Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Fram vann Akureyri stórt í Safamýri. - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Hvað gera Jarmila og stelpurnar á morgun?
19. mars 2007 - SMS skrifar Kvennaliðið: útileikur á morgun Stutt er á milli leikja núna hjá stígandi kvennaliði Akureyrar. Þær leggja í'ann suður á morgun til að spila við Fram í Safamýrinni. Þetta verður afar fróðvitnilegur leikur þar sem stelpurnar tóku jú sína fyrstu punkta um helgina hérna á heimavelli og geta vel endurtekið leikinn á morgun.
Stelpurnar mættu Fram í Safamýrinni snemma í vetur þar sem þær töpuðu heldur stórt 29-21 í frekar döprum leik. Þessi lið mættust aftur á Akureyri í afar einkennilegum handboltaleik. Þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Haddur og Einvarður létu liðið af hendi. Liðið var þó ekki undir stjórn nýs þjálfara sem var ekki staddur á landinu þann daginn. Sá leikur einkenndist af mikilli vörn beggja liða og voru aðeins 15 mörk skorðu í fyrri hálfleik. Akureyri leiddi í hálfleik 8-7. Leikurinn endaði svo 18-13 sem er afar lítil markaskorun í handbolta. Sérstaklega hjá Akureyri.
Í þeim leik sýndu stelpurnar að þær gátu vel stoppað Ástu Birnu, stórskyttu Frammara sem og Anitu Köbli. En sóknarleikurinn var óslípaður. Jónatan og Jóhannes hafa verið að slípa sóknarleikinn hægt og bítandi frá því þeir tóku við liðinu og verður gaman að sjá hvernig leikurinn fer á morgun. Ég hef alla trú á því að liðið taki þau tvö stig sem í boði eru og fari að ógna FH sem er sem stendur 3 stigum á undan Akureyri.
Fram stúlkur sitja sem stendur í 5 sæti deildarinnar með 17 stig, þær hafa unnið 7 leiki, tapað 9 og gert 3 jafntefli. Þær eru liðið sem skilur á milli þeirra fjögurra liða sem standa á toppnum, langt á undan öllum öðrum og eru nær tryggð í það sem kallast deildarbikarinn, einhverskonar úrslitakeppni.
En eins og áður sagði, tvö stig í boði á morgun, stelpurnar sýndu á laugardaginn hvað í þeim býr og öll mín trú er á að þær komi aftur norður annaðkvöld með tvö stig á bakinu.
Leikurinn hefst kl 19:00 og er í Safamýrinni í Reykjavík.