Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Magalending gegn frábæru Haukaliði - Akureyri Handboltafélag
17. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Myndir frá leik Akureyrar og Hauka - leikmenn í átökum
Nú höfum við fengið í hús dágóðan slatta af myndum úr Haukaleiknum á fimmtudaginn. Eins og vanalega stendur Þórir Tryggvason ljósmyndavaktina og festir á filmu athyglisverð augnablik úr leiknum. Áður er búið að raða saman myndum af áhorfendum en hér kemur syrpa af leikmönnunum sjálfum í hita leiksins.
17. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Frábærir áhorfendur - myndir af þeim frá Haukaleiknum
Áhorfendur troðfylltu stúkuna í Íþróttahöllinni í síðustu viku og þurfti að bæta við stólum á gólfinu til að koma fólki fyrir. Þrátt fyrir að liðið næði ekki að sýna hvað í því býr þá sýndu áhorfendur frábæra takta og gerðu sitt til að hvetja liðið áfram. Enda ekki að undra þar sem í hlut eiga bestu stuðningsmenn á landinu og þeir eiga svo sannarlega sinn þátt í að skapa umgjörðina um leikina sem var einmitt viðurkennd í dag að væri sú besta á landinu.
Hér er hægt að skoða fjöldan allan af myndum sem Þórir Tryggvason tók af áhorfendum í Haukaleiknum síðasta fimmtudag.
Rúnar, Oddur og Jonni voru ekki sérlega kátir eftir leikinn
11. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir Haukaleikinn í gær?
Þjálfarar og leikmenn liðanna voru teknir tali af ýmsum fréttamönnum eftir leikinn og að sjálfsögðu var misjafnt í þeim hljóðið. Kíkjum á nokkur viðtalanna.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar var tekinn í viðtal af Hilmari Þórlindssyni þuli hjá Sporttv.is eftir leik og var mjög ósáttur. „Þetta var stórleikur hjá Birki Ívari í markinu og áhorfendum okkar á pöllunum, þeir voru frábærir en því miður vorum við langt því frá að vera jafn góðir og þeir,“ sagði Rúnar. Aðspurður um ástæðuna fyrir svona lélegum leik síns liðs sagði Rúnar að leikmenn virkuðu yfirspenntir og langt því frá að vera rétt stemmdir fyrir leik sem þennan. „Þeir virðast ekki höndla þá umgjörð sem er um þessa leiki og svífa einhversstaðar á bleiku skýi í stað þess að einbeita sér að leiknum,“ sagði Rúnar orðrétt og augljóslega sársvekktur.
Í lok viðtalsins barst spjallið að dómgæslunni í leiknum sem var vægast slök að mati undirritaðs og hallaði verulega á Akureyri eins og reyndar nokkrum sinnum áður í vetur í Höllinni. Rúnar sagði eitthvað á þá leið að dómgæslan hafi sannarlega ekki haft úrslitaáhrif í leiknum en sjá og heyra mátti á honum í viðtalinu að hann var verulega ósáttur við dómgæsluna.
Oddur Gretarsson, sem var bestur útispilara Akureyringa, sagði í samtali við Einar Sigtryggsson á mbl.is að allir nema markverðir liðsins hefðu verið langt frá sínu besta. En hvaða skýringar hafði Oddur á þessum hörmungum í upphafi leiks? „Við vorum alls ekki mættir. Kannski voru menn eitthvað stressaðir enda margir áhorfendur á leiknum. Þetta á ekki að vera svona en kannski hefur þetta eitthvað með reynsluna að gera.
Haukarnir eru búnir að spila miklu fleiri alvöru stórleiki en við svo það hjálpar þeim eflaust. Ef við ætlum að kalla okkur topplið þá eigum við að vera tilbúnir í svona leik. Við lærum af þessu og komum sterkir til leiks í deildabikarnum og á næsta ári," sagði Oddur.
Jónatan Magnússon,fyrirliði Akureyrar talaði við Hjalta Þór Hreinsson á visir.is. „Þetta eru vonbrigði fyrir okkur og alla þá sem mættu. Ég ætlaði bara ekki að trúa stöðunni og holningunni á liðinu þegar þetta byrjaði. Við vorum bara á hælunum frá byrjun fyrir framan fullt af fólki. Verkefnið var bara of stórt. Við vorum því miður ekki með fullan fókus á leikinn. Við létum dómarana fara alltof mikið í taugarnar á okkur. Dómgæslan fannst mér hræðileg í leiknum, af því maður var svo pirraður. Núna þegar leikurinn er búinn var örugglega ekkert að henni. Við pirruðum okkur á hverjum einasta dómi og orkan sem átti að fara í að rífa sig upp af rassgatinu fór í pirring. Þetta var ein allsherjar krísa.
Þó að það sé reynsla í þessu liði lentum við í því að fara að gera alltof mikið sjálfir þegar illa gekk, við fórum að stytta sóknirnar í staðinn fyrir að lengja þær og við fórum að skjóta verr sem Birkir átti ekki í erfiðleikum með. Þeir þrykktu okkur aftur niður á jörðina. Ég var búinn að segja það einhversstaðar að þetta yrði prófsteinn á liðið og við þurfum að fara í upptökupróf.
Munurinn á liðunum er sá að þeir höndla greinilega stærri leikina, þeir eru vanari þessu. Hjá okkur er greinilega of langt síðan menn voru undir einhverri pressu, það er ljótt að segja það. En vonandi höldum við áfram að vinna í deildinni til að fá fleiri svona leiki,“ sagði Jónatan.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var virkilega ánægður með sína menn í viðtali við Einar Sigtryggsson á mbl.is: „Þær áherslur sem við lögðum upp fyrir þennan leik gengu upp. Við vitum að Akureyringarnir eru með reynslumikla og klóka leikmenn en þeir eru ekkert sérlega hraðir. Vörnin náði að stöðva þessa menn og taka bitið úr sókninni. Í seinni hálfleiknum slaknaði aðeins á þessu en það er bara eðlilegt. Við spiluðum erfiðan leik á sunnudaginn og það var kannski smá þreyta í okkur í restina. Það hefur gengið vel hjá okkur núna. Við erum taplausir í deildinni, áfram í bikarnum og í Evrópukeppninni svo ég get ekki kvartað. Næst er það HK í deildinni, frestaður leikur og sá síðasti fyrir jól.“
Einar spurði Aron um deildabikarinn sem verður á milli jóla og nýárs. „Við erum ekkert farnir að spá í þá keppni. Við hugsum bara um næsta leik og það hefur gengið hjá okkur hingað til. Við missum okkur ekkert í einhverjum skýjaborgum. Við beinum sjónum okkar bara að næsta leik því það er hann sem skiptir mestu máli".
Að lokum vildi Aron hrósa Akureyringum fyrir frábæra umgjörð í kringum leikinn og magnaðan stuðning áhorfenda þótt þeir rúmlega þúsund manns sem voru í Íþróttahöllinni hafi nær allir verið á bandi heimamanna.
Hjalti Þór Hreinsson á visir.is ræddi við Elías Má Halldórsson leikmann Hauka: „Við vorum skrefinu á undan alveg frá byrjun,“ sagði Elías. „Við leggjum grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Mér fannst þeir mæta óvenju fúlir og pirraðir til leiks og við bara nýttum okkur það. Við keyrðum bara á þá og vorum ekkert að pirra okkur á dómurunum eða neinu slíku.
Mér fannst við spila mjög vel í fyrri hálfleik en svo verða menn pínu værukærir þegar við erum komnir með gott forskot. Við hefðum átt að vinna þennan leik með sjö eða átta marka mun. Við gáfum eftir síðustu tíu mínúturnar, það er kannski eðlilegt. En við löndum tveimur stigum hérna á Akureyri sem ekki mörg lið gera.
Ég bjóst við Akureyringum sterkari, ég verð að viðurkenna það. Ég átti von á brjáluðum leik, en þetta var auðveldara en ég átti von á,“ sagði Elías.
Og þjálfarinn Aron Kristjánsson tók í sama streng er hann ræddi við Hjalta: „Ég verð að segja að ég bjóst við þeim sterkari. Þeir eru með flott lið og hafa verið að spila vel en við áttum ágætis leik í dag. Við erum ánægðir með okkar leik og sigurinn,“ sagði Aron.
Hörður Fannar er klár í leikinn í kvöld
10. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri – Haukar klukkan 19:00 (lýsing)
Það er komið að síðasta leik ársins í N1 deildinni hjá Akureyri Handboltafélagi. Andstæðingar okkar manna í dag eru engir aðrir en Íslandsmeistarar Hauka sem jafnframt eru efstir í deildinni fyrir leikinn. Með sigri í dag tekur Akureyri hins vegar toppsætið og það má öllum vera ljóst að alt verður lagt í sölurnar til að það verði.
Leikurinn hefst eins og vanalega klukkan 19:00 en við brýnum fyrir fólki að koma tímanlega þar sem reikna má með fjölmenni. Forsala aðgöngumiða verður á Glerártorgi í dag frá klukkan 14:00- 17:30.
Við verðum með beina textalýsingu frá leiknum eins og vanalega fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Þú smellir hér til að fylgjast með beinu textalýsingunni sem opnast í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.
Einnig ætlar SportTV. is að vera með beina útsendingu á netinu frá leiknum. Þeir félagar hafa verið til mikillar fyrirmyndar í vetur. Til að fylgjast með útsendingu SportTV.is skaltu smella hér eða á merkið hér við hliðina.
Stóra spurningin er svo hvort að RÚV sjái ástæðu til að mynda leikinn eða hvort afskiptaleysið verði eins æpandi og í síðasta viku þegar Akureyri lék gegn Val?
Það má búast við því að verði þröng á þingi í Höllinni
9. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Forsala á leikinn gegn Haukum og happdrætti
Þar sem búast má við miklum fjölda áhorfenda á fimmtudaginn og þröng á þingi í Höllinni hefur verið ákveðið að hafa forsölu á aðgöngumiðum. Miðasala verður á Glerártorgi í grennd við Nettóbúðina í dag, miðvikudag og fimmtudag frá klukkan 14:00 – 17:30 báða dagana. Miðaverð er að vanda 1.000 krónur fyrir fullorðna og 300 krónur fyrir 15 ára og yngri.
Jafnframt verða í boði bolir merktir Akureyri handboltafélagi á 2.500 krónur.
Glæsileg módel í bolunum góðu
Á leiknum sjálfum verður dreginn út heppinn stuðningsmaður Akureyrar handboltafélags, en stuðningsmannaskírteinin eru númeruð og fær sá heppni veglegan vinning.
Sjáumst í Höllinni á fimmtudaginn – Áfram Akureyri!
Það er kominn tími á að taka tvö stig af Haukunum
8. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Síðasti leikur ársins á fimmtudaginn – Haukar
Það er ekkert lát á stórleikjunum í Íþróttahöllinni þessa dagana. Í síðustu viku sátu Valsmenn á toppi N1-deildarinnar en Akureyri sigraði þá með frábærum leik. Núna eru það Íslandsmeistarar Hauka sem eru á toppi deildarinnar og það eru einmitt þeir sem leikmenn Akureyrar keppa við á fimmtudaginn.
Haukar eru með ótrúlega seigt lið og engin tilviljun að þeir sitja á toppi deildarinnar. Hjá Haukaliðinu er mikil reynsla og sigurhefð þannig að þó að liðið lendi í vandræðum í leikjum sínum, koma leikmenn alltaf til baka og ná að gera það sem þarf á lokaandartökum leikjanna.
Þetta kom skírt fram í maraþonleik liðsins gegn FH í Eimskipsbikarnum á sunnudaginn en þar náðu þeir í framlengingu í leik sem virtist tapaður og fóru að lokum með eins marks sigur eftir tvíframlengdan leik.
Það sem af er N1 deildinni hafa Haukar ekki tapað leik en gert tvö jafntefli. Það fyrra var einmitt á heimavelli sínum gegn liði Akureyrar og síðan í Vodafonehöllinni gegn Valsmönnum. Í báðum þessum leikjum var heppnin eða kannski hefðin með Haukunum á lokasekúndunum sem tryggði þeim jafnteflin.
Þrátt fyrir að hafa misst leikmenn frá síðasta tímabili er Haukaliðið vel mannað. Í markinu er það Birkir Ívar Guðmundsson sem sjaldan bregst og ungur piltur, Aron Rafn Eðvarðsson hefur einnig fengið að spreyta sig í vetur og staðið sig með sóma.
Markverðirnir Birkir Ívar og Aron Rafn
Helstu skyttur Haukanna eru þeir Sigurbergur Sveinsson og Björgvin Hólmgeirsson sem á góðum degi eru allt í öllu í sóknarleik þeirra. Elías Már Halldórsson leikur oft í hægri skyttunni þrátt fyrir að vera hornamaður að upplagi og er baneitraður sem slíkur.
Skytturnar þrjár: Sigurbergur, Björgvin og Elías Mar
Hornamenn Haukanna, þeir Freyr Brynjarsson og Einar Örn Jónsson hafa í síðustu leikjum tryggt Haukunum hagstæð úrslit í háspennuleikjum enda reynsluboltar sem aldrei klikka. Í miðju varnarinnar stendur svo einn reynsluboltinn enn, Gunnar Berg Viktorsson sem af og til bregður sér í sóknarleikinn líka.
Hornamennirnir, Freyr og Einar Örn ásamt varnarjaxlinum Gunnari Berg
Liðinu stjórna svo karlarnir Aron Kristjánsson og Óskar Þór Ármannsson sem þekkja varla annað en vinna titla þannig að það má ljóst vera að Haukaliðið er firnaöflugt og á þeim bænum er ávallt krafist sigurs.
Þjálfarateymið, Aron og Óskar Ármannsson
Liði Akureyrar hefur heldur betur vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á mótið. Þrátt fyrir að hiksta í fyrstu leikjunum máttu Haukar þakka fyrir jafntefli í Hafnarfirði eins og áður er getið. Liðið hefur fundið sig betur og betur og hefur unnið síðustu fimm leiki og aldrei leikið betur en í sigurleiknum gegn Val í síðustu viku. Stemmingin og baráttan sem einkenndi þann leik, bæði innan vallar og meðal áhorfenda var til fyrirmyndar og ef sami andi verður til staðar á fimmtudaginn verður örugglega gaman í Íþróttahöllinni.
Þetta er jafnframt síðasti deildarleikur Akureyrarliðsins á þessu ári en við tekur langt hlé vegna þátttöku Íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í janúar. Næstu leikir verða ekki fyrr en í febrúar, nánar tiltekið útileikur gegn FH þann 4. febrúar og síðan heimaleikur gegn Gróttu þann 8. febrúar.
Það er því ekkert annað í stöðunni en að leggja allt í sölurnar gegn Haukunum og fara síðan í langt jólafrí með sigurbros á vör.