Hörður Fannar þarf væntanlega að bíða með að hefna sín á Stjörnunni
3. desember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hörður Fannar sá rautt í gær, Rúnar annars sáttur
Hörður Fannar Sigþórsson línumaðurinn litríki í liði Akureyrar Handboltafélags gerði sig sekan um stórfengleg mistök í bikarleiknum við Aftureldingu 2 í gær. Er ein mínúta var eftir af leiknum og Akureyri leiddi með 20 mörkum þá braut Hörður af sér og uppskar tveggja mínútna brottvísun. Hörður var ekki ánægður og lét dómarana heyra það, fyrir það uppskar hann beint rautt spjald.
Refsingin fyrir beint rautt spjald er einn leikur í bann. Aganefnd HSÍ kemur saman á miðvikudögum og því fer Hörður væntanlega í bann eftir leikinn við Valsmenn sem verður einmitt á miðvikudaginn. Hörður mun því að öllum líkindum missa af deildarleik við Stjörnuna um næstu helgi. Hörður sá þó að hann hafi breytt rangt og var miður sín eftir leik.
Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar var ekki ánægður með framkomu Harðar enda dýrt að missa hann í bann. Annars var Rúnar afar ánægður með liðið í heild sinni og hrósaði leikmönnum vel enda frábær sigur.
Rúnar sagði að liðið ætti mikið hrós skilið fyrir að gefa andstæðingunum enga möguleika í upphafi leiks og að klára leikinn strax í fyrri hálfleik, síðari hálfleikur hafi verið algjört formsatriði. Hann væri ánægður með að liðið hafi rúllað yfir andstæðinga sína í stað þess að vera í harki allan leikinn, eins og gerist þegar menn eru ekki með hugann við verkefnið.
Orð að sönnu hjá þjálfaranum en öllu bjartara er yfir herbúðum Akureyrarliðsins nú eftir fín úrslit að undanförnu. Liðið er komið upp úr fallsæti í deildinni og komið í undanúrslit í Eimskips Bikarnum.
Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið á miðvikudaginn til að styðja heimamenn gegn Íslandsmeisturum Vals í N1 Deildinni.
Bikarævintýri Akureyrar heldur áfram
2. desember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri komið áfram í undanúrslit bikarsins
Nú rétt í þessu var Akureyri að tryggja sér sæti í undanúrslit Eimskips Bikarsins. Liðið rúllaði yfir lið Aftureldingar 2 en lokatölur voru 20-39 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4-20, leikið var að Varmá. Frábær árangur hjá liðinu, gengið í deildinni hefur ekki verið nógu gott en liðið er að standa sig í Bikarnum.
Ásamt Akureyri eru Íslandsmeistarar Vals búnir að tryggja sér sæti í undanúrslitunum en á morgun kemur í ljós hvaða tvö lið fylgja Akureyri og Val áfram. Leikir morgundagsins eru:
Fram - Stjarnan Þróttur Vogum - Víkingur
Það þýðir ekkert nema sigur í bikarleikjum
2. desember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Strákarnir spila við Aftureldingu 2 í dag
Leikur dagsins hjá karlaliði Akureyrar er í Eimskipsbikarnum gegn spræku B liði Aftureldingar í Mosfellsbænum. Í liðinu eru gamlir refir sem kunna svo sannarlega handbolta, menn eins og landsliðshetjan Bjarki Sigurðsson sem er þjálfari þeirra Mosfellinga svo og hornamaðurinn Páll Þórólfsson sem í gegnum tíðina hefur oft gert mönnum lífið leitt. Auk þessara tveggja má nefna Jón Andra Finnsson, Ingimund Helgason og Þorkel Guðbrandsson. Þetta lið lagði m.a. úrvalsdeildarlið ÍBV sem sýnir að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.
Afturelding 2 hefur engu að tapa og öruggt að liðið mætir í leikinn án nokkurrar pressu og getur því svo sannarlega gert okkar mönnum skráveifu ef þeir koma ekki tilbúnir til leiks. Lið Akureyrar er búið að leggja Selfyssinga og ÍR að velli í bikarkeppninni til þessa og eiga svo sannarlega alla möguleika á að komast enn lengra í keppninni. Til þess verða menn þó að mæta af fullum krafti til leiksins og hafa í huga að enginn leikur er unninn fyrirfram og það er alveg á kristaltæru að stuðningsmenn liðsins sætta sig ekki við neitt nema sigur í dag.
Við getum á þessari stundu ekki lofað beinni lýsingu frá leiksins og verða þeir stuðningsmenn sem ekki komast á leikinn að fylgjast með síðunni þegar nær dregur leiknum sem hefst klukkan 16:00 í dag hvort af lýsingu verður.