Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Sigurganga Akureyrar heldur áfram - Akureyri Handboltafélag
Haffi átti stórleik í markinu og Andri setti 8 mörk
8. maí 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Gamli leikurinn: Útisigur á Víking árið 2008
Þó tímabilinu sé lokið hjá Akureyri að þessu sinni þá heldur heimasíðan áfram að koma með nýtt efni. Að þessu sinni er efnið þó í eldra taginu en hér má sjá myndband frá góðum útisigri Akureyrar á liði Víkinga þann 18. október 2008.
Bæði lið þurftu á stigunum að halda enda vildu Víkingar ekki missa af lestinni á meðan Akureyri var að berjast á toppi deildarinnar. Hér má sjá öll mörk Akureyrar, nokkrar vörslur hjá Hafþóri og nokkur mörk Víkingsmanna. Sjón er sögu ríkari, endilega kíkið á skemmtilegan leik.
Akureyri byrjaði leikinn af krafti og hélt forystunni út allan leikinn og vann sannfærandi sigur á endanum, 23-28. Andri Snær Stefánsson var markahæstur í liði Akureyrar með 8 mörk (6 úr vítum), Heiðar Þór Aðalsteinsson, Oddur Gretarsson og Jónatan Þór Magnússon skoruðu allir 4 mörk. Í markinu varði Hafþór Einarsson vel og endaði með 20 skot.
Þá er gaman að sjá Heimi Örn Árnason (þáverandi leikmann Vals) í hlutverki spekingsins í hálfleik og að leik loknum. Þá eru Rúnar Sigtryggsson og Jónatan Þór Magnússon gripnir í viðtal eftir sigurinn góða.
Andri Snær á flugi Heiðar þarf að ræða við bræður sína : )
20. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Minnsta vinstriskytta í byrjunarliði í Evrópu!
Það er skemmtileg umfjöllun í Morgunblaðinu í dag um leik Víkings og Akureyrar frá því á laugardaginn. Við birtum hér hluta úr grein Kristjáns Jónssonar blaðamanns mbl.
Minnsta skytta í Evrópu
Akureyri gerði góða ferð til Reykjavíkur og vann 28:23 sigur á Víkingum
Liði Akureyringa var ekki spáð góðu gengi í N1-deild karla í vetur en þeir hafa blásið á allar hrakspár og eru með þrjá sigra eftir fyrstu fimm leiki sína. Á laugardaginn sigruðu þeir Víkinga, 28:23, í Víkinni, en þeir eru enn án stiga eftir fjóra leiki. Línumaður Akureyringa, Hörður Fannar Sigþórsson, fékk högg á hægra hnéð eftir um tuttugu mínútna leik og kom ekki meira við sögu.
Sigur Akureyringa var sanngjarn en leikgleðin er mikil hjá leikmönnum liðsins og stemningin virðist vera meiri í þeirra röðum en undanfarin ár. Hafi einhver haldið að Jónatan Þór Magnússon og Árni Þór Sigtryggsson bæru liðið á herðum sér þá er það misskilningur, þótt þeir séu vissulega lykilmenn.
Akureyringar fengu gott framlag frá mörgum leikmönnum hvort sem var í vörn eða sókn. Á meðal þeirra var Andri Snær Stefánsson sem undirritaður hefur verið að bíða eftir að muni springa út sem vinstri hornamaður. Andri var markahæstur norðanmanna en leikur sem skytta um þessar mundir: "Mér finnst þetta ógeðslega gaman eftir að hafa verið öll þessi ár í horninu. Það var einhver sem sagði við mig um daginn að ég væri minnsta vinstriskytta í byrjunarliði í Evrópu," sagði Andri í samtali við Morgunblaðið, en hann er 172 cm á hæð.
Fyllilega verðskuldað "Mér fannst þetta fyllilega verðskuldað. Mér fannst við hafa yfirhöndina allan tímann og við spiluðum alveg þokkalega. Ég tel þó að við eigum mikið inni ennþá. En þetta var hörkuleikur tveggja góðra liða." Heiðar Þór Aðalsteinsson var drjúgur við hlið Andra í horninu og Akureyringar eru því ekki í vandræðum með vinstra hornið, þótt Heiðar sé enn ekki orðinn jafngóður og bræður hans voru í þeirri stöðu; þeir Sigurpáll Árni og Geir.
Hér lýkur tilvitnuninni í Kristján en einnig fylgir hér ljósmynd Morgunblaðsins úr leiknum þar sem Árni Sigtryggsson sendir snilldarsendingu á Atla Ævar Ingólfsson á línunni án þess að Víkingar komi vörnum við.
Það verður örugglega stuð á okkar mönnum í dag
18. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Víkingur – Akureyri í sjónvarpinu í dag kl.16:00
Í hádeginu flýgur Akureyrarliðið suður og mætir grimmum Víkingum á heimavelli þeirra, Víkinni klukkan 16:00. Eftir frækna frammistöðu í tveim síðustu deildarleikjum þurfa Akureyrarstrákarnir að sanna fyrir stuðningsmönnum sínum að þeir berjist af sama krafti og eldmóði á útivelli og komi norður með öll þau stig sem þar eru í boði. Það er nokkuð öruggt að norðlenskir stuðningsmenn verða límdir við sjónvarpið í dag en sjónvarp allra landsmanna ákvað að sýna beint frá leiknum og nú þurfa strákarnir að nýta tækifærið til að skemmta allri íslensku þjóðinni.
Við vitum að Akureyrarliðin KA og Þór eiga fjölmarga stuðningsmenn sem búa á Reykjavíkursvæðinu og hvetjum þá til að fjölmenna á leikinn og styðja kröftuglega við bakið á Akureyri.
Það kostar aðeins 500 krónur á leikinn í dag og frítt fyrir alla yngri en 16 ára þannig að hér er kjörið tækifæri til að taka alla fjölskylduna með og taka nú duglega á því.
Þar sem leikurinn verður í beinni sjónvarpsútsendingu verðum við ekki með beina lýsingu hér á síðunni en hvetjum alla landsmenn sem ekki verða á leiknum sjálfum til að fylgjast með sjónvarpinu.
Akureyri þarf að taka á öllu sínu gegn erfiðum Víkingum á laugardaginn
15. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Næsti leikur: Útileikur gegn Víkingum á laugardag
Mótherjar okkar í næsta leik eru nýliðar Víkings sem komu upp úr 1. deild síðasta vor. Þrátt fyrir að Víkingar hafi tapað öllum leikjum sínum í deildinni til þessa þá eru þeir sýnd veiði en ekki gefin eins og margir hafa e.t.v. haldið. Þeir hafa sýnt hörkubaráttu og það hefur verið fín stemming í Víkinni það sem af er og þeir því til alls líklegir.
Fyrsti leikur Víkinga var gegn Val og það var ekki fyrr en í lok leiksins sem reynsluboltarnir á Hlíðarenda tryggðu sér sigur, 29-34. Annar leikur Víkinga var gegn Fram á útivelli og þar mættu Víkingar grimmir til leiks og náðu yfirburðastöðu 1-7 í upphafi leiks með hörkugóðri vörn auk þess sem Framarar réðu ekkert við skyttur Víkinga. Fram tókst þó að ná yfirhöndinni í lok fyrri hálfleiks og sigraði að lokum 36-30.
Í 3. umferð fengu Víkingar FH í heimsókn og þar fóru FH-ingar með tveggja marka sigur 27-29 eftir góðan lokasprett Víkinga. Loks skal minnt á að Stjörnumenn sigruðu Víking naumlega á lokasekúndum 27-26 í Eimskipsbikarnum.
Víkingarnir eru kannski ekki með mikla breidd í sínu liði en eru hins vegar með mjög sterkt byrjunarlið og hafa í öllum sínum leikjum mætt sprækir til leiks og náð góðri stöðu í upphafi leikjanna. Þjálfari Víkinga er enginn annar en landsliðskempan Róbert Sighvatsson og hefur hann greinilega verið að vinna í því að liðið haldi leikina út enda áttu þeir góða lokakafla í tveim síðustu leikjum.
Atkvæðamestir í sóknarleik Víkinga eru skyttan Sverrir Hermannsson sem hefur verðið að skora 5-8 mörk í leikjum liðsins það sem af er.
Þá hefur Sveinn Þorgeirsson einnig verið öflugur í skyttustöðunni og skoraði 5 mörk gegn FH í síðasta leik.
Ekki má gleyma vinstri hornamanninum Davíð Georgssyni en hann var einmitt valinn besti leikmaður 3. umferðar í þeirri stöðu.
Það er því ljóst að leikmenn Akureyrar eiga erfiðan leik fyrir höndum á laugardaginn og verða að mæta til leiks af sama krafti og gegn HK í síðasta leik enda mjög brýnt að sækja fyrstu tvö stigin á útivelli í ár.
Við hvetjum alla stuðningsmenn Akureyrar á Reykjavíkursvæðinu til að fjölmenna í Víkina á laugardaginn og hvetja okkar menn til dáða og sýna að þeir eru ekki eftirbátar frábærra stuðningsmanna liðsins hér á Akureyri. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður sýndur beint í sjónvarpinu.