Í dag koma leikmenn Aftureldingar í heimsókn og munu örugglega veita okkar strákum harða keppni. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og að sjálfsögðu er skyldumæting á leikinn enda getum við með sigri nánast gulltryggt deildarsæti Akureyrar.
Við ætlum að vera með beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún klukkan 15:00.
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 15:00 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Rúnar ætlar sér sigur í leiknum á morgun
29. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Mjög mikilvægur leikur - Viðtal við Rúnar Sigtryggsson
Rúnar Sigtryggsson þjálfari og leikmaður Akureyrarliðsins segir leikinn gegn Aftureldingu á morgun mikilvægan, sérstaklega að því leyti að ef okkar menn vinna sigur þurfa þeir ekki að hafa frekar áhyggjur af því að þeir geti fallið niður um deild. Leikurinn hefst kl. 15.00 á morgun, sunnudag, EKKI kl. 20 eins og upphaflega var áætlað.
'Ef við vinnum verðum við komnir 8 stigum frá fallsæti og það verða aðeins 12 stig í boði fyrir hvert lið, það sem eftir er móts. En hvernig svo sem leikurinn fer hef ég ekki áhyggjur af því að við föllum,' sagði Rúnar í viðtali við heimasíðuna.
Rúnar er á þeirri skoðun að Akureyrarliðið hafi stöðugt bætt leik sinn síðan um mánaðamótin nóvember - desember í fyrra. 'Við fórum reyndar ekki að safna stigum fyrr en í 3. umferðinni eftir áramót. Við byrjuðum illa og við það varð lítið sjálfstraust í liðinu, sem kostaði nokkuð mörg stig í 2. umferðinni.'
Hann segir: 'Sú leið var farin fyrir þetta tímabil að leggja áherslu á æfingaferðir í janúarpásunni, þar sem sagan sýndi lélegan árangur eftir áramót seinustu árin þar sem lítið var leikið af æfingaleikjum fyrir seinni hluta mótsins. Æfingaleikirnir í janúar hafa borgað sig enda vinningshlutfallið í 3. umferðinni 57% á móti 29% vinningshlutfalli í umferðum 1 og 2. Þetta sýnir okkur að það þarf að auka æfingaleiki fyrir tímabilið og í vetrarpásunni mikið ef við ætlum okkur ofar í deildinni, því þeir skipta megin máli í hvernig liðið kemur til leiks á Íslandsmótinu.'
Rúnar segir deildina mjög sterka og skemmtilega, 'en það virðist ekki skila sér almennt til áhorfenda ennþá. Ef til vill þarf bara að gefa þessu fyrirkomulagi tíma, en ég skil líka mjög þá umræðu að menn vilji gamla fyrirkomulagið með 12 liða deild og 8 liða úrslitakeppni. En umræðan um sífelldar breytingar á deildarfyrirkomulagi er orðin í meira lagi þreytandi. Við getum svo sem ekki kvartað en á fyrstu leikjum vetrarins voru að koma 500 manns á leik, en þar sem okkur gekk lítið að vinna leiki, sérstaklega á heimavelli, þá kvarnaðist úr hópnum og um 250 hafa verið að mæta. Við getum bara sjálfum okkur um kennt, því með betri árangri hefðum við örugglega bætt í áhorfendahópinn og vel það. En stemmingin hefur verið til fyrirmyndar á síðustu heimaleikjum og vonandi verður framhald á því núna í 4. og síðustu umferðinni í vetur,' sagði Rúnar.
Maggi tryggði stig í síðasta heimaleik gegn Aftureldingu
28. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Mikilvægur leikur hjá körlunum á sunnudaginn
Það stefnir í baráttuleik hjá karlaliði Akureyrar á sunnudaginn klukkan 15:00 þegar liðið tekur á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ. Með sigri má segja að liðið gulltryggi sæti sitt í deildinni á meðan að leikmenn Aftureldingar verða að sigra til að halda í vonina um að forðast fall.
Leikir liðanna í vetur hafa verið æsispennandi, síðast mættust liðin í Mosfellsbæ þann 3. febrúar og þar náði Akureyri að knýja fram eins marks sigur á lokamínútunum 26-27 en sá leikur var einmitt sýndur í sjónvarpinu.
Þá var ekki síður dramatík í fyrri leik liðanna sem fram fór hér á Akureyri þann 10. nóvember. Afturelding komst þá yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar mínúta var eftir af leiknum en Magnús Stefánsson jafnaði með sirkusmarki þegar hálf mínúta var eftir af leiknum og þar við sat.
Það má því búast við hörkuleik á sunnudaginn þar sem leikmenn Akureyrar ætla örugglega að sýna að liðið eigi heima í hópi þeirra bestu og kveða falldrauginn endanlega niður.
Það er rétt að ítreka það að leikurinn hefst klukkan 15:00 á sunnudaginn en ekki klukkan 20:00 eins og segir í síðasta Vikudegi en leiktímanum var breytt fyrir nokkru síðan.