Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Einvígi Akureyrar og FH á enda þetta árið - Akureyri Handboltafélag
Það reynir á lykilmenn eins og Heimi og Bjarna í kvöld
25. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Heimir reiknar með fullu húsi í kvöld
Það er allt undir í Höllinni í kvöld, Akureyri þarf sigur til að knýja fram oddaleik á föstudaginn á meðan FH gerir út um einvígið með sigri. Vikudagur ræddi við Heimi Örn Árnason, fyrirliða Akureyrar og Einar Andra Einarsson þjálfara FH um leikinn:
Heimir Örn segir Akureyringa hafa farið vel yfir sín mál eftir tapleikinn í Kaplakrika í síðasta leik og mæta hvergi bangnir til leiks í kvöld. „Ég og aðrir lykilmenn liðsins vorum einfaldlega á rassgatinu í síðasta leik og það kemur ekki fyrir aftur. Við ætlum okkur að vinna þennan leik í kvöld, líkt og við gerðum í síðasta heimaleik og stela þessu svo í oddaleiknum á föstudaginn. Ég reikna með fullu húsi í kvöld og brjálaðri stemmingu í Höllinni og við erum bara spenntir,“ sagði Heimir.
„Við erum fullir tilhlökkunar,“ segir Einar Andri. „Við förum í alla leiki til þess að vinna og ætlum að klára þetta einvígi í kvöld. Við förum fullir sjálfstrausts í leikinn eftir sigurinn í síðasta leik en við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það verður við ramman reip að draga. Það er alltaf erfitt að spila í Höllinni fyrir norðan en við erum einbeittir á verkefnið í kvöld. Við erum í dauðafæri í að komast í úrslit og ætlum okkur að nýta það,“ sagði Einar.
Það má búast við hasar í kvöld, Heimir á spjalli við FH-bekkinn í leik 2
Heimir fer fyrir sínum mönnum á miðvikudaginn
24. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
4. leikur Akureyrar og FH á miðvikudaginn
Það er allt undir í leik Akureyrar og FH í Íþróttahöllinni á miðvikudaginn þegar liðin mætast í 4. leik undanúrslitanna. FH er komið í þægilega stöðu í einvíginu en Akureyri má ekkert misstíga sig í leiknum, sigur er það eina sem er í boði, annars er tímabilinu einfaldlega lokið.