Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Olís-deildin 19. september kl. 19:00 í Höllinni
Akureyri
 
Fram
0
-
0
00:00
Velkomin til leiks, leikmannakynning er að hefjast


Tími   Staða   Skýring
Velkomin til leiks, leikmannakynning er að hefjast
Dómarar í dag eru Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Eftirlitsdómari er Einar Sveinsson
Lið Akureyrar: Jovan Kukobat, Tomas Olason, Andri Snær Stefánsson, Bjarni Fritzson, Hreinn Hauksson, Halldór Logi Árnason, Þrándur Gíslason, Valþór Guðrúnarson, Gunnar Þórsson, Arnór Þorri Þorsteinsson, Jón Heiðar Sigurðsson, Kristján Orri Jóhannsson, Sigþór Heimisson, Vladimir Zejak
Lið Fram: Stephen Nielsen, Svavar Már Ólafsson, Ólafur Magnússon, Ragnar Þór Kjartansson, Stefán Baldvin Stefánsson, Sveinn Þorgeirsson, Birgir Smári Guðmundsson, Guðmundur Birgir Ægisson, Garðar Sigurjónsson, Arnar Freyr Ársælsson, Sigfús Páll Sigfússon, Ari Arnaldsson, Arnar Snær Magnússon, Sigurður Örn Þorsteinsson
0:00 Leikurinn er hafinn og Fram byrjar í sókn
1:03 Fram fær aukakast
1:17  Gunnar K. Malmquist Þórsson fær fyrsta spjaldið
1:54 Höndin er uppi og Fram með aukakast
2:35   Gunnar K. Malmquist Þórsson rekinn újtaaf
2:47 Jovan Kukobat ver í horninu og Akureyri í sókn
3:19 Bjarni Fritzson með skot sem er varið
4:00 Fram fær aukakast
4:13 Jovan Kukobat ver með tilþrifum frá Sveini Þorgeirssyni og Akureyri í sókn
4:36 Akureyri með fullskipað lið
5:04 Andri Snær með skot sem er varið en Akureyri heldur boltanum
5:37 Kristján Orri Jóhannsson steig afturfyrir með boltann og Fram í sókn
6:01 1-0 Valþór Guðrúnarson með fyrsta mark leiksins, stöngin, stöngin og í markmanninn og inn
6:05  Spjald á Stefán Baldvin leikmann Fram
6:40 1-1 Garðar Sigurjónsson jafnar af línunni fyrir Fram
7:20 Bjarni Fritzson með skot famhjá
7:57 Jovan Kukobat ver af línunni og Akureyri með boltann
8:20  Spjald á Garðar Sigurjónsson leikmann Fram
9:03 Akureyri fær innkast
9:24 2-1 Valþór Guðrúnarson með flott mark fyrir utan
10:09  Gunnar K. Malmquist Þórsson rekinn útaf í annað sinn
10:25 2-2 Siguður Örn skorar fyrir Fram með skoti fyrir utan
11:16 Bjarni Fritzson með skot sem er varið
11:54 Fram fær aukakast
12:07 Skref dæmd á Framarann Svein
12:23 Akureyri tekur leikhlé
12:24 Akureyri hefur leikinn aftur
13:31 Vladimir Zejak með skot sem er varið Fram með boltann
14:22 Leikurinn er stopp, mikil átök Hreinn Hauksson laminn í gólfið, sé ekki hvað gerðist
14:22  Andri Snær fékk samt spjald
15:05 Jovan Kukobat ver og Akureyri í sókn
15:27 Valþór Guðrúnarson með slakt skot framhjá
15:49 Sigfús með skot í stöng
16:34 Akureyri með misheppnaða línusendingu
17:07 Jovan Kukobat heldur áfram að verja og Akureyri í sókn
17:36 Bjarni Fritzson sleginn í gólfið
17:36  Arnar Freyr leikmaður Fram er rekinn útaf
17:36 Leikurinn fer af stað aftur
17:58 Sigþór Heimisson með skot en fær aukakast
18:33 Andri Snær vinnur vítakast
18:40 3-2 Bjarni Fritzson skorar úr vítakastinu
19:06 Jovan Kukobat ver en Fram fær aukakast
19:45 3-3 Sigurður Örn skorar fyrir Fram
20:22  Sveinn Þorgeirsson fær spjald hjá Fram
20:41 4-3 Valþór Guðrúnarson brýst í gegn og skorar
21:25 4-4 Siffi brýst í gegn af harðfylgi og jafnar eina ferðina enn
22:16 Akureyri fær aukakast
22:43 Jovan Kukobat ver hraðaupphlaup Framara en þeir fá innkast
22:59 Fram tekur leikhlé
22:59 Það er ekki mikið að gerast í sóknarleik liðanna eins og sést á markatöflunni
22:59 Fram hefur leikinn aftur
23:10 Fram fær aukakast
23:21 4-5 Garðar Sigurjónsson frír á línunni og skorar fyrir Fram
24:08 5-5 Sigþór Heimisson spólar í gegnum Framvörnina og skorar
24:43 Fram fær aukakast
24:55 Fram fær hornkast
25:33 6-5 Sigþór Heimisson aftur á ferðinni tætir sundur Framvörnina og skorar af krafti
26:31 6-6 Siffi með flott mark eftir gegnumbrot
27:07 7-6 Valþór Guðrúnarson fer inn úr horninu og skorar
27:41 Fram með skot yfir markið
28:16 Það þarf að skúra gólfið lítillega
28:18 Fram byrjara á ný
28:37 8-6 Halldór Logi Árnason skorar úr hraðaupphlaupi
29:09 9-6 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi eftir frábæra baráttu Gunnars í vörninni
29:41 Jovan Kukobat ver en Fram fær aukakast
30:00 Fram missir boltann en tíminn er of naumur til að komast í færi og flautað til hálfleiks
30:00 Valþór Guðrúnarson er með 4 mörk, Bjarni og Sigþór 2 hvor og Halldór Logi 1 mark
30:00 Hjá Fram eru Garðar, Sigfús Páll og Sigurður Örn allir með 2 mörk
30:00 Akureyri hefur seinni hálfleikinn núna
30:23 10-6 Valþór Guðrúnarson tekur upp þráðinn og skorar með skoti í gólfið og inn
31:14  Vladimir Zejak rekinn útaf
31:33 Jovan Kukobat með frábæra vörslu úr horninu og Akureyri heldur í sókn
32:22 Dæmd lína á Akureyri
32:33   Þrándur Gíslason rekinn útaf, Akureyri tveimur færri
32:51 10-7 Sigurður Örn fer í gegn um fámenna vörn Akureyrar og skorar
33:25 11-7 Valþór Guðrúnarson lyftir sér upp og skorar
33:54 Jovan Kukobat með vörslu úr dauðafæri af línunni og Akureyri með boltann
34:31 Kristján Orri Jóhannsson með skot í stöng og útaf
34:46 Akureyri með fullskipað lið
35:13 Fram fær aukakast
35:21 11-8 Siffi fer í gegn og skorar
35:39 Þrándur Gíslason með skot sem er varið í innkast
35:52 12-8 Kristján Orri Jóhannsson með glæsilegt mark úr hægra horninu
36:32 Jovan Kukobat ver frá Siffa
36:44 Vladimir Zejak með skot hátt yfir Frammarkið
37:14 12-9 Sigurður Örn með skot sem leikur inn
37:50 Akureyri fær aukakast
38:30 13-9 Þrándur Gíslason skorar af línu eftir flotta sendingu Bjarna
39:12 Fram fær hornkast
39:35 Höndin er uppi
39:50 Jovan Kukobat ver og Akureyri í sókn
40:06 14-9 Gunnar K. Malmquist Þórsson fer inn úr horninu og skorar
40:15 Fram tekur leikhlé
40:15 Fram hefur leikinn á ný
40:37 14-10 Stefán Baldvin skorar af línu
41:05 15-10 Þrándur Gíslason skorar af línunni
41:05  Steffan danski markvörður Fram virðist ekki þola mótlætið og trompast gegn Þrándi eftir markið. Steffan fær brottvísun fyrir vikið
41:20 Jovan Kukobat ver frá Sveini Þorgeirssyni og Akureyri í sókn
42:25 16-10 Bjarni Fritzson fer í gegn og skorar
42:55   Gunnar K. Malmquist Þórsson rekinn útaf í þriðja sinn fyrir verulega litlar sakir
43:05 16-11 Siffi er með lífsmarki og skorar fyrir Fram
43:55 Bjarni Fritzson fær aukakast
44:04 17-11 Kristján Orri Jóhannsson fer inn úr horninu og skorar
44:38 Jovan Kukobat heldur uppteknum hætti og étur Garðar á línunni
45:06 18-11 Valþór Guðrúnarson brýtur sér leið í gegn og skorar
45:36 18-12 Siffi berst áfram og skorar fyrir Fram
46:09 Sigþór Heimisson með slakt skot sem er varið
46:55 Andri Snær stoppar Siffa sem fær aukakast
47:23 Ruðningur á Fram
47:43 Vladimir Zejak tapar boltanum en Framarar skjóta í gólfið og yfir úr hraðaupphlaupinu
48:24 Arnór Þorri Þorsteinsson stoppaður gróflega en aðeins dæmt aukakast
48:54 19-12 Arnór Þorri Þorsteinsson svarar fyrir sig með stórbrotnu marki fyrir utan
49:25 19-13 Ólafur Magnússon á auðum sjó á línunni og skorar
50:02 Sigþór Heimisson með skot sem er varið en Akureyri heldur boltanum
50:05 Akureyri tekur leikhlé
50:14 Akureyri byrjar aftur
50:22 20-13 Valþór Guðrúnarson með flott mark fyrir utan
51:12 Akureyri vinnur boltann
51:28  Sigurður Örn Framari rekinn útaf fyrir knattspyrnutilburði
51:51 21-13 Sigþór Heimisson með eldsnöggt skot og mark
52:15 Akureyri vinnur boltann
52:55 21-14 Stefán Baldvin skorar úr hraðaupphjlaupi
53:22  Sigþór Heimisson rekinn útaf
53:38 21-15 Sveinn Þorgeirsson skorar fyrir Fram
54:12 22-15 Kristján Orri Jóhannsson fer í gegn og skorar
54:42 23-15 Kristján Orri Jóhannsson vinnur boltann og skorar úr hraðaupphlaupinu
55:11 23-16 Ólafur Magnússon skorar úr hægra horninu
55:58 Akureyri fær horn höndin er uppi
56:13 23-17 Stefán Baldvin skorar úr hraðaupphlaupi
56:43 24-17 Jón Heiðar labbar í gegnum Framvörnina og skorar
57:13 Fram fær innkast
57:32 24-18 Stefán Baldvin veður í gegn og skorar
58:09 Þrándur Gíslason fær á sig línu
58:29 Fótur dæmdur á Akureyri
58:48 Jovan Kukobat ver en Fram nær boltanum
59:04 25-18 Kristján Orri Jóhannsson skorar úr hraðaupphlaupi
59:43 Jovan Kukobat ver af línunni og Akureyri í sókn
60:00 Valþór Guðrúnarson með skot yfir og tíminn rennur út
60:00 Í liði Fram er Sigfús Páll (Siffi) valinn maður leiksins
60:00 Jovan Kukobat er leikmaður Akureyrarliðsins. Báðir fá dýrindis matarkörfur frá Norðlenska í viðurkenningarskyni
60:00 Við þökkum fyrir okkur í kvöld, dýrmæt stig í hús

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson