Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Æsispennandi lokasekúndur gegn HK - Akureyri Handboltafélag
21. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Valdi ekki með gegn HK í kvöld
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að í kvöld fáum við sterkt lið HK í heimsókn norður yfir heiðar. Það sem af er deildinni er HK búið að spila níu leiki, vinna sex, gera eitt jafntefli og tapa tveim. Þeir eru því með 13 stig, jafnmörg og Fram og Stjarnan og eru þessi lið í 2-4 sæti deildarinnar.
Akureyri á harma að hefna frá fyrstu umferðinni en sá leikur var í Digranesi og tapaðist með tíu mörkum, 34-24.
Í HK liðinu eru fjórir fyrrum leikmenn KA sem ættu að þekkja sig býsna vel í KA-heimilinu, þetta eru: Arnar Þór Sæþórsson, Árni Björn Þórarinsson, Egidijus Petkevicius og Ragnar Snær Njálsson.
HK lék um síðustu helgi við FCK í Evrópukeppninni og var leikur þeirra mjög sveiflukenndur eins og sjá mátti í útsendingu sjónvarpsins frá leiknum. Af einstökum leikmönnum má nefna markvörðinn, fyrrnefndan Egidijus Petkevicius en hann er án vafa einn albesti markmaður deildarinnar. Akureyri hreinlega verður að finna leið framhjá Petkevicius, sem á það til að loka markinu, en hann var lykilmaður HK í leiknum gegn FCK.
Tomas Eitutis er öflug örvhent skytta sem getur reynst afar drjúgur detti hann í sitt besta form. Hann kemur frá Litháen og hefur verið að finna markið ágætlega í vetur.
Augustas Strazdas hefur leikið með HK í nokkur ár, hann kemur frá Litháen, er öflugur leikmaður jafnt í vörn og sókn.
Ragnar Hjaltested er í hægra horninu en það er snöggur leikmaður sem hefur verið að skora mikið af mörkum fyrir HK í vetur.
Línumaðurinn Sergey Petraytis er afar öflugur, stór og sterkur.
Þá átti Ólafur Bjarki góða innkomu í leiknum gegn FCK og þarf að hafa góðar gætur á honum.
Þær fréttir eru úr herbúðum Akureyrar að jaxlinn, Þorvaldur Þorvaldsson, verður ekki með í kvöld en hann fékk óblíðar viðtökur í síðasta leik gegn Fram og nefbrotnaði. Þorvaldur gekkst undir aðgerð í gær en verður frá æfingum og keppni í einhverjar vikur. Þá er tvísýnt með Hörð Fannar en hann hefur átt við veikindi að stríða. En maður kemur í manns stað og sendum við strákunum baráttukveðjur í leikinn og hvetjum alla til að mæta tímanlega í KA-heimilið kvöld þannig að áhorfendur taki virkan þátt í leiknum strax frá upphafi.
21. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Bein Lýsing: Akureyri - HK
Í dag kl. 19:00 tekur Akureyri á móti sterku liði HK í KA-heimilinu. HK er í toppbaráttunni í N1-deildinni og ætlar sér áreiðanlega að vera þar áfram. Það er hins vegar brýnt fyrir okkar menn að ná sér í stig í dag og engin ástæða til að ætla annað en okkar menn ætli að selja sig dýrt. Heimasíðan býður upp á beina textalýsingu frá leiknum. Hún hvetur þó alla sem geta til að mæta á leikinn en þið sem komist ekki á leikinn getið fylgst með beinu lýsingunni.
Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:00 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Rúnar rýnir í stöðu liðsins
21. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Risastórt tækifæri – en sameiningin hefur enn ekki skilað því sem ég hafði vænst
AKUREYRI tekur á HK á Íslandsmóti karla, N-1 deildinni, í KA-heimilinu í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19 og ljóst að þar verður við ramman reip að draga. En Akureyringar hafa sýnt að þegar liðinu tekst vel upp getur það spilað mjög vel og með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt á heimavelli – alltaf. Menn verða bara að trúa því. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari og leikmaður Akureyrar, segir það vissulega vonbrigði að vera aðeins í 7. sæti eftir fyrstu umferðir mótsins.
"Auðvitað er staða liðsins vonbrigði, en við náum ekki 6. sætinu fyrr en "einu sinni var" dettur úr hausnum á leikmönnum," segir Rúnar. Hann var ekki ánægður með tvo síðustu leiki. "Afturelding hefur að vísu komið á óvart. Þetta eru baráttuglaðir og frískir strákar sem eru á góðri siglingu undir stjórn Bjarka Sigurðssonar," sagði Rúnar. "Byrjunin gegn UMFA var mjög góð af okkar hálfu, sérstaklega varnarlega. Eftir að mönnum fannst að þetta yrði leikur kattarins að músinni slökuðum við á klónni og hleyptum Aftureldingu aftur að okkur og menn hreinlega vanmátu þá, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir um annað. Í lokin erum við bara heppnir að ná einu stigi, þrátt fyrir að leiða leikinn í 58 mínútur."
Mjög sterkt mót
Í síðasta leik tapaði Akureyri svo fyrir Fram í Reykjavík. "Við breyttum byrjunarliðinu frá síðustu leikjum, með Ása á miðjunni og Einar Loga hægra megin en því miður skilaði það ekki tilætluðum árangri," segir Rúnar um þann leik. "Ég get ekki útskýrt lélega nýtingu í upplögðum færum, né það að menn grípi ekki boltann, öðru vísi en að menn eru ekki með hugann við verkefnið og þar af leiðandi huglausir í sínum aðgerðum. Staðan er sú hjá okkur að við höfum ekki pláss fyrir leikmenn sem eru ekki í þessu af áhuga og vilja, en á meðan leikmenn gera það upp við sig hvort þeir ætli að vera 100% í þessu þá verðum við með kasta og grípa æfingar, á æfingum," segir Rúnar.
Þegar talið best að handboltanum í vetur segir Rúnar að hann sé betri nú en áður. "Það er mjög sterkt mót í gangi þetta árið, enda styrktu sig langflest liðin í deildinni frá því sem áður var og úrslit Vals í Meistaradeildinni, sérstaklega sigurinn á Celje Lasko nýlega, sýna að íslenskur handbolti þolir samanburð við útlönd."
Rúnar er hins vegar ekki nógu ánægður með alla fjölmiðlana. "Ég skil ekki skekkjuna í umfjölluninni um N1 deildina í prentmiðlunum annars vegar og hins vegar í ljósvakamiðlunum, mér finnst prentmiðlarnir sinna deildinni vel. En ég ásamt mörgum öðrum skiljum ekkert í hinum svokallaða "rétti" sem RÚV hefur á handboltanum, það virðist vera algerlega einhliða samningur RÚV við HSÍ."
Framfarir Magnúsar
Eins og áður sagði er Rúnar að sjálfsögðu ekki ánægður með stöðu Akureyrarliðsins nú þegar rúmlega fjórðungur Íslandsmótsins er að baki. En hann er ánægður með sumt. "Það er ánægjulegt að sjá hvaða framförum Magnús Stefánsson hefur tekið síðastliðið ár og nú þegar eru farnar að berast fyrirspurnir í hann erlendis frá. Hann er samningsbundinn Akureyri til 2009, en ég vænti þess að einhver lið muni kaupa hann eftir þetta tímabil. Andri Snær hefur ekki náð sér á það flug sem hann fór á í nóvember í fyrra, en það orsakast af því að hann hefur verið að bjarga okkur í hægra horninu, þar sem hægri vængurinn hefur verið afspyrnu slakur í upphafi móts. Miðja liðsins sem er hryggsúla hvers handboltaliðs, þ.e.a.s. markvörður, miðjumaður og línumaður er sett saman hjá okkur úr stráklingum og skjúklingum og því eigum við oft erfitt uppdráttar þó svo að við séum að gera fína hluti á vellinum."
Og áfram heldur Rúnar um handboltann á Akureyri.
"Sameiningin er ekki að skila því sem ég hafði vænst, í stað styrkingar á leikmannahóp þá veikist hann á milli ára. En það verður e.t.v. í framtíðinni hægt að hlúa betur að þessu liði, því að þetta er risastórt tækifæri. Það er mín skoðun að það þurfi að losa Akureyri – handboltafélag frá Þór og KA og það þarf að fá sjálfstæði og heyra beint undir ÍBA í stað þess að fara í gegnum félögin þar sem menn eru ýmist með eða á móti því að gera eitt lið út frá Akureyri. Einnig ætti Akureyri - handboltafélag að fá Íþróttahöllina til afnota og gera rekstrarsamnning um hana við Akureyrarbæ, það væri báðum aðilum til bóta. Höllin mundi væntanlega fá nýtt líf, en þar vilja félögin í bænum ekki spila leiki sína. Það væri t.d. upplagt að breikka salinn með smávægilegu niðurrifi og geta því komið fyrir tveimur handboltavöllum þversum á æfingartíma og síðan yrði keppt langsum í salnum með útdregna bekki þegar leikir færu fram. Þess konar salir eru t.d. í Garðabæ og Hafnarfirði. Þarna kæmi eitt stykki nýtt íþróttahús í bæinn án þessa að kosta miklu til þar sem öll aðstaða og ytri byrði eru til staðar. Ef menn ætla sér eitthvað með þessu liði, annað en að bjarga Þór og KA fjárhagslega tímabundið, þá er þetta leið sem forsvarsmenn félagsins og Akureyrarbær ættu að skoða. Annars á íþróttalífið í bænum á hættu að fletjast enn meira út", segir Rúnar Sigtryggsson.