Jonni og Andri Snær voru í borgaralegum klæðum á Fram leiknum
11. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tveir sterkir illa fjarri góðu gamni
Bæði Jónatan Þór Magnússon og Andri Snær Stefánsson voru á áhorfendabekkjunum í leiknum gegn Fram á laugardaginn. Andri rifbeinsbrotnaði á æfingu seinni hluta síðustu viku og verður frá í nokkrar vikur, en meiðsli Jónatans eru sem betur fer smávægileg. Hann verður aftur í leikmannahópnum fyrir undanúrslitaleikinn í bikarkeppninni annað kvöld þegar við mætum Frömurum á ný – þá í Fram-húsinu við Safamýri í Reykjavík.
Nú þarf Akureyri að hefna ófaranna gegn Fram frá fyrri leikjum
7. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fyrsti heimaleikur karlaliðsins á árinu
Þá skal á það bent að leikur Akureyrar og Hauka sem vera átti laugardaginn 23. febrúar hefur verið færður fram og verður hann fimmtudagskvöldið 21. febrúar kl. 19:00 í KA Heimilinu.