Dómarar: Magnús Kári Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Nú er bara að gíra sig upp fyrir bikarleikinn á laugardaginn
29. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvernig var hljóðið í mönnum eftir ÍR – leikinn?
Það var háspenna í Austurbergi í gærkvöldi þar sem Akureyri tapaði í hörkuleik fyrir ÍR-ingum. Í samantekt okkar á viðtölum eftir leikinn kennir ekki margra grasa en blaðamenn virðast hafa einbeitt sér að Guðmundi Hólmari Helgasyni og ÍR-ingunum Bjarka Sigurðssyni og Ingimundi Ingimundarsyni.
Byrjum á viðtölum Sigmars Sigfússonar sem birtust á visir.is.
Guðmundur Hólmar: Fáum hárblásarann á okkur inn í klefa
„Maður vill alltaf tvö stig og í svona leik er alltaf súrt að tapa. Ég held að það hafi verið vörnin sem var að fara með okkur í þessum leik. Misstum þó klaufalega í gegn hjá okkur“ sagði Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Akureyri eftir leikinn.
Guðmundur Hólmar í baráttunni gegn ÍR. Mynd: Hilmar Þór/sport.is
„Aðalbaráttan er í þessum leikjum þar sem Haukar eru komnir langt á undan. Þetta var því mjög mikilvægur leikur og mjög leiðinlegt að tapa.
„Við fáum hárblásarann á okkur inn í klefa en vonandi ekki of mikið samt. Við mætum brjálaðir á æfingu á morgun og svo er bara leikur á laugardaginn, enginn tími til þess að vera svekktur of lengi.“
Bjarki Sig: Æðislegt fyrir okkur að vinna fjögurra stiga leik
„Hrikalega sáttur við tvö stig, þetta var fjögra stiga leikur fyrir okkur og þar af leiðandi æðislegt fyrir okkur að vinna þennan leik. Þetta var ekki fallegur handbolti sem spilaður var hérna í kvöld, flottar varnir inn á milli en mikið um mistök bæði í sókn og vörn sem vakti upp óöryggi hjá markmanni“, sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR eftir leikinn.
„Ég varð að gera eitthvað um miðbik seinnihálfleiks og er virkilega sáttur með Hermann sem varði vel á köflum. Sama saga með Jónatan sem kom klár inn í leikinn á mjög mikilvægum tímapunkti og gerði vel. Akureyri snýtti okkur í fyrri leik liðanna fyrir Norðan og við ætluðum ekki að láta það gerast aftur og svo auðvitað gátum við náð þeim á stigum. Við viljum ekki vera í baráttunni um fimmta, sjötta eða sjöunda sæti deildarinnar, svo þessi sigur er því afar kærkominn. Haukarnir virðast vera klára þetta en það þarf ekki mikið til þess að lið brotni svo við sjáum til. Ef annað sætið er í boði tökum við það, annars virðast flest liðin vera að bæta sig um þessar mundir.“
Bjarki leggur á ráðin með sínum mönnum. Mynd: Hilmar Þór/sport.is
Mbl.is ræddi sömuleiðis við þá sömu.
Guðmundur: Aldrei gaman að tapa
Eftir tvo sigurleiki í röð urðu Akureyringar að sætta sig við tap í N1-deildinni þegar þeir sóttu ÍR-inga heim í fyrsta leik 10. umferð deildarinnar. ÍR hafði betur í spennandi leik, 28:26. „Það er aldrei gaman að tapa. Við áttum í mesta basli í sóknarleiknum í fyrri hálfleik en hann lagaðist til muna í seinni hálfleik. Ég hélt að við værum að taka þetta þegar við náðum að komast einu marki yfir en því miður misstum við þetta frá okkur,“ sagði Guðmundur Hólmar Helgason, skytta Akureyrarliðsins, við mbl.is eftir leikinn en Guðmundur hélt sínum mönnum á floti lengst af í seinni hálfleik og skoraði 8 mörk. „Hver leikur í þessari deild er mjög erfiður en mér fannst við eiga mikið inni í þessum leik og þá bæði í sókn og vörn,“ sagði Guðmundur Hólmar.
Ingimundur: Gríðarlega mikilvægir punktar
Ingimundur Ingimundarson einn af lykilmönnum ÍR-liðsins var að vonum ánægður eftir sigur sinna manna gegn Akureyringum í N1-deildinni í kvöld. „Þetta voru tveir mjög dýrmætir punktar sem við náðum í. Þetta var spurning um að hanga í toppbaráttunni eða fara í neðri hlutann í deildinni. Þetta er hnífjöfn deild og hvert einasta stig er alveg gríðarlega mikilvægt. Því erum við virkilega ánægðir með að hafa náð að innbyrða tvö stig,“ sagði Ingimundur við mbl.is eftir leikinn.
Ingimundur sækir að Heimi Árnasyni. Mynd: Hilmar Þór/sport.is
Vídeóviðtöl
Þá er komið að vídeóviðtölum við þremenningana sem birtust á Sportvarpinu hjá sport.is
Guðmundur Hólmar: Þetta var svekkjandi
Bjarki: Þarf að komast í úrslitakeppnina
Ingimundur: Ég harka þetta af mér
Þökkum SportTV.is fyrir útsendinguna
28. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: ÍR – Akureyri í beinni klukkan 18:00
Það er leikdagur hjá Akureyri í dag og verkefnið ekki af léttara taginu, útileikur gegn ÍR á heimavelli þeirra í Austurbergi. SportTV.is ætlar að sýna leikinn í beinni útsendingu og hefur frést að það verði enginn annar en Ragnar Snær Njálsson sem verði við hljóðnemann og lýsi því sem fyrir augu ber.
Það verður hægt að fylgjast með leiknum í útsendingu SportTV.is
27. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Útileikur gegn ÍR á miðvikudaginn – í beinni á SportTV.is
Á miðvikudaginn heldur Akureyri til leiks við ÍR á heimavelli þeirra í Austurbergi í Breiðholtinu. Það er orðið býsna langt síðan Akureyri spilaði þar síðast en það mun hafa verið 4. nóvember 2007 þegar liðin mættust það í bikarleik. Þann leik vann Akureyri með tveim mörkum, 22 – 24.
Það var ekkert gríðarleg stemming á þeim leik en í dag er öldin önnur. ÍR-liðið er í 3. sæti N1 deildarinnar og í raun kemur það mönnum ekkert verulega á óvart því liðið hefur á að skipa gríðarlega öflugum og reyndum leikmönnum. Þar fyrir utan hefur félagið náð að skapa frábæra stemmingu á heimaleikjum sínum þannig að það er ekki auðvelt að sækja þá ÍR-inga heim.
ÍR-ingar stóðu í stórræðum í síðustu umferð þegar þeir heimsóttu ósigraða Hauka á heimavelli þeirra í Hafnarfirði. Eftir slakan fyrri hálfleik sýndu ÍR-ingar sínar bestu hliðar í seinni hálfleik og voru hársbreidd frá því að jafna leikinn í síðustu sókninni.
Í umferðinni þar á undan fengu þeir Aftureldingu í heimsókn og þá var svipað uppi á teningunum, ÍR-ingar voru slakir í fyrri hálfleik og voru þrem mörkum undir eftir hann. Í seinni hálfleik tóku þeir heldur betur við sér og unnu góðan sex marka sigur.
Það er því algjörlega á hreinu að þessi leikur verður erfiður. Bjarki Sigurðsson mun klárlega brýna fyrir sínum mönnum að mæta til leiks strax frá fyrstu mínútu og þá er líka eins gott að Akureyrarliðið geri það líka.
Liðin mættust á Akureyri í 3. umferðinni og þá gekk allt Akureyri í haginn og vannst magnaður níu marka sigur 32 – 23 og engin spurning að ÍR ætlar að kvitta fyrir þann leik.
Ef við rennum yfir ÍR liðið þá eru tveir Akureyrarpiltar í leikmannahópnum, hornamaðurinn Ólafur Sigurgeirsson og línumaðurinn Halldór Logi Árnason sem lék með Akureyri fyrir tveimur árum síðan.
Norðanpiltarnir Ólafur og Halldór Logi
Þegar litið er yfir markaskorara ÍR liðsins eru þeir Sturla Ásgeirsson og Björgvin Hólmgeirsson langatkvæðamestir með 57 og 56 mörk. Leikstjórnandinn Guðni Már Kristinsson kemur næstur með 27 mörk, línumaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson með 22 mörk og landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson með 21 mark eins og hornamaðurinn Sigurjón Friðbjörn Björnsson.
Björgvin, Sturla, Ingimundur, Jón Heiðar
Í markinu hjá ÍR stendur ungur piltur Kristófer Fannar Guðmundsson sem hefur verið mjög vaxandi upp á síðkastið og var til að mynda valinn besti markvörður 8. umferðar N1 deildarinnar en í þeim leik vann ÍR einmitt Aftureldingu.
Við skorum á hina fjölmörgu stuðningsmenn Akureyrarliðsins á höfuðborgarsvæðinu að fjölmenna í Austurbergið á miðvikudaginn, leikurinn hefst klukkan 18:00 og þarf ekki að efast um að það mun mikið ganga á jafnt innan vallar sem utan þegar þessi lið sem eru í 2. og 3. sæti deildarinnar mætast.
Fyrir þá sem eiga þess ekki kost að mæta á staðinn bendum við á að SportTV.is ætlar að sýna beint frá leiknum á netinu og við munum að sjálfsögðu setja upp tengil á útsendinguna þegar nær dregur.
ÍR fékk viðurkenningu HSÍ fyrir bestu umgjörð leikja í umferðum 1-7.
24. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Útileikurinn gegn ÍR fluttur á miðvikudag
Nú er staðfest að leikur ÍR og Akureyrar í 10. umferð N1-deildarinnar hefur verið færður yfir á miðvikudaginn 28. nóvember. Þetta er gert vegna bikarleiks Akureyrar og Aftureldingar sem settur var á laugardaginn 1. desember. RÚV mun hafa óskað eftir að fá bikarleikinn til sýningar og því er hann settur á laugardaginn klukkan 15:00.
Af þessum sökum var leikurinn gegn ÍR fluttur af fimmtudeginum yfir á miðvikudag og hefst hann klukkan 18:00 á miðvikudaginn í Austurbergi. Mikil stemming hefur verið á heimaleikjum ÍR-inga og ekki að efa að þar verður heilmikið fjör þegar fjölmargir stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu mæta þar einnig.
Bjarni Fritzson og Björgvin Hólmgeirsson í leik liðanna í Höllinni