5. febrúar 2007 - SMS skrifar Fyrsti heimaleikur eftir frí hjá stelpunum Fyrsti heimaleikur Akureyrar á þessu ári í DHL deild kvenna fer fram á morgun, þriðjudag í KA-heimilinu kl 19:00, þegar þær leika við sterkt lið Stjörnunnar. Stjarnan trónir á toppi deildarinnar með 20 stig eftir 12 leiki, þær hafa aðeins tapað 2 leikjum í vetur sem telst mjög góður árangur. Þær töpuðu báðum sínum leikjum gegn Val. Stjarnan hefur skorað 358 mörk og fengið á sig 243 eða að meðaltali 20,25 mörk í leik, sem er fæst mörk fengin á sig í deildinni sem sýnir að þær hafa geysisterka vörn og markvörslu. Í marki hjá þeim stendur Florentina Grecu og hefur hún verið að verja mjög vel í vetur. Dreifing marka hjá Stjörnunni er nokkuð jöfn á nokkra leikmenn en það er þó ein sem stendur ofar en aðrar og það er Rakel Dögg Bragadóttir en hún hefur skorað 79 mörk í 12 leikjum sem er mjög gott. Með Stjörnunni leikur Ásdís Sigurðardóttir sem lék lengi vel með liði KA/Þórs. Undirritaður hefur séð hluta af æfingum hjá kvennaliðinu í fríinu og hafa þær gengið mjög vel og virðist Jónatan Magnússon þjálfari liðsins ætla sér að ná í fleiri punkta í vetur, honum til aðstoðar er gamall reyndur þjálfari, hann Jóhannes Gunnar Bjarnason en hann var yfirþjálfari yngri flokka KA í fyrra. Eins og vonandi flestir vita kom fyrsti punkturinn í hús hjá kvennaliðinu í síðasta leik gegn ÍBV á heimavelli og vonum við að stelpurnar bæti bara í og taki þau tvö stig sem eru í boði á morgun á heimavelli gegn Stjörnunni. Eins og áður sagði hefst leikurinn kl 19:00 í KA-Heimilinu og hvet ég alla til að mæta og hafa gaman af, því liðið hefur verið að sýna stíganda og leikgleði upp á síðkastið.