Af einhverjum ástæðum getur SportTV.is ekki sent út leik FH og Akureyrar eins og fyrirhugað var. Einhverjir tækniörðugleikar virðast fylgja þeim Hafnfirðingum því sama staða kom upp í haust þegar Akureyri sótti Hauka heim.
Árni fór á kostum þegar liðin mættust í Krikanum í fyrra
2. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
N1 deildin hefst á ný: FH - Akureyri á fimmtudaginn
Á fimmtudaginn heldur Akureyrarliðið til Hafnarfjarðar og mætir FH-ingum í N1 deildinni. Strákarnir eru orðnir býsna vanir því að spila í Hafnarfirði upp á síðkastið, spiluðu þar í deildarbikarnum og sigruðu í Eiðsmótinu fyrir nokkrum dögum síðan.
Að þessu sinni er það stórleikur í toppbaráttunni en Akureyri og FH eru með jafnmörg stig í 2. og 3. sæti deildarinnar og ljóst að ekkert verður gefið eftir.
Svipuð staða var í deildinni í fyrra en þá voru liðin jöfn á toppnum og FH búið að sigra fyrsta leikinn og jafnframt búið að slá Akureyri út úr bikarnum. Akureyri var í mesta basli mestallan leikinn en með stórkostlegum endaspretti fór Akureyri með tveggja marka sigur af hólmi og settist í toppsæti deildarinnar. Árni Sigtryggsson fór á kostum í leiknum og skoraði 11 mörk.
Það þarf ekki að efast um það að strákarnir munu mæta brjálaðir í þennan leik enda klæjar menn í lófana eftir langt hlé. Leikurinn hefst klukkan 18:30 á fimmtudaginn og verður í beinni útsendingu á SportTV.is.