Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Valsmenn höndluðu pressuna í Höllinni - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson, eftirlitdómari: Helga Magnúsdóttir
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Strákarnir lofa hörkuleik á mánudagskvöldið
25. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri – Valur: viðtöl eftir leikinn í gær
Andri Yrkill Valsson blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við leikmenn eftir slaginn í gærkvöldi. Skoðum fyrst hvað Heimir Örn Árnason hafði að segja:
„Við vorum alls ekki nægilega klókir“
„ Við vorum alls ekki nægilega klókir. Þegar við leikmenn í gærkvöldi vorum með fullskipað lið þá náðum við alltaf að komast inn í leikinn, en svo létum við reka okkur útaf og það var of dýrt,“ sagði Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyrar eftir 31:25 tap liðsins gegn Val í undanúrslitum N1-deildar karla í kvöld. Staðan er jöfn 1:1 og úrslitin ráðast í oddaleik á mánudag á heimavelli Vals.
„Valsmenn eru engir nýgræðingar. Þær vældu alveg frá fyrstu mínútu og græddu vel á því. Við fengum alveg fáránlega margar brottvísanir og við vorum oft miklir klaufar. Oddaleikurinn verður mjög jafn, við unnum þá örugglega síðast og þeir unnu okkur örugglega núna, svo það er kominn tími á jafnan leik.“
Oddur Gretarsson ræddi einnig við Andra Yrkil
„Þetta er engan veginn búið“
„Þetta er engan veginn búið,“ sagði Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar, en hann fór fyrir sínum mönnum og skoraði 8 mörk. Hann var ósáttur við hversu margar brottvísanir lið hans fékk í leiknum.
„Við fengum of mikið af óþarfa brottvísunum og þess vegna náðum við ekki að fylgja eftir þegar við náðum góðum köflum í leiknum. Við vorum líka óheppnir þar sem við misstum boltann oft af algjörum klaufaskap og það datt ekkert með okkur. Við þurftum að elta þá allan leikinn og það var bara of erfitt. En við ætlum að klára þetta í oddaleiknum, það er engin spurning.“
Andri Yrkill ræddi einnig við nokkra leikmenn Vals sem voru að sjálfsögðu brosmildir eftir leikinn. „Þetta var alveg ekta leikur á milli þessara liða,“ sagði Arnór Þór Gunnarsson, leikmaður Vals, en hann skoraði níu mörk í undanúrslita leiknum gegn Akureyri í N1-deild karla í kvöld.
„ Baráttan var í fyrirrúmi, menn slógust og þetta er bara gaman. Við komum alveg brjálaðir til leiks eftir að hafa spilað mjög illa í síðasta leik og við ætluðum okkur ekkert nema sigur. Valsarar mega svo sannarlega fjölmenna á næsta leik þar sem við munum spila mikið betur en í síðasta heimaleik.“
Fannar Þór Friðgeirsson var sammála liðsfélaga sínum, en hann skoraði einnig níu mörk í leiknum. „Þetta var skemmtilegur leikur, harkan var mikil og stemningin ennþá meiri. Við vorum hundfúlir eftir síðasta leik þar sem við spiluðum mjög illa og við sögðum að við gætum ekki gert verr en það. Við ætluðum að tryggja okkur oddaleik, það tókst og nú ætlum við alla leið í úrslitin.“
„Við sýndum mikinn karakter. Ef við ætlum okkur að verða meistarar þá verðum við að spila alla leiki á þennan hátt,“ sagði Sigfús Sigurðsson, leikmaður Vals eftir 31:25 sigur liðsins gegn Akureyri í undanúrslitum N1-deildar karla í handknattleik í kvöld. Hann sagði baráttuna sem einkenndi leikinn gera handboltann enn skemmtilegri. „Það er alltaf gaman að koma hingað norður að spila. Baráttan er í fyrirrúmi, við lemjum hvorn annan á línunni svo þetta er bara gaman. Svona á handbolti að vera, þetta er ekki eintómt flæði fram og til baka. Í svona leikum er það baráttan um að komast í úrslitin sem ræður. Liðið sem hefur meiri vilja, er þéttari og spila af meiri liðsheild vinnur, og það vorum við í dag.“
Jónatan Magnússon var í viðtali hjá Hjalta Þór Hreinssyni á Fréttablaðinu og var ósáttur við framgöngu dómaranna í leiknum:
Liðin eiga að vera á núlli hjá dómurunum þegar leikurinn byrjar
Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar, var ómyrkur í máli eftir tapið gegn Val í kvöld. Hann gagnrýnir dómara leiksins harkalega.
Akureyringar fengu átta brottvísanir í leiknum og Valsmenn sex. Leikurinn var mjög harður og spennustigið hátt.
„Þegar dómarar segja við okkur eftir leikinn að við höfum ekki verið að spila handbolta í fyrri hálfleik, hvað segir það? Það er í fyrsta lagi rangt, eina rauða spjaldið fengu Valsmenn. Þetta er lýsandi dæmi um að þeir mæta inn með fyrirfram ákveðnar hugmyndir.
„Liðin eiga að vera á núlli þegar leikurinn byrjar. Núna eru þeir búnir að smitast af umræðunni að við spilum fast og þetta erbara lýsandi dæmi fyrir þá. Við spiluðum fast, allt í góðu með það, og þeir reka útaf í fyrstu sókn. Það er í fyrsta sinn í vetur sem það gerist.
Og af hverju? Af því þeir hafa hlustað á umræðuna eftir leiki, hlustað á Óskar (Bjarna Óskarsson, þjálfara Vals,innsk), þar sem hann er að tala um alla 50/50 dóma sem við fáum, segir hann, af því við erum á heimavelli.
Ég tek samt ekkert af Völsurum, þeir voru að spila betur en við. Við áttum í vandræðum með að skora.
En þetta finnst mér vera algjör skandall, að liðin séu ekki á núlli þegar leikurinn byrjar.“
En hvað um spilamennsku liðsins? „Hún var klárlega ekki góð. Við vorum bara slakir. Það voru alltof margir í liðinu sem voru lélegir. Þetta er í fyrsta skipti í vetur sem við fáum ekki þá markvörslu sem við erum vanir. Það var vinnsla í vörninni og hún var það besta af þessu þremur, markvörslu vörn og sókn.
„Við grófum okkur smá holu og það er ekki alltaf hægt að reikna með að við komumst upp úr henni. Við settum pressu á þá, en þá komu að sjálfsögðu tvær mínútur. Við fengum of margar slíkar á okkur.“
Jónatan leiðir sína menn til leiks í dag
24. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri -Valur í Höllinni klukkan 20:00
Eftir nokkra bið er runninn upp leikdagur og það enginn venjulegur leikdagur! Í fyrsta skipti í mörg ár fá Akureyringar heimaleik í úrslitakeppninni og ekki að efa að margir stuðningsmenn eru að upplifa gamlar og notalegar minningar frá fyrri árum. Hinir sem yngri eru fá hinsvegar kærkomið tækifæri til að sannreyna allar sögusagnirnar um stemminguna sem fylgir úrslitakeppninni.
Leikurinn hefst sem kunnugt er klukkan 20:00 í kvöld en húsið verður opnað klukkutíma áður eða klukkan 19:00. Meiningin er að gera úr þessu skemmtilega kvöldstund. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og safa á meðan að birgðir endast. Einnig verður í boði andlitsmálun fyrir áhugasama o.fl. Fyrst og fremst verður þó frábær handboltaleikur þar sem ekkert verður gefið eftir. Akureyri hefur engan áhuga á að fara aðra ferð í Valsheimilið heldur klára viðureignina í dag á meðan að Valur berst fyrir lífi sínu í dag.
Stuðningsmannakortin og ársmiðar gilda ekki á þennan leik, fremur en aðra í úrslitakeppninni. Allir þurfa því að greiða aðgangseyri, fullorðnir greiða 1.000 krónur en fimmtán ára og yngri greiða 300 krónur. Stuðningsmannaherbergið verður þó að sjálfsögðu opið og þar verða kaffiveitingar í boði.
Strákarnir vita að það er aðeins leikhlé í rimmunni gegn Val en þeir eru staðráðnir í að berjast til síðasta manns á meðan þeir standa í lappirnar, nefbrot og aðrar barsmíðar herða þá bara í baráttunni.
Við skorum á alla stuðningsmenn að láta ekki sitt eftir liggja og troðfyllum Höllina!
Forðumst biðraðir Þar sem búast má við mikilli örtröð á leikinn er fólk hvatt til að hafa með sér aðgangseyrinn í reiðufé, það mun flýta afgreiðslu verulega þó að sjálfsögðu verði posar til staðar.
Leikurinn í beinni textalýsingu Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á leikinn skal bent á að við verðum að vanda með textalýsingu frá leiknum hér á síðunni. Beina lýsingin opnast í sérstökum glugga sem uppfærist á 20 sekúndna fresti. Smelltu hér til að fylgjast með textalýsingunni.
Leikurinn í beinni á SportTV.is Einnig skal bent á að SportTV.is ætlar að sýna leikinn beint á netinu. Til að fylgjast með lýsingu þeirra skaltu smella hér.