær brottvísun
12:34 Dæmdur ruðningur á Akureyri
13:02 6-5 Bjarni Aron minkar muninn fyrir Aftureldingu
13:47 7-5 Oddur Gretarsson skorar gott mark úr vinstra horninu
14:21 Sveinbjörn Pétursson ver en Afturelding fær frákastið
14:45  Hörður Fannar sendur útaf í smákælingu
15:04 7-6 Afturelding minkar muninn
15:21 Dæmd skref á Aftureldingu
15:55 Afturelding í hraðaupphlaup
16:22 En Sveinbjörn Pétursson ver meistaralega hraðaupphlaupið
16:56 Ólögleg blokk á Akureyri
17:34 Afturelding með skot yfir
18:09 8-6 Bjarni Fritzson með ævintýralegt mark, fer inn úr horninu alveg við endalínu
18:38 8-7 Arnar Theódórsson skorar fyrir Aftureldingu
19:15 9-7 Oddur Gretarsson með mark úr vinstra horninu
19:51 Afturelding fær aukakast
20:08   Heimir Örn Árnason rekinn útaf
20:20 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
21:04 9-8 Eyþór Vestmann skorar fyrir Aftureldingu
21:25 Hlynur Matthíasson er kominn í sóknina
21:47 9-9 Atli Hilmarsson tekur leikhlé eftir að Afturelding jafnaði leikinn
21:51 Leikurinn hefst á ný
22:35 Guðmundur Hólmar fær vítakast
22:35 10-9 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
22:35  Afturelding missti Þorkel Guðbrandsson útaf þegar vítið var dæmt
22:51 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
23:40 11-9 Guðmundur Hólmar skorar
23:53  Aftureldingu missti annan mann, Jóhann Jóhannsson útaf
23:53  Gunnar Andrésson þjálfari Aftureldingar fær gult spjald vegna mótmæla
24:24 11-10 Afturelding minkar muninn
24:42 12-10 Oddur Gretarsson skorar
25:07  Afturelding fær vítakast og Guðmundur Hólmar rekinn útaf
25:24 Sveinbjörn Pétursson ekkert að hika og ver vítið og Akureyri í sókn
25:46 13-10 Geir Guðmundsson rífur sig í gegn og skorar
26:01 Afturelding tekur leikhlé
26:01 Leikurinn hefst á ný
26:14 Afturelding með skot yfir markið
26:26 Akureyri með fullskipað lið
26:46 Oddur Gretarsson með skot sem Hafþór ver og Afturelding heldur í sókn
27:27 13-11 Arnar Theódórsson skorar fyrir Aftureldingu
27:30   Hreinn Hauksson braut á Arnari og var rekinn útaf
27:55 13-12 Afturelding vinnur boltann og Ásgeir Jónsson skorar
28:31  Hrafn Ingvarsson rekinn útaf hjá Aftureldingu
29:07 14-12 Geir Guðmundsson lyftir sér upp og skorar
29:30 15-12 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupplaupi
30:00 Sveinbjörn Pétursson ver og fyrri hálfleikur rennur út
31:38 16-12 Heimir Örn Árnason skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks
32:04 17-12 Hörður Fannar bætir við marki úr hraðaupphlaupi
32:24 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
33:04 Dæmdur ruðningur á Geir Guðmundsson
33:36 Dæmd lína á Aftureldingu
34:37 18-12 Guðmundur Hólmar skorar eftir uppstökk
35:16 18-13 Arnar skorar fyrir Aftureldingu
35:49 19-13 Geir Guðmundsson með glæslegt mark, þversláin inn
36:30 Afturelding með skot framhjá
36:46 20-13 Bjarni Fritzson skorar úr hægra horninu
37:13 Sveinbjörn Pétursson ver frábærlega og Akureyri með boltann
37:34 21-13 Bjarni Fritzson inn af línunni og skorar
37:51 Afturelding tekur leikhlé
37:51 Akureyri hefur byrjað seinni hálfleikinn frábærlega og stemmingin í húsinu alveg mögnuð
37:53 Afturelding byrjar leikinn á ný
38:09 21-14 Afturelding skorar, stöngin inn
38:44 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið
38:54 21-15 Ásgeir Jónsson skorar fyrir Aftureldingu af línunni
39:07   Guðlaugur Arnarsson rekinn útaf
39:30 Sóknarbrot á Akureyri
40:01 Afturelding með skot í slá og Akureyri fær boltann
40:25 Geir Guðmundsson óheppinn og fær dæmdan á sig ruðning
40:42 21-16 Þorlákur minkar muninn fyrir Aftureldingu
41:40 21-17 Afturelding skorar úr hraðaupphlaupi
42:15 22-17 Geir Guðmundsson skorar af miklu harðfylgi
43:24 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
43:38 23-17 Guðmundur Hólmar skorar snaggaralega
43:50 Hafþór Einarsson kemur í mark Aftureldingar
45:03 Afturelding með skot í stöng
45:19 Oddur Gretarsson lætur Hafþór verja frá sér úr dauðafæri
45:33 Akureyri vinnur boltann
45:50 Halldór Árnason kominn á línuna
46:06 Akureyri fær hornkast
46:22 Sóknarbrot á Akureyri
46:49 23-18 Ásgeir skorar af línu fyrir Aftureldingu
47:07 Guðmundur Hólmar með skot í stöng og Afturelding með boltann
47:41 Afturelding fær aukakast
47:52 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
48:21 24-18 Oddur Gretarsson skorar af línu eftir glæsisendingu Heimis
48:41 Aftureldingarmenn brotlegir í sókninni
48:59  Guðlaugur Arnarsson rekinn útaf öðru sinni og Afturelding fær víti
49:19 24-19 Afturelding skorar úr vítinu
49:42 Daníel Einarsson kominn inná en á skot í stöng og Afturelding fær boltann
50:15 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri leggur í sókn
50:55 Oddur Gretarsson með skot sem Haffi ver
51:11 Afturelding fær vítakast
51:27 Vítið fer í þverslána og Akureyri vinnur boltann
52:09 Dæmdur fótur á Akureyri
52:44 Akureyri vinnur boltann
53:03 Guðmundur Hólmar með skot sem Hafþór ver, Afturelding í sókn
53:33 24-20 Reynir Árnason skorar fyrir Aftureldingu
53:48 Atli Hilmarsson tekur leikhlé það þarf aðeins að róa menn í sóknarleiknum
53:48 Akureyri byrjar leikinn á ný
54:12 Guðmundur Hólmar vinnur vítakast
54:37 Bjarni Fritzson skýtur í þverslá og Afturelding vinnur boltann
55:21 24-21 Þorkell skorar fyrir Aftureldingu
55:52 Bjarni Fritzson með skot í stöng og útaf
56:22  Afturelding fær aukakast og Atli Hilmarsson þjálfari fær gult spjald
56:50 Afturelding fær annað aukakast – af ódýrari gerðinni
57:14 Afturelding með skot framhjá
57:34 Heimir Örn Árnason fær aukakast
58:02 25-21 Guðmundur Hólmar skorar með góðu skoti fyrir utan punktalínu
58:21 25-22 Bjarni Aron skorar fyrir Aftureldingu
58:54 26-22 Guðmundur Hólmar skorar með langskoti
59:11 26-23 Reynir Árnason skorar fyrir Aftureldingu
59:28 27-23 Hörður Fannar vippar af öryggi yfir Hafþór og í netið
59:36  Hörður Fannar rekinn útaf
59:41 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
59:53 28-23 Oddur Gretarsson skorar úr hraðri sókn
60:00 Leiktíminn rennur út og sanngjarn sigur Akureyrar í höfn
Norðlenska útnefnir leikmenn leiksins. hjá Aftureldingu var valinn Hafþór Einarsson
Besti leikmaður Akureyrar var valinn Oddur Gretarsson og fá þeir Hafþór matarkörfur frá Norðlenska
Við þökkum fyrir okkur í dag, næsti leikur Akureyrar er útileikur gegn Fram laugardaginn 16. október og verður hann sýndur beint á RÚV.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson