Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Olís deild karla 21. mars 2015 kl. 17:00 í Íþróttahöllinni
Akureyri
 
ÍBV
0
-
0
00:00
Velkomin til leiks það er verið að kynna liðin


Tími   Staða   Skýring
Velkomin til leiks það er verið að kynna liðin
Lið heimamanna:
1 Tomas Olason
3 Hreiðar Levy Guðmundsson
4 Birkir Guðlaugsson
6 Halldór Logi Árnason
9 Þrándur Gíslason
11 Jón Heiðar Sigurðsson
13 Heimir Örn Árnason
14 Sverre Andreas Jakobsson
17 Bergvin Þór Gíslason
19 Kristján Orri Jóhannsson
20 Arnór Þorri Þorsteinsson
23 Heiðar Þór Aðalsteinsson
28 Nicklas Selvig
32 Ingimundur Ingimundarson
Lið ÍBV:
1 Kolbeinn Aron Ingibjargarson
16 Haukur Jónsson
4 Magnús Stefánsson
5 Agnar Smári Jónsson
6 Bergvin Haraldsson
7 Dagur Arnarsson
8 Hákon Daði Styrmisson
9 Einar Sverrisson
14 Guðni Ingvarsson
15 Brynjar Karl Óskarsson
19 Svavar Kári Grétarsson
23 Theodór Sigurbjörnsson
24 Andri Heimir Friðriksson
73 Grétar Þór Eyþórsson
Dómarar í dag eru Ingvar Guðjónsson og Þorleifur Árni Björnsson
Akureyri saknar Sigþórs Árna Heimissonar sem meiddist á æfingu á fimmtudaginn
0:10 Akureyri byrjar leikinn
0:31 Heimir Örn Árnason stjórnar leiknum í upphafi
0:47 1-0 Bergvin Þór Gíslason skorar fyrsta mark leiksins fyrir utan
1:30 Agnar Smári, leikmaður ÍBV með sendingu langt upp í stúku
2:09 Þrándur Gíslason fær aukakast
2:19 Heimir Örn Árnason með skot sem er varið og ÍBV heldur í sókn
2:33 Bergvin Þór Gíslason fiskar ruðning á Agnar Smára
2:33 Leikurinn er stopp Agnar Smári varð fyrir smáhnjaski
2:37 Leikurinn hafinn á ný og Agnar heldur áfram leik
2:55 Heimir Örn Árnason fær dæmdan á sig ruðning
3:06 1-1 Andri Heimir jafnar úr hraðri sókn
3:40 2-1 Nicklas Selvig með mark fyrir utan eftir gott uppstökk
4:35 2-1  Sverre Andreas Jakobsson fékk spjald
5:04 ÍBV með skot framhjá
5:43 Sverre Andreas Jakobsson skorar en dómararnir of fljótir að flauta þannig að Akureyri fær aukakast
6:10 3-1 Kristján Orri Jóhannsson fer í gegn og skorar
6:41 Akureyrarvörnin ver í horn
7:01  Bergvin Þór Gíslason fær spjald
7:17 ÍBV með skot framhjá - Einar Sverrisson
7:56 4-1 Heimir Örn Árnason með skot og mark af gólfinu
8:25 Magnús með skot framhjá Akureyrarmarkinu
8:46 5-1 Kristján Orri Jóhannsson æðir í gegnum vörn ÍBV og skorar
9:12 5-2 Magnús Stefánsson með mark - skot af gólfinu
9:48 6-2 Ingimundur Ingimundarson með skot sem endar í netinu
10:21 6-3 Magnús Stef með mark - Tomas var í boltanum en hann fór inn
10:58 7-3 Kristján Orri Jóhannsson með mark úr horninu eftir flotta sendingu frá Nicklas
11:34 7-4 Magnús Stefánsson heldur áfram og skorar fyrir ÍBV
11:52 ÍBV skiptir um markvörð – Haukur Jónsson er kominn í markið
12:20 Bergvin fær dæmdan á sig ruðning en í kjölfarið eru dæmd skref á Magnús hjá ÍBV þannig að Akureyri er í sókn
13:01 Nicklas Selvig fær aukakast
13:15 Þrándur Gíslason fær aukakast
13:29 Ingimundur Ingimundarson með skot sem er varið
14:00 7-5 Einar Sverrisson skorar fyrir ÍBV
14:19 Hreiðar Levý Guðmundsson kemur í markið hjá Akureyri
14:52 8-5 Þrándur Gíslason skorar af línunni eftir draumasendingu frá Heimi
15:17 Einar Sverrisson ÍBV hendir boltanum afturfyrir
15:54 Hreiðar Levý Guðmundsson ver hraðaupphlaup og Akureyri í sókn
16:37 8-6 Andri Heimir skorar úr hraðaupphlaupi
17:16  Guðni rekinn útaf fyrir gróft brot á Bergvin
17:37  Theódór fær spjald fyrir brot á Heimi
17:53 9-6 Nicklas Selvig með neglu upp í samskeytin
18:52 Hreiðar Levý Guðmundsson með vörslu og Nicklas nær frákastinu
19:18 10-6 Nicklas Selvig með sitt þriðja mark í dag
19:51 Hreiðar Levý Guðmundsson ver af línu en ÍBV á innkast
20:12 Hreiðar Levý Guðmundsson með flotta vörslu og Akureyri með boltann
20:44 11-6 Bergvin Þór Gíslason fintar sig í gegn og skorar
21:06 ÍBV fær vítakast
21:26 11-7 Grétar Þór skorar úr vítinu
22:11  Magnús Stefánsson fær spjald
22:32 Akureyri tapar boltanum - ólögleg blokk á Þránd
23:19 11-8 Guðni Ingvarsson með mark af línu
23:53 Heimir Örn Árnason með skot framhjá
24:05 11-9 Magnús Stefánsson á auðum sjó og skorar
24:44 Bergvin Þór Gíslason fær aukakast
25:05 Akureyri missir boltann
25:48 Hreiðar Levý Guðmundsson ver frá Agnari og Akureyri í sókn
26:33 Halldór Logi Árnason er kominn á línuna
26:40 Atli Hilmarsson tekur leikhlé
26:40 Leikurinn hefst á ný
27:00 12-9 Kristján Orri Jóhannsson með flott mark úr horninu - hans fjórða í dag
27:39 Sóknarbrot á ÍBV
28:11 Bergvin Þór Gíslason fær aukakast
28:25 Bergvin Þór Gíslason með skot sem er varið
28:34 Ruðningur á ÍBV
29:11 Halldór Logi Árnason vinnur vítakast
29:38 Heiðar Þór Aðalsteinsson klikkar á vítinu, varið. Heiðar nær frákastinu en aftur er varið!
29:45 13-9 Heimir Örn Árnason fer í gegn og skorar eftir að ÍBV átti skot í þverslána
30:00 Hreiðar Levý Guðmundsson ver lokaskot ÍBV og tryggir fjögurra marka forskot í hálfleik
30:00 ÍBV hefur seinni hálfleikinn
30:47 Heimir Örn Árnason með skot í stöng og útaf eftir að Hreiðar hafði varið tvívegis frá ÍBV
31:08 13-10 Einar Sverrisson í loftið og skorar
31:46 Nicklas Selvig fær á sig skref
31:56 Hreiðar Levý Guðmundsson ver en ÍBV fær aukakast
32:20 13-11 Einar skorar aftur - Hreiðar var í boltanum
32:49 14-11 Nicklas Selvig spólar sig í gegn og skorar
33:09 14-12 Andri Heimir svarar fyrir ÍBV
33:37 Fótur á ÍBV
33:56 15-12 Heimir Örn Árnason með mark af gólfinu
34:37 15-13 Thedór með mark úr hægra horninu – hans fyrsta í dag
35:13 16-13 Halldór Logi Árnason með mark af línunni - Heimir með flotta sendingu
35:50 ÍBV fær aukakast
36:17 Hreiðar Levý Guðmundsson ver og Akureyri í sókn
36:35 Nicklas Selvig klikkar
36:39 16-14 Magnús Stefánsson skorar af línu – hans fimmta mark í dag
37:10 Nicklas Selvig fær aukakast
37:41 17-14 Halldór Logi Árnason með mark af línunni
38:20 Heiðar Þór Aðalsteinsson fær á sig ruðning í hraðaupphlaupi
38:40 17-15 Theódór skorar á móti úr hraðri sókn
38:40  Ingimundur Ingimundarson fékk spjald fyrir að reyna að stöðva Theodór
39:18 Akureyri á innkast
39:38 ÍBV vinnur boltann
40:15 Hreiðar Levý Guðmundsson með magnaða vörslu en ÍBV fær ódýrt vítakast
40:49 Hreiðar Levý Guðmundsson ver vítið með tilþrifum en þó í innkast
41:32  ÍBV fær annað víti og Sverre Andreas Jakobsson brottvísun
41:33 17-16 Theódór skorar úr vítinu
42:17 ÍBV fær enn eitt víti eftir hraðaupphlaup
42:46 Hreiðar Levý Guðmundsson ver vítið og Akureyri með boltann
43:15 Bergvin Þór Gíslason vinnur vítakast
43:36 18-16 Kristján Orri Jóhannsson skorar úr vítinu
44:14 Enn eitt vítið - nú er það ÍBV sem fær
44:42 18-17 Brynjar Karl skorar úr vítinu
45:16 19-17 Nicklas Selvig með snoturt mark úr hægra horninu
45:39 Kolbeinn kemur í mjarkið hjá ÍBV
45:54 ÍBV fær hornkast
46:11 Hreiðar Levý Guðmundsson ver frá Magnúsi og Akureyri í sókn
46:44 20-17 Heiðar Þór Aðalsteinsson snýr boltann laglega í netið
46:49 ÍBV tekur leikhlé
46:49 ÍBV hefur leik á ný
47:14 ÍBV fær aukakast
47:33 Hreiðar Levý Guðmundsson ver vel frá Einari og Akureyri með boltann
48:07 Nicklas Selvig vinnur vítakast
48:31 21-17 Kristján Orri Jóhannsson skorar af öryggi úr vítinu
49:12 ÍBV fær vítakast
49:40 Hreiðar Levý Guðmundsson ver sitt þriðja víti - Akureyri með boltann
51:01 Bergvin Þór Gíslason fær aukakast
51:12 Atli Hilmarsson tekur leikhlé
51:12 Akureyri byrjar leikinn aftur
51:28 Ingimundur Ingimundarson fær aukakast
51:38 Bergvin Þór Gíslason með skot sem er varið
52:16 Hreiðar Levý Guðmundsson ver frá Einari og Akureyri með boltann
52:49 22-17 Kristján Orri Jóhannsson með glæsimark úr horninu
53:07 ÍBV tekur leikhlé
53:07 Vörn og markvarsla Akureyrar er búin að vera til fyrirmyndar í seinni hálfleiknum
53:07 ÍBV byrjar leikinn á ný
53:24 Ingimundur Ingimundarson vinnur boltann í vörninni
53:49 Nicklas Selvig fær aukakast
54:05 Ingimundur Ingimundarson fær aukakast - mikil átök á báðum endum vallarins
54:25 Kolbeinn ver tvívegis, fyrst frá Heiðar Þór og síðan frá Halldóri Loga sem náði frákastinu
54:34 22-18 Einar Sverrisson kemst í opið færi og skorar
55:01 Nicklas Selvig með skot himinhátt yfir
55:13 22-19 Hákon Daði með magnað mark úr horninu - stöngin inn
55:47 Halldór Logi Árnason fær aukakast - af hverju ekki vítakast
56:07 23-19 Kristján Orri Jóhannsson kvittar fyrir með marki úr horninu
56:31 ÍBV með skot í stöng og Akureyri vinnur boltann
56:54 Bergvin Þór Gíslason vinnur vítakast
56:54  Bergvin Haraldsson leikmaður ÍBV rekinn útaf
56:57 24-19 Kristján Orri Jóhannsson skorar úr vítinu - tæpt var það reyndar
57:50 ÍBV fær aukakasts
57:50 ÍBV fær aukakast - höndin er uppi
58:16 Akureyri vinnur boltann
58:20 Atli Hilmarsson tekur leikhlé það eru 104 sekúndur eftir
58:25 Akureyri byrjar leikinn aftur
58:55 25-19 Arnór Þorri Þorsteinsson skorar með glæsilegu skoti fyrir utan
59:45 Jón Heiðar Sigurðsson skýtur yfir eftir að boltinn hafði gengið á milli liða nokkrum sinnum
59:59 Hreiðar Levý Guðmundsson ver og leiktíminn rennur út. Magnaður og sanngjarn sigur Akureyrar
60:00 Að venju eru valdir leikmenn liðanna - hjá ÍBV er það Magnús Stefánsson
60:00 Hreiðar Levý Guðmundsson er maður Akureyrarliðsins og að sjálfsögðu fá báðir glæsilega körfu frá Norðlenska
60:00 Kristján Orri Jóhannsson skoraði 9 mörk, Nicklas Selvig 5, Heimir Örn Árnason 3, Bergvin Þór Gíslason og Halldór Logi Árnason 2 hvor, Arnór Þorri Þorsteinsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson, Ingimundur Ingimundarson og Þrándur Gíslason 1 mark hver
60:00 Hreiðar Levý Guðmundsson varði 17 skot og þar af 3 vítaköst
60:00 Við þökkum fyrir okkur í dag

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson