Dómarar: Magnús Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson. Eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Bjarni þekkir vel til í Kaplakrikanum
7. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: FH – Akureyri
Það er óhætt að segja að erfitt verkefni bíði Akureyrarliðsins í kvöld. Mótherjinn er FH liðið sem er eitt það sterkasta í deildinni þó það hafi reyndar átt misjafna leiki í vetur. FH er fyrir leikinn þrem stigum á undan Akureyri en leikir liðanna hafa undanfarin ár boðið upp á mikla spennu og dramatík. Engin ástæða er til að ætla annað en það sama verði uppi í dag.
Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Kaplakrika og vonumst við til að fólk geti fylgst með gangi leiksins hér á síðunni þegar hann hefst. Nánari upplýsingar koma hér þegar nær dregur.
Akureyri og FH hafa marga hildi háð á undanförnum árum
5. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Útileikur gegn FH á fimmtudaginn
Eftir smáhlé tekur alvaran við í Olís-deild karla á fimmtudaginn þegar Akureyri mætir Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í Kaplakrikanum. FH liðið er klárlega eitt best mannaða lið deildarinnar í ár og voru litlar breytingar á mannskapnum á milli ára. Þeir kræktu í Valdimar Fannar Þórsson fyrir tímabilið en Valdimar hefur leikið með Val undanfarin ár en á góðum degi er Valdimar einn flinkasti spilari deildarinnar. Einnig endurheimtu þeir hornamanninn Benedikt Reynir Kristinsson sem hefur verið með Aftureldingu og Gróttu síðustu árin.
FH-ingar hafa verið í toppbaráttunni undanfarin tímabil, urðu Íslandsmeistarar 2011 eftir magnað einvígi við Akureyri. Segja má að það sé valinn maður í hverri stöðu hjá FH, sóknarleiknum stýrir Ásbjörn Friðriksson af stakri snilld og skytturnar Ragnar Jóhannsson og Magnús Óli Magnússon hafa farið á kostum í vetur. Í hægra horninu er oftast markamaskínan Einar Rafn Eiðsson á milli þess sem hann tekur skyttustöðuna og í vinstra horninu hefur Benedikt Reynir Kristinsson verið drjúgur. Sigurður Ágústsson er einnig erfiður viðureignar á línunni. Þegar litið er á helstu markaskorara FH liðsins þá eru efstir á blaði Magnús Óli Magnússon með 25 mörk, Einar Rafn Eiðsson með 24, Ásbjörn Friðriksson, Benedikt Reynir Kristinsson og Ragnar Jóhannsson allir með 17 mörk og Sigurður Ágústsson með 13 mörk.
Enn er þó ótalinn markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson sem hefur heilt yfir verið besti maður liðsins í vetur og sömuleiðis á síðasta tímabili. Daníel ver sjaldan færri en 20 skot í leik og hefur verið ótrúlega stöðugur í sínum leik.
Akureyrarliðið endurheimtir Valþór Guðrúnarson í hópinn en Valþór tók út leikbann í síðustu umferð. Einnig má búast við því að Heimir Örn Árnason reimi á sig skóna á ný og verði til taks að bregða sér inná.
Heimi leiddist ekki að spila gegn FH í bikarnum í fyrravetur
Leikurinn hefst klukkan 18:00 á fimmtudaginn í Kaplakrika og ástæða til að óska eftir að allir stuðningsmenn á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu mæti og styðji við bakið á strákunum í þessum leik.