Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2010-11

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Eimskipsbikarinn - Víkinni 5. desember kl. 16:00
Víkingur
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Víkingur byrjar leikinn


Tími   Staða   Skýring
Víkingur byrjar leikinn
0:25 Sveinbjörn Pétursson ver fyrsta skotið og Akureyri í sókn
0:52 0-1 Bjarni Fritzson inn úr horninu og skorar fyrsta mark leiksins
1:12 Það eru ca 50 áhorfendur í húsinu
1:50 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
2:23 Guðmundur Hólmar er ekki með vegna meiðsla
2:35 0-2 Oddur Gretarsson fer inn úr horninu og skorar
2:57 0-3 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Höddi vann boltann
3:26  Guðlaugur Arnarsson fær gult spjald
3:52 Hlynur Matthíasson spilar í skyttustöðunni í stað Gumma
4:04 Sveinbjörn Pétursson ver en Víkingar ná frákastinu
4:21 0-4 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi eftir vörslu Sveinbjörns
5:08 1-4 Víkingar skora sitt fyrsta mark
6:11 Gólfið virðist mjög hált og menn detta hver um annan þveran, Akureyri með boltann
6:38 Hörður Fannar fær vítakast
6:50  Einn Víkinga rekinn útaf
6:52 1-5 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
7:14 2-5 Jón Hjálmarsson skorar fyrir Víking
7:39 Bjarni Fritzson í gegn og fær vítakast
7:59 2-6 Oddur Gretarsson fer á vítapunktinn og skorar
8:31  Hlynur Matthíasson fær gult
8:50  Gult á bekkinn hjá Víkingum
9:12  Heimir Örn Árnason rekinn útaf
9:23 Víkingur með fullskipað lið
8:20 Víkingur skjóta framhjá
9:00  Brottvísun á einn Víkinginn fyrir brot á Hlyni Matthíassyni
9:52 Bjarni Fritzson fær dæmd á sig skref
10:04 Sveinbjörn Pétursson ver en Víkingar fá frákastið
10:20 3-6 Víkingar skora
10:32 Lið Akureyrar fullskipað á ný
10:49  Spjald á Víkinga
11:11 3-7 Oddur Gretarsson skorar úr horninu eftir að við náðum frákasti
11:37 Víkingur fær vítakast
11:52 4-7 Víkingar skora úr vítinu
12:06 Víkingur fær manninn inná, fullskipað í liðum
12:23 Geir Guðmundsson lætur verja frá sér í upplögðu færi
12:38 Hörður Fannar ver í vörninni
13:16 5-7 Víkingar skora eftir að höndin var komin upp
13:37 Geir Guðmundsson inn en fær bara aukakast
13:54 Hlynur Matthíasson með misheppnaða sendingu og boltinn útaf
14:04  Hlynur Matthíasson fær brottvísun
14:55 Höndin er uppi
15:13  Brottvísun á Víkinga, leikmaðurinn er að fá sína 2. brottvísun
15:20  Þetta er besta skytta Víkinga, sem greinilega er ósáttur og lætur það kröftuglega í ljós og fær útilokun að launum!
15:23 5-8 Heimir Örn Árnason með skot og mark
15:45 Víkingar með skot í stöngina, fá samt boltann
16:05 6-8 Víkingur skorar
16:37 Hlynur Matthíasson fær dæmdan á sig ruðning
16:53 Víkingur fær manninn inná og því með fullskipað lið
17:28 Dæmdur fótur á Hörð Fannar þannig að Víkingur fær boltann á ný
18:00 Höndin er uppi
18:12 Víkingar með skot framhjá
18:22 6-9 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi
19:06  Heimir Örn Árnason fær sína aðra brottvísun
19:26 Víkingur missir boltann
20:05 6-10 Bjarni Fritzson með skot fyrir utan í varnarvegginn og inn
20:31 Víkingur fær dæmdan á sig ruðning
20:59 6-11 Geir Guðmundsson brýst í gegn og skorar
21:29 Sveinbjörn Pétursson með frábæra vörslu
21:38 6-12 Oddur Gretarsson með hraðaupphlaupsmark
22:03 Það er orðið jafnt í liðum
22:18 Víkingar skjóta framhjá
22:45 Bergvin Gíslason er að leika í horninu en Oddur er fyrir utan
23:11 Víkingar með skot í stöng og útaf
23:20  Annað gult spjald á Víkingsbekkinn
23:20  Sem þýðir brottvísun hjá þeim
23:29 6-13 Bergvin Gíslason inn úr horninu og skorar
23:54 Sveinbjörn Pétursson ver í dauðafæri en Víkingur fær innkast
24:15 7-13 Víkingur skorar úr langskoti
24:29 7-14 Heimir Örn Árnason brýst í gegn og skorar
25:07 Akureyrarvörnin ver í innkast
25:26 8-14 Víkingar skora fyrir utan
25:40 8-15 Hörður Fannar með fínt mark af línunni
26:15 Víkingar fá aukakast
26:23 9-15 Þeir skora með langskoti
26:46 Hörður Fannar fær á sig ólöglega blokk
26:59 10-15 Víkingar bæta við marki
27:30 Bjarni Fritzson fær dæmda á sig línu
28:12 11-15 Víkingar skora eftir rólegheitasókn
28:40 11-16 Geir Guðmundsson í loftið og skorar
29:22  Akureyri vinnur boltann en Hörður Fannar rekinn útaf
29:38 Heimir Örn Árnason í gegn en fær aukakast
29:44 Oddur Gretarsson fær dæmd á sig skref
30:00 Fótur á Víkinga og fyrri hálfleikurinn rennur út
30:00 Akureyri byrjar seinni hálfleikinn
30:09 Sveinbjörn Pétursson ver úr dauðafæri og Akureyri með boltann
30:29 Akureyri verður manni færri um hríð
30:55 Akureyri fær aukakast
31:14 Bjarni Fritzson inn úr vonlausu færi og skotið framhjá
31:29 11-17 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi
32:09 12-17 Víkingar skora
32:35 Geir Guðmundsson í gegn og fær víti
32:58 12-18 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
33:26 Víkingur fær aukakast
33:48 12-19 Oddur Gretarsson skorar úr glæsilega útfærðu hraðaupphlaupi
34:11 Víkingar fá dæmd á sig skref
34:36 Hörður Fannar lætur verja frá sér á línunni
35:10 Víkingur fær aukakast
35:26 Heimir Örn Árnason ver í vörninni, þeir fá hornkast
35:43 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
36:23 Bergvin Gíslason lætur verja úr horninu
36:37 12-20 Hörður Fannar nær frákastinu og skorar
37:06 Víkingur í gegn en skjóta framhjá
37:35 12-21 Oddur Gretarsson fer í gegn og skorar með tilþrifum
38:05 Víkingur fær aukakast
38:19 Víkingar skjóta framhjá
38:30 12-22 Bergvin Gíslason inn úr horninu og skorar úr hraðaupphlaupi
38:54 12-23 Guðlaugur Arnarsson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Oddur stal boltanum
39:38 Víkingar með skot í stöng og framhjá
39:55 Daníel Einarsson kemur inná í stað Geirs
40:17 12-24 Bjarni Fritzson með skot fyrir utan og fínt mark
41:10 Sveinbjörn Pétursson ver en Víkingar fá víti
41:24 Stefán Guðnason kemur inná í vítið
41:36 13-24 Stefán Guðnason ver vítið en Víkingar ná frákastinu og skora
41:43 Misheppnuð sending og Víkingar fá boltann
41:47 Víkingar skjóta yfir
42:24 Hörður Fannar með skot í stöng af línunni
42:40 Víkingar með skot framhjá
43:12 Daníel Einarsson inn úr horninu en fær vítakast
43:28 13-25 Bjarni Fritzson fíflar markvörðinn og skorar auðveldlega úr vítinu
44:35 14-25 Jón Hjálmarsson skorar fyrir Víkinga
44:52 Stefán Guðnason skiptir við Sveinbjörn í markinu
45:12 Brotið á Heimi Erni Árnasyni en ekkert dæmt, fáránlegt
45:30 15-25 Víkingar skora í kjölfarið
46:15 Oddur Gretarsson kominn í gegn en lætur verja frá sér
46:38 Stefán Guðnason ver
46:53 15-26 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi
47:21 16-26 Víkingar skora
47:49 Leikurinn er að leysast upp í kæruleysi, leikmenn Akureyrar taka allskyns sénsa í sókninni
48:09 Halldór Árnason fær aukakast
48:20 Halldór Árnason fær víti
48:46 16-27 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
49:05 Stefán Guðnason ver en Víkingar ná boltanum
49:15 Stefán Guðnason ver á ný en nú fá Víkingar aukakast
49:58  Heimir Örn Árnason fær sína þriðju brottvísun
50:00  Heimir Örn Árnason fær þar með rautt og kemur ekki meira við sögu
50:01 16-28 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Gulli vann boltann
50:48 16-29 Bergvin Gíslason skorar úr hraðaupphlaupi
51:22 Stefán Guðnason ver meistaralega
51:30 16-30 Bjarni Fritzson skorar sirkusmark í hraðaupphlaupi
51:56 Víkingur fær á sig ólöglega blokk
52:22 Geir Guðmundsson fær fríkast
52:30 Jón Heiðar er kominn inná
52:57 16-31 Bergvin Gíslason skorar
53:25 17-31 Víkingar skora
53:45 Hlynur Matthíasson er að spila í skyttunni
54:12 Brotið á Geir Guðmundssyni sem hefði átt að fá eitthvað en ekkert dæmt
54:31 18-31 Víkingar skora
54:58 Meðalaldurinn í liði Akureyrar er ekki hár þessa stundina
55:13 Jón Heiðar með skot sem er varið en við höldum boltanum
55:29 18-32 Jón Heiðar sleppur í gegn og skorar
56:25 Akureyri vinnur boltann
56:52  Brottvísun á Víkinga fyrir brot á Hlyni Matthíassyni
56:56 18-33 Hlynur Matthíasson svarar með góðu marki fyrir utan
57:20 Víkingur fær aukakast
57:36 Stefán Guðnason ver en Víkingur fær fríkast
58:01 Víkingur fær vítakast
58:10 Stefán Guðnason ver vítið, það þýðir ekkert að ætla að hausa Stebba!
59:00 Lína dæmd á Daníel Einarsson
59:16 Stefán Guðnason ver úr hraðaupphlaupi
59:27 18-34 Daníel Einarsson lyftir sér upp og skorar fyrir utan
59:50 Stefán Guðnason ver og kastar boltanum fram
60:00 Oddur Gretarsson nær ekki boltanum og leiktíminn rennur út
60:00 Öruggur sigur í höfn og Akureyri komið í fjögurra liða úrslit bikarsins
60:00 Við þökkum Hlyni Jóhannssyni fyrir að vera augu okkar í Víkinni og minnum á næsta leik sem er stórleikur gegn Fram sunnudaginn 12. des klukkan 16:30

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson