Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Ekkert bikarævintýri þetta árið - myndir frá leiknum - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Jónatan ekki sáttur með afrakstur dagsins
15. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jonni: Þetta er hundfúlt og gríðarlega svekkjandi
Jónatan Þór Magnússon (Jonni), leikmaður Akureyrar var að vonum ósáttur eftir tapleikinn gegn FH. „Nei, ég kann enga skýringu á að við spilum svona herfilega í fyrri hálfleiks. Við fundum augljóslega ekki taktinn og á tímabili var bara eins og liðið væri farið að bíða eftir að það kæmi hálfleikur svo við gætum farið yfir hlutina“, sagði Jónatan er fréttamaður spurði hann hvernig á því stæði að liðið hefði spilað svo illa í fyrri hálfleik. Jónatan hélt áfram; „Við ætluðum okkur að minnka muninn jafnt og þétt í síðari hálfleik og það tókst þrátt fyrir að við höfum spilað mjög slakan sóknarleik allan tímann. En vörnin var ágæt og það setti okkur inn í leikinn en dugði því miður ekki til. Sóknarleikurinn hjá okkur hefur ekki enn smollið á þessu tímabili og er kominn tími á að við spilum hann eins og menn.“
Jónatan vildi ekki heyra á það minnst að nú myndi liðið bara einbeita sér að deildinni, enda er það frekar þreytt gömul lumma. En hann var sammála blaðamanni að nú gæti verið ákveðinn vendipunktur fyrir liðið: „Það er gríðarlega svekkjandi að vera úr leik í bikarnum en ég er sammála þér að nú verðum við hreinlega að fara að taka góðar 60 mínútur leik, við getum ekki beðið með það lengur.“
Það er ekki á dagskrá að tapa bikarleik
15. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri - FH kl. 16:00 (textalýsing)
Í dag verður barátta upp á líf og dauða fyrir Akureyri og FH þar sem tapliðið verður úr leik í Eimskipsbikarnum. Leikir liðanna hafa verið fjörugir og ekkert gefið eftir. Akureyri hefur unnið tvo síðustu deildarleiki og ætlar klárlega að halda áfram á sigurbrautinni á meðan FH hefur tapað síðustu tveim leikjum sínum.
Lið FH er samt sem áður afar sterkt og er þess skemmst að minnast að þeir sigruðu hér í höllinni í síðasta mánuði og það var einmitt FH sem sló Akureyri út úr bikarnum í fyrra en þá var leikið í Hafnarfirði.
Leikurinn hefst klukkan 16:00, við ætlum að vera með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast í Íþróttahöllina en við vitum að heimamenn ætla að fjölmenna og styðja strákana dyggilega.
Þú smellir hér til að fylgjast með beinu lýsingunni sem opnast í sérstökum glugga og uppfærist síðan sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.
Nú ríður á að áhorfendur standi sig
13. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Risaslagur á sunnudaginn: Akureyri - FH
Það er nóg að gera í handboltanum þessa dagana. Sigurleikur gegn Stjörnunni í gær eftir rafmagnaðar lokasekúndur. Á sunnudaginn verður sannkallaður risaslagur í Eimskipsbikarnum þegar Akureyri tekur á móti FH í Íþróttahöllinni klukkan 16:00. Akureyringar fá nú kærkomið tækifæri til að hefna fyrir deildarleikinn á dögunum þegar FH-ingar flugu suður með 2 stig úr Höllinni.
Bæði liðin spiluðu í gær í N1-deildinni og var hlutskipti þeirra misjafnt. Eins og áður segir bar Akureyri sigurorð af Stjörnunni á meðan FH tapaði á heimavelli sínum gegn Gróttu með sex marka mun. Það má því reikna með hörkuleik, Akureyri þarf að hefna fyrir tapið og FH-ingar munu freista þess að komast á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð í N1-deildinni.
Fréttir herma að væntanlegar séu tvær rútur með Hafnfirska stuðningsmenn FH liðsins og nú þurfa Akureyrskir áhorfendur að sýna þeim hvernig bestu áhorfendur landsins styðja sína menn.
Athugið að ársmiðar og stuðningsmannakort gilda ekki sem aðgöngumiði á bikarleikinn en hins vegar verða veitingar í stuðningsmannaherberginu eins og vanalega.
Sjáumst í Höllinni á sunnudaginn!
Það má búast við að eitthvað gangi á þegar þessir mætast á ný!