Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfrćđi  -  Höllin  -  Lagiđ  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilabođ - Vefur KA - Vefur Ţór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabiliđ 2015-16

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Olís deild karla 12. desember kl. 16:00 í Herz höllinni
Grótta
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Velkomin í beina lýsingu frá leik Gróttu og Akureyrar í 17. umferđ Olís deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16:00


Tími   Stađa   Skýring
Velkomin í beina lýsingu frá leik Gróttu og Akureyrar í 17. umferđ Olís deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16:00
Hálftími í leik og liđin eru farin ađ hita upp
Liđin eru jöfn ađ stigum í 6.-7. sćti deildarinnar og eru gríđarlega mikilvćg stig í bođi hér í dag. Liđiđ sem vinnur skilur sig vel frá botninum og kemur sér vel fyrir í baráttunni um gott sćti í úrslitakeppninni
Grótta er nýliđi í ár en hefur komiđ af miklum krafti í deildina. Grótta vann fyrri leik liđanna sem fram fór á Akureyri 21-27
Hópur Gróttu:
Markmenn:
Lárus Helgi Ólafsson og Lárus Gunnarsson.
Útileikmenn: Júlíus Ţórir Stefánsson, Finnur Ingi Stefánsson, Árni Benedikt Árnason, Aron Dagur Pálsson, Dađi Laxdal Gautason, Guđni Ingvarsson, Aron Valur Jóhannsson, Vilhjálmur Geir Hauksson, Styrmir Sigurđsson, Ţorgeir Bjarki Davíđsson, Ţráinn Orri Jónsson og Viggó Kristjánsson
Hópur Akureyrar:
Markmenn:
Tomas Olason og Hreiđar Levý Guđmundsson
Útileikmenn: Andri Snćr Stefánsson, Halldór Logi Árnason, Garđar Már Jónsson, Hörđur Másson, Friđrik Svavarsson, Bergvin Ţór Gíslason, Kristján Orri Jóhannsson, Róbert Sigurđarson, Sigţór Árni Heimisson, Heiđar Ţór Ađalsteinsson, Brynjar Hólm Grétarsson og Ingimundur Ingimundarson
Dómarar í dag eru ţeir Jón Karl Björnsson og Bjarni Viggósson. Kristján Halldórsson er eftirlitsdómari
Liđin eru ađ ganga inn á völlinn, fariđ ađ styttast í leikinn
Ekki eru pallarnir stórir hér á Nesinu en engu ađ síđur eru ţeir eiginlega tómir. Ţessi leikur verđskuldar miklu fleiri áhorfendur
35 áhorfendur eru mćttir, hvađ er ađ frétta?
En ţetta er allavega ađ fara ađ byrja hérna
Tomas Olason byrjar í markinu hjá Akureyri í dag
Gróttumenn munu byrja međ boltann
0:01 Grótta hefur hafiđ leikinn
0:31 Finnur Ingi í dauđafćri í horninu en setur boltann yfir
0:44 Akureyri stillir upp í sína fyrstu sókn
1:02 Hörđur Másson međ skot í vörnina og Grótta nćr boltanum
1:17 Misheppnuđ sending hjá heimamönnum og Akureyri fćr boltann
1:34  Ţráinn Orri fćr gult spjald en Akureyri missir boltann
2:18 1-0 Júlíus Ţórir fćr gott fćri í horninu og setur boltann yfir Tomas, fyrsta markiđ er komiđ
2:49 Bergvin Ţór Gíslason međ skot í vörnina og Grótta nćr boltanum
3:05 Slök sending hjá Gróttu sem fer beint útaf
3:17 Heiđar Ţór Ađalsteinsson inn úr horninu en Lárus ver frá honum
3:30 Sóknarleikur beggja liđa fer ekki vel af stađ
3:56 Tomas Olason ver undirhandarskot frá Viggó og Heiddi nćr frákastinu
4:29 Halldór Logi Árnason fćr línusendingu en er stöđvađur, varnarmennirnir báđir inn í teig en aukakast dćmt
4:55 Halldór Logi Árnason fćr aftur sendingu á línuna en aftur fćr hann aukakast
5:09 1-1 Sigţór Árni Heimisson međ gott skot af gólfinu og Akureyri er komiđ á blađ
5:37 Ingimundur Ingimundarson ver glćsilega í hávörninni frá Viggó en Grótta fćr hornkast
6:13 Sigţór Árni Heimisson fékk ágćtis opnun ţarna en Lárus sá viđ honum
6:27 Heimamenn leggja af stađ í sókn
6:59 Tomas Olason hálfgrípur boltann og Akureyri kemur í sókn
7:12 Heiđar Ţór Ađalsteinsson međ slaka sendinu og boltinn fer útaf
7:45 Ingimundur Ingimundarson varnarstaur magnađur í vörninni ţarna
7:57 1-2 Kristján Orri Jóhannsson skorar svo úr hrađaupphlaupi
8:15 Gunnar tekur leikhlé fyrir Gróttu
8:15 Ţessi leikur fer vćgast sagt rólega af stađ en okkar menn leiđa og eru ađ komast betur í gang
8:15 Gróttumenn hefja leikinn ađ nýju
8:38
8:38 Hrćđileg sending hjá heimamönnum sem endar útaf
8:51 1-3   Kristján Orri Jóhannsson skorar úr horninu og Viggó fer útaf í 2 mínútur, glćsilegt strákar!
9:18 Árni Benedikt sćkir á vörnina en Halldór Logi Árnason sér viđ honum, aukakast dćmt. Vörn Akureyrar veriđ frábćr hér í upphafi
9:40   Róbert Sigurđarson fćr gult spjald
9:53 2-3 Dađi Laxdal međ skot fyrir utan sem Tomas rćđur ekki viđ
10:16 2-4 Sigţór Árni Heimisson gerir vel ţarna eftir gott spil og forskotiđ aftur tvö mörk
10:56 3-4 Aron Dagur fćr allan tímann í heiminum fyrir framan vörnina og hann smellir boltanum í skeytin, menn verđa ađ mćta betur ţarna
11:29 3-5 Bergvin Ţór Gíslason međ baneitrađa einfalda fintu og skilar boltanum í netiđ, vel gert Beggi!
12:05 4-5 Viggó međ lúmskt skot af gólfinu og boltinn endar í netinu
12:21 4-6 Bergvin Ţór Gíslason, fintukóngur, laumar sér í gegn og skorar!
12:54 Akureyri viđ ţađ ađ ná boltanum en á síđustu stundu fá heimamenn aukakast
13:13 5-6 Viggó heldur áfram ađ plaffa á markiđ af gólfinu og setur hann í gegnum klofiđ á Tomasi
13:48 Misheppnuđ línusending hjá Akureyri og Grótta kemur í sókn
14:22 Guđni viđ ţađ ađ koma sér í fćri á línunni en fćr aukakast
14:53 Dađi Laxdal međ ţrumuskot í slánna
15:05 5-7 Bergvin Ţór Gíslason prjónar sig í gegn og skorar, heimamenn vildu ruđning en dómararnir leyfđu leiknum ađ halda áfram og Beggi gerđi vel ađ skora
15:39  Róbert Sigurđarson međ hrikalegt brot, tekur í skothöndina á Dađa Laxdal og hefđi hćglega getađ fengiđ rautt spjald. En 2 mínútur stađreynd og vítakast
15:42 6-7 Finnur Ingi skorar af öryggi af vítalínunni
16:16 Sigţór Árni Heimisson međ fína fintu en brotiđ er á honum í skotinu og hann fćr aukakastiđ
16:30 Heiđar Ţór Ađalsteinsson kemur sér í gegn en Lárus ver frá honum
16:42 Ingimundur Ingimundarson ver í hávörninni en Grótta heldur boltanum. Diddi búinn ađ vera góđur í leiknum
17:02 Boltinn dćmdur af Gróttu, ólögleg blokkering
17:28 6-8 Bergvin Ţór Gíslason kemur sér fyrir í öfugri skyttu en skorar engu ađ síđur, Beggi búinn ađ vera öflugur
17:45 Tomas Olason međ risavörslu úr dauđafćri frá Júlíusi. Grótta heldur boltanum ţar sem boltinn skaust upp í loft
18:20 Ingimundur Ingimundarson međ Guđna í vasanum á línunni, aukakast dćmt en Guđni hefur varla sést í leiknum
18:44 Róbert Sigurđarson kemur inn og stöđvar Aron Dag, mögnuđ vörn
18:57 7-8 Dađi Laxdal skýtur af gólfinu af löngu fćri en boltinn smellur í skeytunum, fúlt eftir góđa vörn
19:24 7-9 Sigţór Árni Heimisson svarar međ góđu skoti af gólfinu, Sissi og Beggi ađ bera uppi sóknarleikinn hjá Akureyri
20:03 Halldór Logi Árnason fćr aukakast, Dóri náđi ekki til boltans og Gróttumenn eru ekki sáttir međ ađ aukakast hafi veriđ dćmt ţarna
20:34 Tomas Olason međ magnađa vörslu frá Finni Inga en Gróttumenn náđu boltanum og brunuđu fram í hrađaupphlaup
20:38   Sigţór Árni Heimisson fćr gult spjald
20:38 Sverre Andreas Jakobsson tekur leikhlé
20:38 Ţetta lítur ágćtlega út hérna á Nesinu, Akureyri er međ ágćtis tak á leiknum en ţó vantar meira bit í sóknina. Beggi og Sissi eru ađ bera ţetta alveg uppi eins og er
20:39 Akureyri hefur hafiđ leikinn á nýjan leik
20:52 7-10 Bergvin Ţór Gíslason međ skot beint á Lárus í markinu en boltinn lekur í netiđ, hrikalega skemmtilegt ađ fá svona mörk!
21:20 8-10 Aron Dagur svarar fyrir heimamenn
21:42 8-11 Sigţór Árni Heimisson svífur í gegnum vörnina og skorar
21:54 Tomas Olason grípur boltann í markinu!
22:04 Bergvin Ţór Gíslason međ undirhandarskot í vörnina og Akureyri fćr hornkast
22:25 Finnur Ingi setur fótinn í boltann en sleppur međ brottvísun, furđulegt
22:46 9-11 Finnur Ingi skorar úr horninu og minnkar muninn
23:24 9-12 Uss! Hörđur Másson međ ţrumuskot í slánna og inn, Höddi ađ stimpla sig inn í leikinn
23:52 Tomas Olason međ frábćra vörslu
24:07 10-12 En heimamenn ná boltanum fljótt aftur og Finnur Ingi skorar úr hrađaupphlaupi
24:24 Grótta er nćr einungis ađ skora úr hröđum upphlaupum og seinni bylgju
24:56 Bergvin Ţór Gíslason međ skot yfir markiđ
25:34 Aron Dagur međ skot sem Tomas Olason ver vel
25:44 Enn eru okkar menn ađ missa boltann
25:53 11-12 Ţráinn skorar af línunni, heimamenn refsa vel fyrir mistök okkar manna ţessa stundina
26:21 Sigţór Árni Heimisson sleppur í gegn en dómararnir búnir ađ flauta
26:46 11-13 Bergvin Ţór Gíslason heldur áfram ađ skora fyrir utan, hver var ađ tala um ađ öxlin vćri búin á ţví?
27:14 12-13 Viggó međ skot af gólfinu og skorar
27:38 Sigţór Árni Heimisson kemst í gegn en Lárus ver frá honum, Akureyri fćr innkast
28:05 Sigţór Árni Heimisson viđ ţađ ađ komast í gegn en er stöđvađur, aukakast
28:19 Hörđur Másson međ skot í vörnina, hornkast, höndin er uppi
28:40 Grótta nćr boltanum og kemur í sóknina, ţeir geta jafnađ
28:58 13-13 Viggó heldur áfram ađ taka undirhandarskotin sín og engin furđa ţví ţau enda öll í netinu
29:20 13-14 Kristján Orri Jóhannsson skorar úr horninu eftir ađ hann náđi frákasti eftir ađ skot Harđar fór í stöngina og út
29:52 14-14 Dađi Laxdal međ skot fyrir utan og hann jafnar metin
30:00 Fyrri hálfleikur klárast og stađan er jöfn 14-14
30:00 Ţessi leikur var lengi ađ komast í gang en meiri hrađi kominn í ţetta og ţessi leikur er í járnum
30:00 Bergvin Ţór Gíslason er markahćstur Akureyrar međ 6 mörk, Sigţór Árni er međ 4, Kristján Orri 3 og Hörđur međ 1 mark
30:00 Tomas Olason er međ 8 skot í markinu, flest ţeirra úr dauđafćrum en hefur veriđ í erfiđleikum međ langskot heimamanna.
30:01 Akureyri hefur hafiđ síđari hálfleikinn, koma svo strákar!
30:42 Hörđur Másson međ skot í stöngina
30:48 En Akureyri nćr boltanum strax aftur
30:54 Hreiđar Levý Guđmundsson er kominn í markiđ
31:28 14-15 Bergvin Ţór Gíslason heldur áfram ađ skora fyrir utan, frábćrt ađ sjá til Begga í dag
32:16 Hreiđar Levý Guđmundsson ver skot frá Dađa Laxdal en hann fćr aukakast
32:32 15-15 Finnur Ingi skorar úr horninu eftir ađ hann náđi til boltans eftir ađ hávörn Akureyri hafđi variđ boltann
33:02 16-15 Vilhjálmur Geir skorar úr hrađaupphlaupi fyrir Gróttu
33:21 16-16 Bergvin Ţór Gíslason skorar enn og aftur
33:31 17-16 Dađi Laxdal skorar strax eftir ađ ţeir tóku miđjuna hratt
34:15 17-17 Bergvin Ţór Gíslason ţrumar á markiđ, höndin var komin upp og menn reiknuđu međ skot frá Herđi en hann kom boltanum á Begga og hann skorar!
34:52 18-17 Viggó međ undirhandarskot sem steinliggur
35:17 Halldór Logi Árnason nćr ekki valdi á boltanum á línunni og fćr aukakast
35:40 Hörđur Másson međ slaka sendingu sem endar útaf
36:17   Hörđur Másson fćr gult spjald fyrir brot á Dađa Laxdal
36:34 19-17 Finnur Ingi gerir virkilega vel og skorar úr ţröngu fćri
36:54 19-18 Halldór Logi Árnason snýr af sér tvo varnarmenn og skorar af línunni, mikilvćgt ađ fá Dóra í gang
37:25 Hreiđar Levý Guđmundsson ver frá Dađa Laxdal en vel gert hjá Herđi og Kristjáni í vörninni. Grótta fćr aukakast
37:47 Hreiđar Levý Guđmundsson ver slakt skot frá Viggó og Akureyri međ boltann
38:15 Akureyri missir boltann
39:01   Hörđur Másson lendir aftan í Dađa Laxdal og fer útaf í 2 mínútur, hárrétt
39:08 Hreiđar Levý Guđmundsson međ frábćra vörslu, Vilhjálmur Geir í dauđafćri í horninu og ćtlađi ađ vippa yfir Hreiđar en Hreiđar kemur fingurgómunum í boltann og ver
40:04 Gróttumenn stilla upp í sókn eftir misheppnađa línusendingu Akureyrar
40:25 20-18 Árni Benedikt keyrir á gat í vörninni og skorar, vel spilađ einum fleiri hjá heimamönnum
40:59 20-19 Halldór Logi Árnason skorar af línunni, góđ sending hjá Sissa og kraftur í Dóra ađ klára ţetta
41:32 Aron Dagur keyrir á vörnina og fćr aukakast, menn vilja sjá ruđning ţarna
41:53 Svipađ atvik gerist strax aftur og dómararnir dćma sitthvorn hlutinn. Eftir smá spjall enda Gróttumenn á ađ fá aukakast
41:59 21-19 Viggó međ ţrumuskot í stöngina og inn, Viggó kominn međ 6 mörk
42:33 21-20 Heiđar Ţór Ađalsteinsson skorar úr horninu eftir ađ hafa náđ frákasti, Lárus varđi frá Begga en Heiddi fylgdi vel á eftir
43:06 Ingimundur Ingimundarson ver ógurlega frá Viggó
43:17 Ruđningur dćmdur á Gróttumenn og allt verđur vitlaust í húsinu. Vilja meina ađ Ingimundur Ingimundarson hafi fariđ illa í Dađa Laxdal en Akureyri međ boltann
43:18 Akureyri kemur í sóknina
43:39 Kristján Orri Jóhannsson kemur fyrir utan og fintar sig vel í gegn, vítakast
44:03 21-21 Bergvin Ţór Gíslason skorar stöngina og inn úr vítinu og jafnar ţar međ metin
44:40 Gunnar tekur leikhlé fyrir heimamenn
44:40 Viđ erum einfaldlega međ hörkuleik hér í dag. Ţađ verđur hart barist á ţessu kortéri sem lifir leiks, bara vonandi ađ okkar menn nái ađ landa stigunum sem eru hér í bođi
44:41 Leikurinn hafinn á nýjan leik, Grótta međ boltann
44:54 Hreiđar Levý Guđmundsson ver frá Dađa Laxdal en hann fćr vítakast
45:17 22-21 Finnur Ingi skorar, setur hann undir Hreiđar ţarna
46:02 Kristján Orri Jóhannsson međ skot fyrir utan en hávörnin sér viđ honum
46:16 Bergvin Ţór Gíslason snöggur til baka og stöđvar hrađa sókn heimamanna, aukakast
46:38 Hasar hjá Ingimundi og Guđna á línunni. Dómararnir rćđa viđ ţá en sleppa ţeim viđ refsingu
46:57 Finnur Ingi međ vonlítiđ skot fyrir utan og Hreiđar Levý Guđmundsson sér viđ honum
47:11 Sverre Andreas Jakobsson tekur leikhlé
47:11 Fariđ ađ hćgjast á markaskorun liđanna og hvert mark fariđ ađ verđa gríđarlega mikilvćgt. Nú ţarf ađ skerpa betur á sóknarleiknum
47:12 Akureyri hefur leikinn á ný
47:33 Sigţór Árni Heimisson brunar til baka og ver frá Vilhjálmi í hávörn! Já ég sagđi í hávörn, Grótta fćr hornkast
47:58 23-21 Viggó kemur sér í gegn og skorar, tveggja marka forskot heimamanna
48:25 Halldór Logi Árnason sćkir vítakast, Beggi međ góđa línusendingu og kraftur í Dóra ađ sćkja vítiđ ţarna
48:40 23-22 Bergvin Ţór Gíslason skorar af öryggi úr vítinu
49:28 23-23 Róbert Sigurđarson skorar úr seinni bylgju, frábćr vörn hjá okkar mönnum og Robbi gerđi vel í ađ setja boltann í netiđ
49:57 Viggó međ arfaslaka sendingu sem fer beinustu leiđ útaf, Akureyri fćr möguleika á ađ komast yfir
50:26 Hörđur Másson fćr högg á andlitiđ en fćr ađeins aukakast, Gróttumenn vilja fá boltann en ţađ vćri hrein vitleysa
50:46 Sigţór Árni Heimisson missir boltann
51:10 Dađi Laxdal međ skot í stöngina en fćr aukakastiđ, ţvílík spenna í ţessum leik!
51:27 Enn ein sendingin sem endar útaf og Akureyri međ boltann
51:38 23-24 Ingimundur Ingimundarson laumar sér á línuna og skilar boltanum í netiđ, Akureyri er komiđ yfir!
52:08 Viggó kemur sér í gegn og sćkir vítakast
52:30 24-24 Finnur Ingi skorar af öryggi, setur boltann viđ skeytin ţarna
53:02 Sigţór Árni Heimisson međ skot af gólfinu sem Lárus ver
53:14 25-24 Guđni nćr til laus bolta og skorar
53:44 25-25 Sigţór Árni Heimisson reyndi línusendingu sem gekk ekki upp, en hann nćr boltanum bara sjálfur og skorar
54:22 Aron Dagur missir boltann og Krissi nćr honum en aukakast dćmt, Grótta heldur boltanum
54:40 Akureyri nćr boltanum!
54:52 Strákarnir stilla upp í sókn, mark núna vćri mikilvćgt
55:15 25-26 Hörđur Másson međ skot af gólfinu og ţessi fer beinustu leiđ í netiđ! Höndin var uppi og vel gert hjá Hödda ađ bomba boltanum í netiđ uppúr engu
55:52 Hreiđar Levý Guđmundsson ver frá Aroni Degi en aukakast dćmt
56:06 Gunnar tekur sitt síđasta leikhlé í dag
56:06 Ţvílík spenna í ţessum leik! Tćpar fjórar mínútur eftir og Akureyri leiđir međ einu. Vörnin veriđ mjög öflug síđustu mínútur og sóknin veriđ ađ skila, vonandi helst ţađ áfram til loka leiks
56:07 Grótta hefur leikinn ađ nýju
56:21 26-26   Halldór Logi Árnason missir Dađa Laxdal í gegn sem skorar og Dóri útaf í 2 mínútur, ţetta er fljótt ađ breytast
56:45 Hörđur Másson fćr dćmdan á sig ruđning, fannst ţetta harđur dómur
57:13 Ingimundur Ingimundarson stelur boltanum
57:18 26-27 Kristján Orri Jóhannsson brunar fram og skorar úr hrađaupphlaupi!
57:33 Hörđur Másson fiskar ruđning á Dađa Laxdal!
57:42 Ţvílíkur kafli hér manni fćrri!
58:01 26-28 Bergvin Ţór Gíslason keyrir á vörnina og kemur skoti á markiđ sem endar í netinu!
58:16 27-28 Gróttumenn fljótir ađ svara
58:44 Sverre Andreas Jakobsson tekur leikhlé, svo mikil lćti ađ ţađ tók enginn eftir ţví ađ búiđ var ađ stoppa leikinn
58:44 Tekst Akureyri ađ landa sigrinum hér? Ţađ er ljóst ađ Grótta fćr séns á ađ jafna ef Akureyri nýtir ekki ţessa sókn sína
58:45 Akureyri kemur í sóknina
58:50 27-29 Bergvin Ţór Gíslason smyr boltann í netiđ!!!
59:00 Kristján Orri Jóhannsson stelur boltanum, ţetta er komiđ!
59:14 Klaufagangur hjá Akureyri
59:22 28-29 Aron Dagur skorar, ég var alltof fljótur á mér
59:41 Akureyri missir boltann
59:46 Bergvin Ţór Gíslason fljótur til baka og stelur honum til baka
60:00 Ţetta er búiđ! Akureyri vinnur hrikalega sćtan sigur!
60:00 Menn fagna eins og óđir vćru, ţvílík stemning í hópnum og ţađ skiljanlega
60:00 2 stig í hús öskra menn og ţađ er hárrétt, Akureyri skilur Gróttu hér međ eftir í bili og á núna einn leik eftir fram ađ jóla og EM fríi
60:00 Bergvin Ţór Gíslason var stórkostlegur í dag og er mađur leiksins međ 13 mörk
60:00 Ţvílíkur leikur og ţvílík stig sem Akureyri sćkir, ţetta verđur mikilvćgt ţegar upp er stađiđ!
60:00 Viđ ţökkum fyrir okkur hér í dag og viđ sjáumst í KA-Heimilinu á fimmtudaginn

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson