Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Umfjöllun handbolta.is um leikinn við ÍBV - Akureyri Handboltafélag
1. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl við Rúnar og Magga á VefTíví
Sjá má sjónvarpsviðtöl við Rúnar Sigtryggsson og Magnús Stefánsson, sem tekin voru eftir leikinn í Eyjum í gærkvöldi, á veftíví, sem er að finna á heimasíðunni www.handbolti.is - þar er landsliðsmaðurinn nýbakaði m.a. spurður að því hvernig honum lítist á að vera búinn að gera tveggja ára samning við Eyjamenn! Hann var þar sem kunnugt er í sumar, en unnusta Magga - Ester Óskarsdóttir, leikmaður Akureyrarliðsins - er úr Vestmannaeyjum.
1. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Nýr búningur Akureyrar
Lið Akureyrar vígði í gær nýja búninga í leiknum gegn ÍBV. Um er að ræða svartar treyjur og svartar buxur. Það má því segja að liðin hafi verið eins og svart og hvítt í gær enda Eyjamenn í sínum hefðbundnu hvítu búningum.
Spurning hvort liðið notar ekki nýja búninginn í bikarleiknum gegn ÍR á sunnudaginn? Á myndinni sjáum við Goran Gusic í nýja búningnum.
Jonni er allur að hressast
1. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jónatan á heimleið frá Eyjum
Þær góðu fréttir voru að berast af Jónatan Magnússyni að honum líður vel og ekkert alvarlegt að. Hann er kominn af sjúkrahúsinu og var að labba út í flugvél í Eyjum og kemur norður á eftir. Talið er að ástæða verksins sem hann fékk í gær tengist verkjalyfjum sem hann hefur tekið vegna þeirra meiðsla sem hann hefur glímt við að undanförnu.
Góðar kveðjur til Jonna
31. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jónatan verður í Eyjum í nótt (uppfært)
Eins og kom fram í frétt hér áðan var Jónatan Magnússon fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum eftir að hafa hnigið niður í upphafi leiksins gegn ÍBV. Þær fréttir voru að berast að Jonna líði vel en í öryggisskyni verði honum haldið á sjúkrahúsinu í Eyjum í nótt enda ekki ráðlegt að fara beint í klukkutíma flug við þessar aðstæður. Við sendum Jonna góðar kveðjur og vonumst til að hann nái fullum bata sem fyrst.
Mynd: handbolti.is
Jonni var fluttur á Heilsugæsluna í Eyjum strax í upphafi leiks
31. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Níu marka sigur í Vestmannaeyjum
Rétt í þessu var að ljúka leik ÍBV og Akureyrar sem leikinn var í Eyjum. Er skemmst frá því að segja að Akureyri sigraði með níu marka mun, 35 - 26. Akureyri leiddi með tveim mörkum í hálfleik en gerði út um leikinn með góðum seinni hálfleik þar sem munurinn varð mest tíu mörk.
Strax í upphafi leiksins hneig Jónatan Magnússon niður og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilsugæsluna í Vestmannaeyjum til aðhlynningar. Nú þegar þetta er ritað höfum við ekki nánari upplýsingar um ástand Jonna en vonumst til að geta flutt fréttir af því fljótlega og vonandi nánari upplýsingar um leikinn sjálfan.
Sendum Hödda og strákunum baráttukveðjur til Eyja
31. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leiknum við ÍBV er lýst á heimasíðu Vestmannaeyja (uppfært)
Þær fréttir voru að berast að leik Akureyrar og ÍBV verði í beinni lýsingu á heimasíðu Vestmannaeyinga. Við þökkum að sjálfsögðu fyrir þessa fínu þjónustu og bendum áhugasömum á að fylgjast með. Okkur skilst að um sé að ræða talaða lýsingu þannig að nauðsynlegt er að hafa hátalara tengda tölvunni til að fyljgast með.
Til að fylgjast með lýsingunni skaltu fyrst smella hér http://www.ibvfan.is og vinstra megin á síðunni er myndin sem væntanlega opnar lýsinguna. Lýsingin hefst væntanlega korter fyrir leik eða klukkan 18:45.
Spurning hvort Maggi komist til Eyja á morgun?
30. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leiknum við Vestmannaeyjar frestað til miðvikudags
Leik karlaliðs Akureyrar við ÍBV í N1 deildinni sem vera átti í kvöld hefur verið frestað til morguns, miðvikudags. Ástæðan er sú að ekki er flugfært til Eyja þannig að hvorki okkar menn né dómararnir komast til Eyja.
Leikurinn hefur verið settur á klukkan 19:00 á morgun og verðum við bara að vona að veðurguðirnir verði hliðhollari þá.