Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Sigurgangan heldur áfram – góður sigur á Aftureldingu - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson. Eftirlitsdómari er Helga Magnúsdóttir
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Atli var sáttur við framlag ungu strákanna í leiknum
16. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Rætt við þjálfara og leikmenn eftir leikinn í gær
Eftir bikarleikinn í gær ræddi Andri Yrkill Valsson, blaðamaður Morgunblaðsins við þjálfara liðanna, þá Atla Hilmarsson og Gunnar Andrésson.
Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar: Þetta var mjög erfiður leikur „Þetta var ekki sérstakur leikur hjá okkur en það er auðvitað mjög gott að vinna með tíu marka mun á móti frísku liði Aftureldingar,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir leikinn. „Þetta var mjög erfiður leikur og við áttum í miklu basli lengst af þar sem þeir voru mjög skynsamir í sóknarleiknum en við aftur á móti frekar óþolinmóðir. Við unnum þá í deildinni fyrir nokkrum vikum og áttum einnig í miklu basli með þá í þeim leik svo við vissum við hverju við áttum að búast. En ég er ánægður með að vera kominn áfram og stefnan er bara tekin lengra í þessari keppni.“
Lið Akureyrar hefur tekið miklum framförum frá síðustu leiktíð en þá var liðið þekkt fyrir að missa niður gott forskot undir lokin. Ekkert hefur borið á því í vetur og er Atli mjög ánægður með þá leikmenn sem hann hefur úr að velja. „Ég gat spilað á mörgum mönnum í þessum leik og ég er mjög ánægður með að ungu strákarnir skuli hafa haldið haus og klárað leikinn fyrir okkur. Ég sé það á hverjum degi á æfingum hversu góðir þeir eru og það er bara synd hvað þeir hafa fengið að spila lítið. En við erum hópur sem stendur saman, höfum verið mjög heppnir með meiðsli og við sýndum í dag að við getum notað allan okkar mannskap. Mér líst mjög vel á liðið og þeir sýna það á hverjum degi hvers þeir eru megnugir og það er gaman að sjá það endurspeglast í leikjunum.“
Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar: Lokakafli leiksins réð úrslitum „Við vorum alltaf inni í leiknum þangað til tíu mínútur voru eftir þegar við missum þá fram úr okkur og erum ekki nægilega klókir í kjölfarið. Ég var mjög ánægður með leikinn fyrstu þrjú korterin þar sem við spiluðum mjög vel á köflum en við gáfumst hreinlega upp þegar tíu mínútur voru eftir. Við flýttum okkur of mikið í sókninni og þeir voru fljótir að refsa okkur fyrir það og vaða yfir okkur undir lokin.“
Þröstur Ernir Viðarsson blaðamaður Vikudags ræddi við Heimi Örn Árnason eftir leikinn:
„Ég veit ekki hvað skal segja. Við fáum alltaf korterskafla í leik þar sem við erum arfaslakir. Við misstum þetta niður en svo náum við að sigla framúr aftur,“ sagði Heimir. „Mér fannst einhvern veginn eins og Afturelding væri að spara sig fyrir næsta deildarleik þar sem þeir leggja örugglega meiri áherslu á deildina. Hins vegar fundu þeir smá lykt í leiknum þegar viðvið vorum að gefa eftir en svo gáfum við í og kláruðum þetta. Menn eins og Daníel Einarsson og Bergvin Gíslason voru að koma inná og standa sig vel. Við sýndum áhorfendum hvernig bolta við eigum að spila síðustu tíu mínúturnar,“ sagði Heimir.
Þröstur ræddi einnig við Hafþór Einarsson, markvörð Aftureldingar sem reyndist Akureyri erfiður í leiknum:
„Þetta var samt ekki nógu gott hjá mér því þeir skoruðu of mörg mörk,“ sagði Hafþór eftir leikinn. „Ég held að hraðaupphlaupin hjá þeim hafi gert útslagið í leiknum. Við náðum að standa fína vörn þegar við komumst aftur en þeir náðu að keyra mikið á okkur, sérstaklega í lokin. Akureyri er bara með mjög flott lið og það er alltaf gaman að spila við það en hundleiðinlegt að tapa alltaf,“ sagði Hafþór að lokum.
Sex lið hafa nú þegar tryggt sér þátttökurétt í 8 – liða úrslitunum, Akureyri, Selfoss, Haukar, Fram ásamt ÍR og Víkingum sem koma úr 1. deild, en 16 – liða úrslitunum á að ljúka á laugardaginn.
Á vef sport.is er hægt að skoða myndir Sævars Geirs Sigurjónssonar frá leik Akureyrar og Aftureldingar.
Þetta verður önnur heimsókn Mosfellinga í Höllina í vetur
15. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Það er mikið undir í leik dagsins þegar Afturelding mætir í Íþróttahöllina til að berjast við heimamenn í Eimskipsbikarnum. Bikarkeppnin er einfaldlega bardagi upp á líf eða dauða því tapliðið er hreinlega úr leik í keppninni og það er hlutskipti sem enginn óskar sér.
Við höfum áður greint frá því að lið Akureyrar á eftir að sanna sig sem bikarlið og til að bæta úr þeirri staðreynd þarf að mæta til leiks af fullri einbeitingu allt frá byrjun. Á síðasta ári mættust Akureyri og FH einmitt í Höllinni í sextán liða úrslitum bikarsins. Sá leikur var sárgrætilegur í ljósi þess að Akureyrarliðið var hreinlega ekki með í leiknum allan fyrri hálfleikinn og í byrjun seinni hálfleiks var staðan 10-18 fyrir FH. Þá loksins komst liðið í gang og var hársbreidd frá því að jafna leikinn með síðasta skoti leiksins sem endaði 22-23 fyrir FH og bikardraumurinn þar með úti. Við treystum því að slíkt gerist ekki í kvöld heldur berjist menn af fullum krafti allan leikinn.
Það er rétt að ítreka að þar sem þetta er bikarleikur þá gilda engir ársmiðar eða stuðningsmannaskírteini á leikinn en ársmiðahöfum er boðið upp á veitingar í hálfleik.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir fullorðna en 300 fyrir börn yngri en sextán ára.
Við bjóðum upp á beina textalýsingu frá leiknum sem hefst klukkan 19:00 og lýsingin nokkru fyrr. Eins og venjulega þá opnast textalýsingin í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna millibili.
12. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Bikarslagur á mánudaginn gegn Aftureldingu
Það er líf og fjör í handboltanum á Akureyri þessa dagana, góður sigur á Selfyssingum í gær og strax á mánudaginn er heimaleikur í Eimskipsbikarnum gegn liði Aftureldingar úr Mosfellsbænum.
Liðin mættust hér í Höllinni í byrjun október og lyktaði leiknum með fimm marka sigri Akureyrar 28-23. Það er hins vegar á hreinu að þau úrslit gera ekkert annað en efla Mosfellinga til dáða og þeir hafa svo sannarlega sýnt það í leikum deildarinnar að ekkert lið getur bókað sigur gegn þeim. Afturelding vann góðan sigur á Selfyssingum á Selfossi og bæði HK og Haukar máttu þakka fyrir sigur á þeim í Mosfellsbænum.
Okkar maður, Hafþór Einarsson markvörður hefur leikið af miklu öryggi með Aftureldingu í vetur og reyndist Akureyrarliðinu erfiður í fyrri leik liðanna.
Hafþór var valinn besti maður Aftureldingar í leiknum gegn Akureyri
Skyttan Bjarni Aron Þórðarson hefur farið á kostum og er einn markahæsti leikmaður N1 deildarinnar með 44 mörk og ljóst að vörn Akureyrar þarf að hafa góðar gætur á honum svo og leikstjórnandanum Arnari Frey Theódórssyni sem er þeirra næst markhæsti maður með 22 mörk. En þar fyrir utan þá er liðsheild þeirra mjög öflug og menn eins og Eyþór Hilmarsson, Þorkell Grétar Guðbrandsson, Jón Andri Helgason hafa tekið af skarið og skorað grimmt.
Þessi leikur er mikil áskorun fyrir leikmenn Akureyrar því liðið á í raun dapra sögu í bikarnum, datt til dæmis út í sextán liða úrslitunum tvö síðastliðin ár. Það er því kominn tími að brjóta bikarblaðið og með öflugum stuðningi áhorfenda getum við lofað hörkuskemmtilegum leik á mánudagskvöldið.
Leikdagurinn er vissulega sérstakur og viljum við því biðja stuðningsmenn á að hnippa í kunningjana og ítreka það að í þetta sinn er það mánudagurinn í Höllinni. Leiktíminn er hins vegar hefðbundinn, leikurinn hefst klukkan 19:00 eins og vanalega.
Eina viðureign úrvalsdeildarliða í 16 liða umferðinni
2. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Eimskipsbikarinn: Akureyri og Afturelding mætast 15. nóv
Akureyri og Afturelding úr Mosfellsbæ mætast í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins og nú hefur verið áveðið að leikurinn fari fram mánudaginn 15. nóvember. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður hér í Íþróttahöllinni.
Þetta er ekki okkar hefðbundni leikdagur en fyrir vikið enn meiri ástæða til að hvetja stuðningsmenn til að taka daginn frá því að hér er mikið undir. Við vitum reyndar um ýmsa sem eru bundnir í margs konar verkefnum á fimmtudögum og þeir munu áreiðanlega fagna því að fá nú tækifæri til að sjá liðið spila á heimavelli á óhefðbundnum leikdegi.
En fram að þessum leik eru tveir deildarleikir, núna á fimmtudaginn fer liðið suður og leikur við Val og fimmtudaginn 11. nóvember koma Selfyssingar í heimsókn og leika hér í Höllinni.