Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Fram fór með bæði stigin úr Höllinni - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson, eftirlit: Guðjón L Sigurðsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Bjarni Fritzson og Halldór Sigfússon í kröppum dansi
13. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri - Fram ljósmyndir frá leiknum
Við höfum fengið fjölmargar myndir frá Þóri Tryggvasyni frá stemmingunni í Höllinni á leik Akureyrar og Fram á sunnudaginn. Hér eru nokkrar þeirra en neðar á síðunni er hægt að sjá allar myndirnar.
Að vanda frábær stemming í þéttsetinni stúkunni
Liðin heilsast fyrir leik
Hörður Fannar lætur Halldór Jóhann finna til tevatnsins
Magnús markvörður Fram braut hraustlega á Bjarna Fritzsyni og uppskar rautt spjald
13. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Ummæli leikmanna og þjálfara eftir leik Akureyrar og Fram
Eins og vanalega spáum við í ummæli leikmanna og þjálfara eftir leikinn. Að þessu sinni eru Akureyringar í því hlutverki að vera óhressir á meðan glaðlegra hljóð er í andstæðingunum. Byrjum á Hjalta Þór Hreinssyni á Fréttablaðinu og visir.is, sjáum til hvað hann fékk upp úr mönnum:
Atli Hilmarsson: Spilamennskan var léleg Atli Hilmarsson var eðlilega ekki ánægður með leik sinna manna í Akureyri sem tapaði fyrsta leik sínum í vetur, fyrir Fram, 30-34.
„Fram átti sigurinn skilinn. Við spiluðum illa í vörn og sókn. Við skutum illa þrátt fyrir að fá góð færi í leiknum.
Atli Hilmarsson fékk gult spjald fyrir að benda dómurum á staðreyndir mála
Við fengum fá fráköst í sókninni og það sem mér gremst mest er að við börðumst ekki nóg um lausu boltana, við hefðum getað stoppað einhver hraðaupphlaup hjá þeim með því að berjast meira.
Við verðum að læra af þessu. Við erum enn efstir og hin liðin þurfa að ná okkur. Það er mikið eftir að mótinu ennþá.
Við vorum búnir að kortleggja Framarana og þeir spiluðu eðlilegan leik, það erum við sem áttum að standa okkur betur,“ sagði Atli.
Reynir Þór Reynisson: Kortlögðum Akureyringa mjög vel Reynir Þór Reynisson var stoltur af strákunum sínum eftir góðan sigur á Akureyri í dag. Góður undirbúningur skipti sköpum að hans sögn en Fram vann leikinn 30-34. „Við ætluðum að stoppa hraðaupphlauðin hjá Bjarna og Oddi. Við fórum vel yfir þeirra leik og þetta var mjög gott að koma norður og vinna taplaust lið. Ég er mjög sáttur.
Við lendum í áfalli þegar Magnús fær rautt en Ástgeir kom frábær inn. Við vorum með tökin í leiknum nánast allan leikinn. Við kortlögðum Akureyri mjög vel fyrir leikinn.
Við ræddum um það í hálfleik að hjálpa Ástgeiri, að vera þolinmóðir og hjálpa honum. Það fannst mér takast vel. Við erum á góðu skriði núna en það er svo mikið eftir. Við höldum okkur bara á jörðinni og reynum að bæta okkar leik eins og alltaf,“ sagði þjálfarinn.
Haraldur Þorvarðarson: Stefnum á titilinn Haraldur Þorvarðarson, línumaður og fyrirliði Fram, átti góðan leik þegar liðið vann Akureyri 30-34 í N1-deild karla í dag. Hann segir að liðið stefni á titil og ekkert annað.
„Þetta er frábær sigur liðsheildinnar. Það skiptir engu máli hverju við lendum í, meiðslum, leikbönnum og rauðum spjöldum, alltaf höldum við tempóinu. Við erum með góða breidd sem sýnir sig núna.
Við vorum með góða taktík sem gekk upp. Við vorum pínulítið smeykir þegar Maggi fékk rautt spjald en Ástgeir stóð sig vel.
Ég veit ekki hvort rauðu spjöldin þjappa okkur saman, við höfum fengið þau nokkur snemma leiks en alltaf þjappað okkur saman og unnið. Kannski er þetta ágætt og að við biðlum til dómaranna að halda áfram að gefa okkur rautt,“ sagði Haraldur glottandi.
Heimir og Gulli láta Harald Þorvarðar ekki leika lausum hala á línunni
„Við vitum að við erum með gott lið. Við getum unnið alla og þorum alveg að segja að við stefnum á titil,“ sagði Haraldur.
Þröstur Ernir Viðarsson blaðamaður Vikudags hitti Guðlaug Arnarsson eftir leikinn og Gulli talaði hreint út.
Guðlaugur Arnarsson: Vorum einfaldlega lélegir „Það kom að því að við töpuðum en það sem mér finnst verst er að það var á heimavelli fyrir framan fulla höll af áhorfendum,“ sagði Guðlaugur Arnarsson varnajaxlinn í liði Akureyrar, eftir ósigurinn gegn Fram í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri í N1-deild karla í handbolta. Framarar voru því fyrstir til þess að leggja Akureyrarliðið að velli í vetur en lokatölur urðu 34:30 Fram í vil. Sigurinn var verðskuldaður en heimamenn náðu sér aldrei á strik í leiknum.
„Við vorum bara einfaldlega lélegir. Við erum að skjóta illa á markmanninn og gera honum auðveldara fyrir vikið að verja. Framarar voru að keyra á okkur og við náðum ekki að lesa leikinn nógu vel. Svo var vörnin léleg allan leikinn og engin markvarsla,“ segir Guðlaugur.
„Við vorum að fá fín færi en nýttum þau illa. Ég veit ekki hvort þetta hafði verið eitthvað stress eða hvað. Það getur vel verið að það hafi verið að spila inn í að menn hafi verið hræddir við tapa. Svo hafa leikmenn fengið aukna athygli upp á síðkastið og kannski hafði það eitthvað að segja. Maður veit það ekki. Þetta er hins vegar bara hluti af þessu. Við vissum að við færum ekki taplausir í gegnum veturinn en við munum koma sterkir til baka,“ sagði Guðlaugur Arnarsson.
Andri Yrkill Valsson blaðamaður Morgunblaðsins var að sjálfsögðu einnig með viðtöl við lykilmenn.
Halldór Jóhann Sigfússon: Vona að áhorfendur hafi skemmt sér „Það er hætt að koma okkur á óvart að fá rauð spjöld. Auðvitað var það erfitt að missa Magga útaf og sömuleiðis erfitt fyrir ungan markmann að koma inn í sínum fyrsta alvöru deildarleik fyrir framan svona marga áhorfendur. Hann stóð sig samt alveg frábærlega og ég hrósa honum mikið fyrir það að koma óvænt inn og standa sig svona vel,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, leikmaður Fram, eftir sigur liðsins á Akureyri í gærkvöldi.
Halldór ásamt Magnúsi Stefánssyni fyrir leikinn
Framarar héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og gáfu heimamönnum aldrei færi á að komast aftur inn í leikinn. Akureyringar reyndu hvað þeir gátu, breyttu varnarleik sínum og skiptu um markvörð, en allt kom fyrir ekki og lokastaðan 30:34. „Þetta var frábær leikur þrátt fyrir að handboltaleg gæði hafi kannski ekki verið upp á marga fiska. En það var mikil harka og hraði í leiknum svo ég vona að áhorfendur hafi skemmt sér vel,“ sagði Halldór Jóhann.
Haraldur Þorvarðarson: Gríðarlega góður sigur „Þetta var alveg gífurlega góður sigur. Við höfum lent í miklum áföllum með meiðsli og rauð spjöld en breiddin er bara svo mikil auk þess sem við erum að spila gríðarlega vel í vörn og sókn. Við misstum Magga útaf með rautt í fyrri hálfleik, Ástgeir kom inn og stóð sig mjög vel og þar kemur breiddin hjá okkur í ljós. Ég vil meina að við séum með langbesta liðið á landinu, það berjast allir hver fyrir annan og við spilum rosalega vel á öllum sviðum,“ sagði línumaðurinn sterki, Haraldur Þorvarðarson, leikmaður Fram eftir að Fram varð fyrst liða til að taka stig af Akureyri í N1 deild karla í handknattleik.
Stuðningur áhorfenda hefur verið mikill fyrir norðan en Haraldur segist ekkert hafa verið smeykur við það fyrir leikinn. „Mér líður mjög vel að spila hérna fyrir norðan og við erum með ágætt sigurhlutfall hérna. Við munum bara halda áfram og hugsum að Akureyri tapi næsta leik svo við verðum efstir um jólin.“
Sveinbjörn Pétursson: Framarar einfaldlega betri „Framarar voru einfaldlega betri á öllum sviðum. Allt gekk á afturfótunum hjá okkur, leikurinn í heild sinni og einnig hugarfarið. Heildarsvipurinn á liðinu var bara ekki eins og við eigum að venjast,“ sagði Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar, en hann spilaði sem kunnugt er sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd í vikunni.
Sveinbjörn og Stefán Guðnason setja sig í stellingar fyrir leikinn
„Ég ætlaði að fylgja eftir góðri frammistöðu í landsleikjunum með góðum leik hérna og mér finnst alveg ömurlegt að það hafi ekki gengið eftir. Ég lét landsleikina ekki hafa mikil áhrif á mig og var farinn að hugsa um þennan leik strax eftir sigurinn gegn Noregi en það var eitthvað sem var ekki með mér í þessum leik.“
Sveinbjörn segist ekkert hugsa um framtíðina með landsliðinu þrátt fyrir góða frammistöðu. „Ég er ekkert að hugsa um hvort ég verði valinn í hópinn fyrir Heimsmeistaramótið. Ég er fyrst og fremst að hugsa um Akureyri og svo kemur bara í ljós hvað verður.“
Atli Hilmarsson: Getum alveg tekið tapi „Það var eitthvert slen yfir mínum mönnum og við vorum lélegri á öllum sviðum hvort sem það var vörn, sókn eða markvarsla. Það sem vantaði var að framkalla þessa grimmd og baráttu sem hefur einkennt okkur í vetur en það kom ekki núna,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir leikinn. Hann segir þó að tapið muni ekki koma aftan að sínum mönnum eftir góða byrjun í deildinni. „Þrátt fyrir allt held ég að þetta eigi ekki eftir að koma niður á hugarfarinu. Við erum með gott lið og getum alveg tekið tapi. Við erum efstir í deildinni og erum búnir að eiga frábært tímabil fram að þessu og það gleymist ekki neitt. Þetta er kennsla um það að hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér og núna þurfum við bara að endurvekja það sem við vorum að gera vel. Nú reynir á liðsheildina að við stöndum saman,“ sagði Atli.
Það mun mikið mæða á Guðlaugi Arnarssyni í dag
12. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri - Fram í beinni textalýsingu
Það er leikur af stærri gerðinni í Íþróttahöllinni í dag, sannkallaður toppslagur í N1-deild karla í handbolta. Þar mætast tvö efstu lið deildarinnar Akureyri og Fram en bæði hafa verið á miklu skriði í vetur jafnt í deildinni sem og í Eimskipsbikarnum.
Það er alveg hægt að lofa miklum hasarleik, Akureyrarliðið er ekkert á þeim buxunum að bregða út af vananum með að skemmta stuðningsmönnum sínum með dramatík og háspennu þannig að það verður örugglega þess virði að mæta í Höllina. Þeir sem upplifðu síðasta heimaleik gegn HK geta vitnað um fjörið í troðfullri Höll. Leikurinn hefst í dag klukkan 16:30.
Hörður Fannar og Gulli ganga vasklega gegn Jóhanni Gunnari Einarssyni Framara
Bein textalýsing frá leiknum Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki komast í Höllina verðum við með beina textalýsingu frá leiknum hér á síðunni. Eins og vanalega þá opnast lýsingin í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna millibili.
Framliðið hefur stundum reynst okkur erfitt í Höllinni á undanförnum árum
7. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Risaleikur gegn Fram á sunnudaginn
Við eigum von á stórleik í Íþróttahöllinni á sunnudaginn þegar topplið Akureyrar fær liðið sem er í 2. sæti í heimsókn. Það eru sem sé bláklæddir Framarar sem verða í heimsókn en þeir hafa heldur betur verið á mikilli siglingu upp stigatöfluna upp á síðkastið.
Framarar eru trúlega með einn öflugasta leikmannahóp deildarinnar en hafa verið í basli með meiðsli á lykilmönnum en hafa spilað vel úr sínum málum.
Markhæstu menn Framara í N1 deildinni eru: Einar Rafn Eiðsson 65 mörk, Jóhann Gunnar Einarsson 50 mörk, Haraldur Þorvarðarson 39 mörk, Róbert Aron Hostert 36 mörk, Halldór Jóhann Sigfússon 29 mörk og Andri Berg Haraldsson 28 mörk
Einar Rafn Eiðsson hefur verið í miklu stuði síðustu leiki og verið skora hátt í 10 mörk í leik. Næstur er skyttan hárprúða Jóhann Gunnar Einarsson sem hefur reyndar misst úr síðustu leiki vegna meiðsla. Í forföllum Jóhanns Gunnars hafa Andri Berg Haraldsson og Arnar Birkir Hálfdánsson komið sterkir inn í skyttustöðuna hægra megin. Fleiri jaxla er óhætt að telja upp, reynsluboltar eins og Halldór Jóhann Sigfússon og Haraldur Þorvarðarson skila alltaf sínu og skyttan unga Róbert Aron Hostert er funheitur þessa dagana. Okkar gamli félagi Magnús Stefánsson virðist vera að komast í form eftir endurtekin meiðsli undanfarin ár og er farinn að taka virkan þátt í sóknarleik liðsins og munar um minna þegar hann fer á flug. Einn altraustasti leikmaður Fram er þó ónefndur en það er markvörðurinn Magnús Gunnar Erlendsson.
Róbert Aron Hostert, Einar Rafn Eiðsson og Magnús Gunnar Erlendsson
.
Bræðurnir Magnús og Hákon ásamt Jóhanni Gunnari
Akureyri og Fram hafa mæst einu sinni í vetur, í eftirminnilegum sjónvarpsleik í Safamýrinni þar sem Akureyri fór með eins marks sigur að lokum eftir að Fram hafði haft yfirhöndina lengst af í leiknum. Guðmundur Hólmar Helgason fór hamförum í leiknum og skoraði tólf mörk auk þess sem Stefán Guðnason átti mergjaða innkomu í markinu á lokamínútunum og varði meðal annars tvö vítaköst.
Fram hefur einungis tapað tveim leikjum á tímabilinu, gegn Akureyri og HK en þeir sneru síðan hraustlega á HK nú rétt um daginn og lögðu þá með 10 mörkum. Í síðasta leik sló Fram bikarmeistara Hauka út úr bikarnum býsna sannfærandi þó að í lokin hafi bara munað einu marki.
Það er alveg ljóst að Framliðið undir forystu Reynis Þórs Reynissonar þjálfara er feikiöflugt og þeir munu klárlega ætla sér stóra hluti hér á sunnudaginn. Það er alveg hægt að lofa miklum hasarleik, Akureyrarliðið er ekkert á þeim buxunum að bregða út af vananum með að skemmta stuðningsmönnum sínum með dramatík og háspennu þannig að það verður örugglega þess virði að mæta í Höllina. Þeir sem upplifðu síðasta heimaleik gegn HK geta vitnað um fjörið í troðfullri Höll.