Fylkir kom til Akureyrar og lék við Akureyri í DHL-Deildinni. Leikurinn var spennandi en Akureyri hafði sem kunnugt er sigur eftir að Fylkir hafi leitt lengst af. Við tókum viðtal við Sigurð Sveinsson þjálfara Fylkis eftir leikinn en Siggi var alls ekki sáttur.
SÁ: Sigurður, hvernig fannst þér leikurinn? Sigurður: Við vorum að spila alveg ágætlega framan af og við erum yfir mest allan leikinn. Hann skipist aðeins þegar við vorum 24-23 yfir og þá var eins og við fengjum loft í hausinn og það var enginn til að taka af skarið eða róa okkar leik. Við vorum full æstir. Akureyri barðist fyrir lífi sínu og má segja að þeir hafi verið skynsamari en við í lokinn og unnið þessa vegna leikinn.
SÁ: Ertu sáttur með leik þinna manna? Sigurður: Nei, nei. Síðasta korterið í leiknum vorum við eins og höfuðlaus her, bæði í vörn og sókn. Það er ófyrirgefanlegt.
SÁ: Þið misstuð Arnar í meiðsli, hafði það mikið að segja? Sigurður: Auðvitað er það slæmt en það á ekki að skipta neinu máli. Það kemur maður í manns stað en eins og ég sagði þá vantaði smá einbeitingu og hugsun í okkar bæði sóknar- og varnarleik.
SÁ: Hvað fannst þér um Akureyrarliðið? Sigurður: Þeir voru að berjast fyrir lífi sínu og það dugði í dag.
Andri Snær: Þessi tvö stig eru gríðarlega mikilvæg
Andri Snær Stefánsson átti flottan leik gegn Fylki í kvöld og skoraði 6 mörk í karakterssigri Akureyrar. Heimasíðan stökk á Andra eftir leik og fékk hann til að segja okkur hvernig hans taka á leikinn var en hann var vitaskuld sáttur með sigurinn.
SÁ: Andri, hvað getur þú sagt okkur um þessa tvo punkta sem liðið tók hér í kvöld? Andri: Það er óhætt að segja að þessi tvö stig eru gríðarlega mikilvæg og sérstaklega í ljósi þess að við vorum án tveggja helstu varnarjaxla okkar í dag. Samt sem áður kom ekkert annað til greina en að taka tvö stig hérna á heimavelli og ég get ekki annað en verið gríðarlega sáttur með það.
SÁ: Þetta var vinnusigur... Andri: Það er óhætt að segja það og það sást best í seinni hálfleik þar sem menn voru að djöflast og leggja sig fram í vörninni. Þá fór Hreiðar í gang og við fengum nokkur auðveld mörk. Bara vinnusigur og þetta hafðist.
SÁ: Ertu sáttur með leik liðsins í heildina? Andri: Nei, það er í raun margt sem var ekkert frábært í þessum leik. Ég held að við getum allir tekið undir það. Sérstaklega fyrri hálfleikur sem var ekki beysinn varnarlega og boltinn hefði getað gengið betur í sókninni. Menn voru ekki að taka alltaf bestu sénsana en þessa stundina er mér drullusama um það og er ég ógeðslega ánægður að hirða þessi tvö stig sem voru í boði.
SÁ: Það er ansi sterkt að sýna þann karakter að klára þetta, sérstaklega varnarlega, þegar það vantar Rúnar og Hörð Fannar, ekki satt? Andri: Já, ég er alveg sammála því. Við sýndum það bara að við höfum miklu meiri breidd en margir halda. Okei, þeir voru ekki með í dag en það var ekki að sjá í dag - sérstaklega í seinni hálfleik. Vörnin var að mínu mati mjög massív og þeir áttu í miklu basli með að skora.
Leikur Akureyrar Handboltafélags og Fylkis fer fram í kvöld í KA-Heimilinu klukkan 18:45. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið en bæði lið hafa misst af 3 stigum það sem af er tímabilinu. Heimasíðan býður upp á beina textalýsingu frá leiknum og hvetur hún alla til að fylgjast grannt með þegar leikurinn hefst ef það kemst ekki á leikinn. Mjög auðvelt er að fylgjast með í gegnum Beinu Lýsinguna.
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 18:45 en við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Það er gleðiefni að segja frá því að hinn frestaði leikur Akureyrar og Fylkis verður í Beinni Lýsingu hér á síðunni á morgun, mánudag. Eins og fram hefur komið fer leikurinn fram 18:45 í KA-Heimilinu. Heimasíðan hvetur fólk eindregið til að mæta og sjá Akureyrarliðið sem er ansi heitt um þessar mundir.
Sökum veðurs hefur leik Akureyrar og Fylkis í DHL-deild karla verið frestað en Fylkismenn gátu ekki komið til Akureyrar í dag með flugi eins og gert var ráð fyrir. Leikurinn verður leikinn á morgun, mánudag, klukkan 18:45 í KA-Heimilinu.
Hvað gera Alex og félagar í öðrum heimaleik Akureyrar á morgun?
Eins og allir ættu að vita leikur Akureyri annan heimaleik sinn í vetur en að þessu sinni kemur Akureyrar-liðið Fylkir í heimsókn. Leikurinn, sem er 16:00 í KA-Heimilinu, verður því miður ekki í beinni lýsingu hér á síðunni en þar koma nokkrar ástæður inní. Því verður fólk bara enn fremur að mæta á leikinn og sjá okkar menn sem hafa verið að leika afar vel að undanförnu. Seinast þegar liðið lék á Akureyri var boðið upp á sannkallaða flugeldasýningu og algjöra toppskemmtun. Nú er bara spurning hvað gerist á morgun en okkar lið verður án Rúnars og Hödda eins og fram hefur komið.
Að lokum koma myndir frá fyrsta heimaleik Akureyrar, gegn ÍR.
Rúnar Sigtryggsson og Hörður Fannar Sigþórsson verða ekki með liði Akureyrar sem tekur á móti Fylki á sunnudaginn. Þeir félagar fengu báðir beint rautt gegn Haukum á Ásvöllum og fengu þar af leiðandi eins leiks bann hvor. Ljóst er að þeir Hörður og Rúnar skilja eftir sig skörð í liðinu en Hörður hefur farið á kostum bæði í vörn og sókn og þá hefur Rúnar verið mjög góður í vörn liðsins, en hann hefur leikið lítið í sókninni.
Þótt það sé slæmt að missa þá tvo úr hópnum er alveg víst að maður kemur í manns stað og verður gaman að sjá hverjir fá sénsinn á að sýna sig í leiknum gegn Fylki.
Heimasíðan hvetur fólk eindregið til að mæta í KA-Heimilið og hvetja Akureyri Handboltafélag til sigurs gegn Fylki. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Næstkomandi sunnudag, klukkan 16:00, tekur Akureyri á móti Fylki í KA-Heimilinu. Heimasíðan ræddi við Ingólf Ragnar Axelsson, leikmann Fylkis og fyrrum leikmann KA, í sambandi við leikinn og spurði hann ýmissa spurninga. Eins og við mátti búast var átti Ingó ekki erfitt með að svara þeim. Kíkjum á viðtalið.
SÁ: Jæja Ingólfur, hvernig leggst það í þig að koma til Akureyrar og leika? Ingólfur: Það leggst mjög vel í mig að koma norður að spila. Ég er að vísu pínu hræddur við þennan leik, Akureyri búnir að vera í fanta formi í síðustu leikjum. Það er alltaf mjög gaman að spila í KA heimilinu þó svo ég æsi mig oftast aðeins of mikið þar. Ég ætla að æsa mig á sunnudaginn, a.m.k. svo mikið að Jón Þengill reiðist við mig meðan á leik stendur.
SÁ: Þið Fylkismenn hafið náð að taka fimm af átta mögulegum stigum til þessa. Ertu sáttur með byrjunina í vetur? Ingólfur: Nei ég er ekki sáttur við byrjunina í vetur. Við vorum ekki byrjaðir að æfa fyrir leikinn á móti HK, þannig að það tap var viðbúið og það var alger skandall að gera jafntefli við slakt lið Hauka.
SÁ: Þið misstuð nýlega varnartröllið Guðlaug Arnarson en fenguð þó staðinn Hauk Sigurvinsson. Veikir það ekki liðið að missa jafn sterkan mann og Guðlaugur er? Ingólfur: Arnar Sæþórsson hann leysir Gulla af í center og hef ég engar áhyggjur af honum þar en það veikir okkur að sjálfsögðu að missa eina af stoðum liðsins, Gulli er frábær karakter og góður handboltamaður og ég á ekki von á honum eftir áramót í Fylki.
SÁ: Hvernig finnst þér hópur ykkar miðað við hin liðin? Ingólfur: Mér finnst við vera með skemmtilegasta hópinn af öllum liðinum í deildinni. Höfum tvo menn í allar stöður um leið og við fáum alla heila. Þangað til verður þetta smá púsluspil. Mér finnst deildin vera mjög jöfn og skemmtileg, þannig að erfitt er að bera saman liðin svona snemma á tímabilinu. Haukur Steindórsson er allur að komast í sitt fyrra form frá því að hann var að æfa með KA.
SÁ: Hvað með þig sjálfan, hvernig standi ert þú í? Ingólfur: Ég fór í aðgerð í sumar á hné og er ekki í góðu líkamlega formi. Held ég hafi ekki verið verri á minni stuttu ævi, en vonum að ég nái að nota janúar vel og koma mér í form fyrir næsta hluta keppnistímabilsins.
SÁ: Nú ert þú gamall KA-maður, hvað finnst þér um að KA og Þór hafi sameinast í nýtt lið, Akureyri, fyrir þetta tímabil? Ingólfur: Mér er alveg sama um Handboltafélagið Akureyri en mér finnst þetta bæði jákvætt og neikvætt fyrir íþróttalíf bæjarins. Neikvætt að við getum ekki haldið úti tveimur góðum handboltaliðum og jákvætt að við náum að moða saman eitt gott lið til að keppa meðal þeirra bestu.
SÁ: Hvar heldur þú að Akureyri verði að berjast í deildinni í vetur? Ingólfur: Þeir verða í 5. sæti í vetur, sem er ásættanlegur árangur.
SÁ: Að leiknum á sunnudaginn næsta, hvernig líst þér á hann? Ingólfur: Mér líst rosalega vel á að koma norður á laugardaginn kíkja á Sálina spila fyrir 1000 manns um kvöldið og mæta síðan sjálfur og spila fyrir 500 manns daginn eftir. Þetta verður góð helgi. Leikurinn verður ekki hraður en skemmtilegur engu að síður.
Við þökkum Ingó kærlega fyrir þessi skemmtilegu svör.
Akureyri tekur á móti Fylki á sunnudaginn klukkan 16:00
Á sunnudaginn klukkan 16:00 leikur karlalið Akureyrar sinn leik í 5. umferð DHL-Deildarinnar. Leikur liðsins í 4. umferð sem er gegn Fram var frestað og verður leikinn 22. nóvember. Akureyri tekur á móti Fylki á sunnudaginn og verður virkilega áhugavert að sjá hvernig okkar mönnum mun vegna á móti varnarliði Fylkis. Fylkir hefur 5 stig eftir 4 leiki í deildinni en Akureyri er með 3 stig eftir 3 leiki. Við skulum hinsvegar kíkja aðeins á lið Fylkis.
Lið Fylkis var spáð 7. sæti deildarinnar og þar með falli, hinsvegar hefur liðið sýnt með góðri frammistöðu að leikmenn liðsins eru staðráðnir í að láta spána ekki rætast.
Tímabilið til þessa Fylkir byrjaði tímabilið illa en liðið tapaði 31-24 í Digranesi gegn HK. Liðið reif sig svo upp í næsta leik sem var gegn Valsmönnum og Fylkir sigraði 28-26. Í 3. umferð lagði Fylkisliðið svo ÍR á útivelli 27-29. Í síðasta leik voru leikmenn Hauka heppnir að ná jafntefli gegn Fylki á heimavelli Fylkis, 23-23. Leikmenn Fylkis slógu svo út Aftureldingu í SS-Bikarnum, 25-34.
Sigurður Valur Sveinsson þjálfari Fylkis leggur mikið upp úr varnarleik og bæði í ár og í fyrra hefur liðið verið að fá á sig fá mörk og er það svo sannarlega sterki hluti liðsins. Sóknarlega er liðið einnig sterkt og má þar nefna menn eins og Vladimir Ðuric og Arnþór Eymar Sigurðsson.
Árangur Fylkis á síðustu leiktíð Fylkir endaði í 4. sæti DHL-Deildar í fyrra með 33 stig. Fylkir komst í 8-liða úrslit SS-Bikarsins þar sem það tapaði fyrir Fram, áður hafði Fylkir slegið út ÍR og KR. Fylkir náði svo að komast í úrslit Deildarbikarsins eftir að hafa slegið út nýkrýnda Íslandsmeistara Fram. Haukar unnu hinsvegar Fylki í úrslitum keppninnar.
Helstu leikmenn liðsins Vladimir Ðuric er miðjumaður Fylkis, hann lék með Selfoss í fyrra og er ótrúlega öflugur. Hann getur skorað ógurlegan fjölda af mörkum en einnig býr hann til fyrir aðra. Vladimir er maðurinn sem stjórnar sóknarleik Fylkis og það þarf klárlega að stöðva hann til að fá tvö stig úr leiknum við Fylki.
Hlynur Morthens er markvörður liðsins, hann hefur verið að verja gríðarlega vel fyrir liðið bæði í fyrra og í ár. Hann nýtur góðs af því hversu góða vörn liðið leikur en Fylkir fékk á sig fæst mörk í deildinni í fyrra.
Arnþór Eymar Sigurðsson er skytta í liði Fylkis og er gríðarlega öflugur. Þegar hann kemst í gang þá getur það verið gríðarlega erfitt að stöðva hann. Hann skoraði 14 mörk gegn Valsmönnum í sigurleik Fylkis. Ef hann verður ekki stöðvaður þá getur leikurinn tapast.
Arnar Þór Sæþórsson leikur á línunni en er fyrrum leikmaður KA. Arnar er mjög mikilvægur í liði Fylkis og hefur skorað vel fyrir liðið og leikið ákaflega vel í vörn. Þegar hann heldur ró sinni sigrar liðið yfirleitt en þegar hann nær ekki að halda ró sinni fer leikur liðsins oft út um þúfur.
Ingólfur Ragnar Axelsson leikur á miðju og er fyrir aftan Ðuric í goggunaröðinni. Ingó er þannig leikmaður að þegar hann kemur inn á getur hann bjargað leiknum fyrir lið eða hugsanlega tapað honum. Ingó er ákaflega skemmtilegur leikmaður en hann vill alltaf fá boltann og reynir alltaf að sækja á markið. Þegar hann er heitur þá skorar hann af vild, Ingó er svokallaður "súpersub" eins og það er kallað.
Til að Akureyri nái tveimur stigum gegn Fylki í KA-Heimilinu á sunnudaginn þarf vörnin að halda og sóknin þarf að finna svör við frábærri vörn Fylkisliðsins.
Akureyri - Fylkir, KA-Heimilið 5. nóvember klukkan 16:00.
Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið og fylgjast með þessum stórleik. Þið sem komist ekki á leikinn getið fylgst með Beinni Lýsingu af leiknum hér á heimasíðunni.