Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Fyrsti sigur Akureyrar á tímabilinu staðreynd - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Heimir Örn Árnason var öflugur gegn Gróttu
8. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Myndir frá sigurleik Akureyrar gegn Gróttu
Ómar, ljósmyndari Morgunblaðsins var á Seltjarnarnesinu á fimmtudaginn þegar Akureyri sigraði Gróttu og smellti af nokkrum myndum af leiknum. Mbl.is birti myndasyrpu frá leikjum kvöldsins og birtum við hér nokkrar þeirra um leið og við minnum á að næstkomandi fimmtudag mætir Akureyri liði Stjörnunnar hér í Íþróttahöllinni.
Höddi er ekkert á því að hleypa Gróttumönnum í gegn hjá sér
Geir stöðvar Pál Þórólfsson
Heimir og Oddur stöðva Anton Rúnarsson
Gestur Einarsson í ham á hliðarlínunni
Gróttumenn reyna að koma boltanum á Anton Rúnarsson
En Heimir og Jonni eru vandanum vaxnir með Anton í heljargreipum
Forsprakkar SportTV.is fullyrða að það sé allt klárt til útsendingar en í ljósi þess að útsending frá síðasta útileik brást þá reiknum við með því að bjóða upp á hafa beina textalýsingu frá leiknum ef svo ólíklega fer að allt fari úrskeiðis.
Ef um textalýsingu verður að ræða er smellt hér til að sjá textalýsinguna.
Minnum á að stuðningsmenn Akureyrar ætla að hittast á Stássinu á Greifanum til að fylgjast með útsendingunni.
Anton í leik með Akureyri í fyrravetur
5. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hverju spáir Anton Rúnarsson um leik Gróttu og Akureyrar?
Leikur dagsins er útileikur gegn Gróttu sem hafa farið mikið betur af stað í deildinni heldur en þeim var spáð. Grótta er með marga reynslubolta í sínum röðum, síðast bættist markvörðurinn Magnús Guðbjörn Sigmundsson í Gróttuhópinn en hann er á láni frá FH. Eins og komið hefur fram verður leikurinn í beinni útsendingu hjá SportTV.is og verður hægt að ná útsendingunni í gegnum heimasíðuna. En einnig ætla stuðningsmenn Akureyrar að hittast í Stássinu á Greifanum þar sem leikurinn verður sýndur á tjaldi. Á heimasíðu Gróttu er viðtal við Anton Rúnarsson þar sem hann svarar nokkrum spurningum um leikinn gegn Akureyri. Anton lék sem kunnugt er með Akureyri um tíma í fyrravetur og er fróðlegt að sjá hans álit.
1. Núna er mikilvægur leikur á fimmtudaginn, hvernig leggst hann í þig ? Hann leggst bara mjög vel í mig. Þetta verður klárlega hörkuleikur því bæði lið þurfa á stigi að halda
2. Nú ættir þú að þekkja vel til Akureyrar-liðsins þar sem þú varst leikmaður liðsins í fyrra, hverjir eru þeirra helstu styrkleikar ? Ég myndi segja að styrkleikar þeirra liggi i varnarleiknum. Þeir hafa skipa góðum varnarmönnum ásamt Hafþóri í markinu og ef þeir ná vörninni upp þá gætu lið lent i vandræðum. Þeir eru með spræka hornamenn sem og marga unga leikmenn sem eru að stiga sin fyrstu skref í meistaraflokki og það þýðir ekkert að vanmeta þá. Einnig eru nokkrir reyndir leikmenn sem skila sinu ávallt.
3. Nú hafi þið tapað seinustu tveimur deildarleikjum, hafið þið notað fríið vel til að stilla ykkur vel saman og koma sterkir til baka ? Já ,við höfum gert það. Það er aldrei gaman að vera í of löngu fríi. Maður vill spila handbolta sem oftast. Við fengum að sjálfssögðu smá frí og finnst mér það hafa skilað sér. Menn eru klárir í slaginn á fimmtudaginn og stefnum við að vinna þann leik fyrir þessa frábæru stuðningsmenn sem mættu á síðasta heimaleik. Maður fannst eins og það væru 10 þúsund manns á leiknum. Ég vil sjá alla á leiknum!! Hjálpar okkur gríðarlega mikið.
4. Hver myndir þú segja að ykkar styrkleikar lægju gegn Akureyrarliðinu? Það sem við þurfum að gera á móti Akureyri er einfaldlega að spila gríðarlega sterka vörn og fá þannig „ódýr“ hraðaupphlaup sem skila góðum mörkum. Agaðir i sóknarleiknum og spila okkar handbolta eins og við gerum best. Ef við náum að fylgja þessu eftir og með fullt hús af fólki þá er ekki spurning hver vinnur leikinn. Áfram Grótta!!
Segir Anton Rúnarsson en nú er bara spurning hvort að gömlu félagarnir í Akureyri láti hann komast upp með einhver trix. Ef þú vilt lesa viðtalið við Anton á heimasíðu Gróttu skaltu smella hér.
Athugið að gengið er inn í Stássið Glerárgötumegin á Greifanum
4. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Grótta - Akureyri í beinni útsendingu á Greifanum
Leikur Gróttu og Akureyrar verður í beinni útsendingu á SportTV.is á fimmtudaginn. Stuðningsmenn Akureyrar ætla að koma saman og horfa á leikinn á Greifanum. Leikurinn sjálfur hefst eins og aðrir útileikir okkar klukkan 18:30 og því tilvalið að slá saman leiknum og pizzuhlaðborði Greifans.
Að þessu sinni verður leikurinn sýndur á neðri hæð Greifans í sal sem kallast Stássið og skal bent á að gengið er inn í Stássið Glerárgötumegin, en ekki um aðalinngang Greifans.
Aðgangseyririnn felst í því að áhorfendur kaupa í raun pizzuhlaðborð á afar hóflegu: leikurinn ásamt pizzahlaðborði og 0,5 lítra gosglasi á kr 1.200 fyrir 12 ára og eldri, 500 kr fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
Mörgum er í fersku minni að síðasti útileikur Akureyrar sem var gegn Haukum átti einnig að vera í beinni útsendingu en tæknivandamál í Hafnarfirði komu í veg fyrir það. SportTV.is lofar því að slík uppákoma verði ekki á fimmtudaginn, þeir eru búnir að sannreyna að allar aðstæður eru í lagi á Seltjarnarnesinu og því getum við hlakkað til að fylgjast með leiknum.
Anton Rúnarsson hefur leikið vel með Gróttu í upphafi móts
4. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Næsti leikur: Grótta - Akureyri
Andstæðingar Akureyrar í þessari umferð eru lærisveinar Halldórs Ingólfssonar í Gróttu. Halldór er jafnframt farinn að spila með liðinu og þó að hann hafi verið búinn að leggja leikmannaskóna á hilluna þá hefur hann sýnt það sem af er mótinu að það lifir lengi í glæðunum hjá honum. Gróttu var ekki spáð góðu gengi í upphafi móts en þeir hafa svo sannarlega komið á óvart. Unnu stórsigur á Fram á útivelli í fyrstu umferð, töpuðu reyndar fyrir HK á heimavelli í annarri umferð en síðan máttu Valsarar þakka fyrir eins marks sigur á Hlíðarenda í þriðju umferð.
Grótta sem lék í 1. deild á síðustu leiktíð fór mörgum að óvörum alla leið í úrslit bikarkeppninnar síðasta vor. Það var í fyrsta sinn í sögu félagsins sem karlalið félagsins kemst í úrslitaleikin. Þótt úrslitaleikurinn hafi tapast fyrir Val þá er ljóst að hann veitti leikmönnum liðsins mikilvæga reynslu.
Halldór sagði í viðtali við Morgunblaðið að markmið Gróttu fyrir leiktíðina í N1-deild karla vera einfalt og skýrt. „Við ætlum að halda sæti okkar í deildinni. Út frá þeirri stefnu er unnið.“ Halldór segir mikinn hug vera í Gróttumönnum og þeim sem að liðinu standa að gera vel í vetur. Langt sé um liðið frá því að Grótta var síðast með sjálfstætt lið í úrvalsdeild karla. Þá segir Halldór að stuðningur Seltirninga skipti einnig miklu máli en þeir studdu vel við bakið á liðinu á síðustu leiktíð þegar þeir fjölmenntu á heimaleiki liðsins í íþróttamiðstöðinni á Seltjarnanesi sem getur verið mikil og erfið gryfja heim að sækja.
„Það er stefnt á að bæta í umgjörðina í kringum leikina í vetur og hafa hana eins góða og hugsast getur. Vonandi verður það enn til þess að efla stuðninginn við okkur. Við stefnum ótrauðir á að halda sæti í úrvalsdeildinni og teljum okkur hafa alla burði til þess,“ segir Halldór Ingólfsson, þjálfari Gróttu.
Leikmannahópur Gróttu Anton Rúnarsson 21 árs leikstjórnandi Arnar Freyr Theodórsson 27 ára leikstjórnandi Aron Valur Jóhannsson 17 ára línumaður Atli Rúnar Steinþórsson 28 ára línumaður Davíð Örn Hlöðversson 26 ára leikstjórnandi Einar Rafn Ingimarsson 23 ára markvörður Finnur Ingi Stefánsson 22 ára hægri hornamaður Gísli Guðmundsson 31 árs markvörður Hilmar Kristinsson 18 ára vinstri hornamaður Hjalti Pálmason 28 ára skytta vinstra megin Jón Karl Björnsson 34 ára vinstri hornamaður Júlíus Stefánsson 17 ára vinstri hornamaður Matthías Árni Ingimarsson 26 ára línumaður Óli Björn Vilhjálmsson 18 ára skytta vinstra megin Páll Þórólfsson á besta aldri vinstri hornamaður Sverrir Friðþjófsson 17 ára skytta vinstra megin Sverrir Pálmason 28 ára hægri hornamaður Þorleifur Árni Björnsson 28 ára skytta vinstra megin Ægir Hrafn Jónsson 30 ára línumaður
Helstu mannabreytingar Helstu breytingar á liði Gróttu frá síðasta keppnistímabili þegar það vann 1. deild nokkuð örugglega eru eins og áður segir að Halldór Ingólfsson kom í stað Ágúst Jóhannsson þjálfara og hefur reyndar lekið með í öllum leikjum liðsins til þessa
Gísli Guðmundsson markvörður kom til Gróttu frá Haukum líkt og Jón Karl Björnsson hornamaður (og dómari) ásamt Matthías Ingimarssyni línumanni.
Anton Rúnarsson sem lék með Akureyri í fyrra leikur nú með Gróttu og hefur verið leikið mjög vel með liðinu og er þeirra markhæsti maður sem stendur með 21 mark í þremur leikjum.
Hjalti Pálmason kom til Gróttu frá Val en Hlynur Morthens markvörður fór hins vegar frá Gróttu og yfir í Val.
Það er pottþétt netsamband á Seltjarnarnesinu
2. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Grótta og Akureyri Handboltafélag í beinni á SportTV.is
Næstkomandi fimmtudag heldur Akureyrarliðið suður á Seltjarnarnes og leikur þar við spútniklið Gróttu sem hefur svo sannarlega sýnt það sem af er að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin. Þeir félagar á SportTV.is hafa nú tilkynnt að leikurinn verði í beinni útsendingu hjá þeim og er ástæða til að fagna þeim tíðindum.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 á fimmtudaginn og munum við færa nánari fréttir fljótlega af viðbúnaði okkar hér norðanheiða til að fylgjast með útsendingunni.