Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Heimir og Rúnar voru teknir tali eftir leikinn
27. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir HK leikinn á miðvikudaginn?
Fjölmiðlar landsins ræddu við leikmenn og þjálfara Akureyrar og HK eftir leik liðanna á miðvikudaginn, við tíndum saman brot úr Morgunblaðinu og Vísi. Gefum Rúnari Sigtryggssyni þjálfara Akureyrar orðið:
„Við erum að bjóða upp á mestu spennuleikina hérna hvað eftir annað án þess að þurfa það. Við erum með leikinn í höndunum þegar það eru tíu mínútur eftir en við urðum að hafa spennu í þessu. Ég efast ekki um að við séum lið fólksins, þeir sem mættu núna mæta líka næst. Þetta er ekki fyrir hjartveika.
Þegar það er stutt eftir ætlum við að fara að verja forskotið sem við erum búnir að vinna okkur inn og við eigum skilið. Á sama tíma taka þeir sénsa og ná að komast inn í leikinn. Á meðan hættum við að spila okkar leik,“ sagði Rúnar við Hjalta Þór Hreinsson hjá Fréttablaðinu og var augljóslega létt eftir leikinn.
Rúnar ræddi einnig við Morgunblaðið: „Við byrjuðum ekki nægilega vel eins og við erum vanir. Varnarleikurinn var fínn, við vitum alveg hvað við getum á því sviði og sóknin var einnig fín framan af og ég var alveg rólegur í þrjú korter af leiknum. En þegar menn eru að verja forskot þá skiptir öllu máli að rétt hugarfar sé til staðar, annað gengur bara ekki í handbolta.“ „Við lendum í því að ætla að verja fjögurra marka forskotið sem við vorum komnir með þar sem leikurinn var í nokkru jafnvægi. En það er alls ekki okkar stíll að ætla að verja forystu því við verðum að sækja allan leikinn og við lærum það vonandi af þessum leik,” sagði Rúnar í samtali við Morgunblaðið.
Rúnar fylgist með sínum mönnum í leik
Það var viss léttir hjá Heimi Árnasyni, leikmanni Akureyrar þegar Hjalti Þór Hreinsson hjá Fréttablaðinu ræddi við hann: „Þetta er alveg óskiljanlegt. Við vorum alltaf að fara fjórum mörkum yfir og ég held að fimmta markið hefði klárað þá. En í staðinn erum við kærulausir og þeir jafna.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að skýra þetta. Það er eins og allir í liðinu bara missi hraða síðustu tíu mínúturnar og ég held að þetta sé í hausnum á mönnum af því við erum að gera þetta aftur og aftur. En við kláruðum leikinn og það skiptir öllu máli, mér er svosem sama hvernig leikirnir eru ef við fáum öll stigin.
Við erum á góðu róli núna, búnir að vinna fjóra í röð og komnir að toppnum. Við förum að ég held örugglega í Deildabikarinn á milli jóla og nýárs sem er fínt fyrir okkur, við erum alltaf bara einir hérna fyrir norðan.“
Aðspurður hvort hann hefði verið ánægður með spilamennskuna lá ekki á svarinu: „Nei. Það er ekkert hægt. Ég og fleiri erum sóknarlega ekki að spila vel en þetta er reyndar kaflaskipt. Þetta er samt ekki nógu gott og við þurfum að klára það að spila heilan leik góðan. Öll lið eiga slæma kafla en við þurfum bara að passa að þeir góðu séu lengri hjá okkur en andstæðingunum.“
Heimir kominn í færi í leiknum
Gunnar Magnússon þjálfari HK ræddi einnig við Hjalta Þór eftir leikinn: „Þetta er bara dæmigert fyrir það að það er ekki alveg allt að ganga upp hjá okkur eins og staðan er í dag. Ég er ánægður með varnarleikinn og Sveinbjörn var góður fyrir aftan. Sóknarleikurinn var ekkert frábær, við eigum aðeins inni þar, en ég er engu að síður ánægður með karakterinn í liðinu. Baráttan var alveg til fyrirmyndar og við gáfumst aldrei upp. Ég verð að hrósa strákunum fyrir þennan leik en jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit.
Við vorum í vandræðum í hornunum, við förum með hátt í tíu færi þar og Flóki var okkur erfiður. Þetta var kaflaskiptur leikur og á þessum slæmu köflum förum við illa með færin. Við verðum að fara að nýta hornin betur, við sköpuðum ágæt færi en nýttum þau ekki. Flóki sá við okkur.
Við tökum bara einn leik fyrir í einu og þessi leikur var skref upp á við. Við vitum að veturinn verður erfiður en við verðum bara að halda áfram. Ef við höldum áfram á sömu braut þá eiga stigin eftir að detta fyrir okkur," sagði Gunnar Magnússon að lokum.
Gunnar ræddi einnig við Morgunblaðið: „Heilt yfir er ég ánægður með karakterinn í strákunum að hætta ekki þrátt fyrir mótlæti og við náðum að rífa okkur upp úr því. En menn verða að passa sig í hita leiksins. Það er óafsakanlegt að við fáum á okkur tveggja mínútna brottvísun fyrir kjaftbrúk þegar tvær mínútur eru til leiksloka og það er eitthvað sem má alls ekki gerast. Það var ákvörðun sem við réðum ekki við, þar sem við vorum tveimur færri í kjölfarið og þar með var þetta svakalega erfitt. Það munaði nokkrum sekúndubrotum að við næðum að jafna í restina og í sókninni þar á undan skutum við í stöng svo það féll ekki fyrir okkur í þetta skiptið,“ sagði Gunnar.
Áhorfendur létu ekki sitt eftir liggja og studdu sína menn
27. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Myndir frá sigurleik Akureyrar gegn HK á miðvikudaginn
Þórir Tryggvason sendi okkur að vanda dágóðan pakka af myndum frá leik Akureyrar og HK á miðvikudaginn. Eins og kunnugt er þá varð þetta einn mesti háspennuleikur síðustu ára og spurning hvort lið Akureyrar geri það af sérstakri velvild við áhorfendur að bjóða upp á slíka dramatík sem raun ber vitni. Allavega er það á hreinu að mönnum er haldið í heljargreipum fram á síðustu sekúndur og svo sannarlega mátti heyra saumnál detta í blálokin.
Oddur Gretarsson fékk mikið höfuðhögg og varð að yfirgefa völlinn
Áhorfendum þakkaður frábær stuðningur og hlutdeild í sigrinum
Rúnar þarf að ná sínum mönnum niður á gólfið fyrir leikinn í dag
25. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri - HK kl. 19:00 (textalýsing)
Í dag stendur mikið til enda leikdagur hjá okkar mönnum í N1-deildinni. Strákarnir eru komnir á gott skrið í deildinni eftir þrjá sigra í röð og ætla svo sannarlega að fylgja þeim eftir í dag þegar Kópavogspiltarnir í HK mæta í Íþróttahöllina.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 og hafa liðsmenn Akureyrar lofað því að leggja allt í sölurnar, berjast af grimmd því að þrátt fyrir hagstæð úrslit í síðasta leik þá er þetta nýr leikur og bæði liðin byrja jöfn.
Fyrir leik og í hálfleik verða tónleikar Stórsveitar Tónlistarskólans þannig að það verður líf og fjör í höllinni.
Frá tónleikum stórsveitarinnar í fyrravetur Við ætlum að vera með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast í Íþróttahöllina en við vitum að heimamenn ætla að fjölmenna og styðja strákana dyggilega.
Þú smellir hér til að fylgjast með beinu lýsingunni sem opnast í sérstökum glugga og uppfærist síðan sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.
Árni Stefánsson ætti að gjörþekkja HK liðið. Atli Ævar og Bubbi
22. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
HK liðið kemur á miðvikudaginn - allt um HK liðið
Næstkomandi miðvikudag tekur Akureyri á móti HK í N1 deildinni og verður að vanda leikið í Íþróttahöllinni. Þetta er klárlega einn af mikilvægustu leikjum mótsins fyrir Akureyri og ekkert nema sigur kemur til greina til ætli liðið sér að vera í hópi fjögurra efstu í N1-deildinni eins og markmiðið er.
Það sem af er hefur HK sigrað Gróttu og Stjörnuna og gerði jafntefli við FH í fyrstu umferðinni. HK tapaði hins vegar stórt fyrir Fram, 33-24 og í síðustu umferð tapaði HK liðið fyrir Val 20-24 í leik sem var í jafnvægi fram á lokamínúturnar. HK liðið er sem sé óútreiknanlegt og ljóst að Akureyri má ekki slaka neitt á og verður að leika af fullum krafti strax frá upphafi leiks. Við brenndum okkur illilega á því að mæta ekki tilbúnir í bikarleiknum gegn FH og upphafsmínúturnar gegn Fram voru ekkert sérstaklega glæsilegar. Hinsvegar sýndi Akureyrarliðið í báðum leikjunum að það getur spilað glimrandi fínan bolta og í þeim ham er það illviðráðanlegt.
Með HK-liðinu leika nokkrir góðkunningjar okkar Akureyringa, línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson kom frá Akureyri og hefur blómstrað í HK liðinu í vetur, sömuleiðis er fyrrum markvörður Akureyrir Sveinbjörn Pétursson (Bubbi) aðalmarkvörður liðsins.
Akureyri og HK mættust tvisvar hér í Höllinni í fyrravetur, fyrri leikinn vann Akureyri 30-21 í frábærum leik en dramatíkin var allsráðandi í seinni leiknum en þá jafnaði HK í 25-25 þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka.
Það var hasar í seinni leik liðanna í fyrra
Hér fer á eftir greining Árna Stefánssonar á HK liðinu í upphafi leiktímabilsins en hann var einmitt aðstoðarþjálfari HK seinni hluta síðasta tímabils.
HK átti gott tímabil í fyrra og endaði í þriðja sæti í N1-deildinni. Ekkert lið hefur tekið eins miklum breytingum frá síðasta tímabili, þeir hafa misst sex leikmenn út í atvinnumennsku, auk þess sem þrír leikmenn eru hættir. Margir þessara manna voru í lykilhlutverkum, menn eins og Sverre Jakobsson og Sigurgeir Ægir Árnason í vörninni og Ólafur Bjarki Ragnarsson, Gunnar Steinn Jónsson og Einar Ingi Hrafnsson í sókninni. HK hefur fengið nokkra ágæta leikmenn í staðinn og ber þar hæst mjög öfluga skyttu, Sverri Hermannsson, efnilegan línumann frá Akureyri Atla Ævar Ingólfsson og svo hafa þeir dregið aftur á flot tvo leikmenn sem léku með liðinu fyrir nokkrum árum, Vilhelm Bergsveinsson og Ólaf Víði Ólafsson. Vilhelm á að leika stórt hlutverk í vörninni og Ólafur Víðir á að stjórna sóknarleiknum. HK-ingar verða óútreiknanlegir í vetur, enda sennilega um miðja deild en geta unnið hvaða lið sem er og tapað fyrir öllum.
Styrkleikar Helstu styrkleikar HK í vetur munu liggja í sóknarleiknum. Þeir hafa innan sinna raða besta sóknarmann deildarinnar, Valdimar Þórsson, sem varð markahæsti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra. Byrjunarlið HK gæti orðið nokkuð sterkt og skiptir miklu máli fyrir þá að Ólafur Víðir verði heill og geti spilað af fullum krafti. HK spilar fölbreyttan og hraðan sóknarleik auk þess sem þeir eru mjög fljótir fram í hraðaupphlaup. Markvörður liðsins, Sveinbjörn Pétursson, gæti átt eftir að springa út í vetur og þeir þurfa svo sannarlega á því að halda.
Veikleikar Varnarleikurinn og lítil breidd í leikmannahópnum verða helstu veikleikarnir í vetur. Liðið missti sterkustu varnarmenn landsins og þurfa að reyna að stoppa í þau göt, sem verður erfitt. Breiddin er svo lítil að þeir mega ekki við neinum meiðslum og gætu lent í erfiðleikum í sóknarleiknum ef Valdimar er tekinn úr umferð. Gaman verður að sjá hvernig Gunnari Magnússyni þjálfara HK tekst að leysa þessi vandamál, en ef honum tekst það þá er hann með í höndunum lið sem getur á góðum degi strítt öllum liðum í deildinni. Lykilmaður Valdimar Þórsson verður algjör lykilmaður hjá HK í vetur. Hann er eins og áður segir frábær sóknarmaður, góð skytta og á auðvelt með að spila félaga sína uppi en hann er líka vanmetinn sem varnarmaður og skilar alltaf sínu þar. Ragnar Hjaltested er öflugur hornamaður sem alltaf skilar sínu og það verður athyglisvert að sjá hvernig Sverrir og Ólafur Víðir koma til með að spila.
Þjálfarinn segir... „Mér líst vel á þetta svona í upphaf móts“, segir Gunnar Magnússon, þjálfari HK. „Við mætum til leiks með algjörlega nýtt lið og gjörbreyttar forsendur. Það hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum hjá okkur, við misstum sjö lykilleikmenn frá síðustu leiktíð og allt í allt níu leikmenn úr 18 manna hópi. Fyrsta mál á dagskrá er að læra nöfnin á öllum þessum nýju mönnum“, segir Gunnar með bros á vör. Breytingarnar á leikmannahópnum kalla á algjöra endurskipulagningu og segja má að Gunnar og hans menn haf þurft að hugsa leik liðsins alveg upp á nýtt. „Við þurftum í rauninni að breyta leik liðsins frá a til ö, bæði varnar- og sóknarlega. Það verða aðrar áherslur í vörninni í vetur, einfaldlega vegna þess að það hentar ekki núverandi mannskap að spila sömu vörn og við spiluðum í fyrra, og sóknarleikurinn breytist auðvitað þar sem sterkir sóknarmenn eru horfnir á braut. Nú erum við reyndar komnir með öfluga vinstrihandar skyttu, sem sárlega vantaði í fyrra, og það auðveldar okkur að breyta áherslunum í sóknarleiknum. „ „Við erum með þunnan hóp sem má illa við skakkaföllum“, segir Gunnar þegar hann er spurður út í vonir og væntingar fyrir veturinn. „Þegar allir eru heilir og allt smellur getum við unnið hvaða lið sem er, en fyrsta markmiðið hlýtur samt að vera það að forðast baráttuna í neðri hluta deildarinnar. Draumurinn er svo að geta strítt svolítið þessum fóru efstu. Lykilorðið í Digranesi í vetur verður þolinmæði.“ „Þetta er talsverð áskorun“, segir Gunnar, „og það þýðir ekkert að leggjast í þunglyndi. Þetta er spennandi verkefni og það jákvæða við þetta allt saman er að það ber starfinu okkar hér í HK fagurt vitni að sex leikmenn okkar frá því í fyrra fóru út í atvinnumennsku.“