Heimir Örn Árnason, 11 mörk gegn Aftureldingu
21. mars 2013
Heimir Örn Árnason átti stórleik með Akureyri gegn Aftureldingu þann 21. mars 2013 þar sem kappinn skoraði 11 mörk (þar af 4 úr vítum) í góðum sigri Akureyrar 29-25. Þetta eru flest mörk sem Heimir hefur skorað í einum leik fyrir Akureyri Handboltafélag og var hann að sjálfsögðu valinn maður leiksins.